Bræðrabandið - 01.02.1974, Page 13

Bræðrabandið - 01.02.1974, Page 13
Bls.13 -BRÆÐRABANDIÐ- 2. tbl. LEIKMANNASÍÐAN bib mrannsoHn Baldur er gamall Aðventisti. Hann var skírður fyrir u.þ.b. 40 árum. Síðastliðin 20 ár hefur hann verið að búa sig undir að halda Biblíurannsókn með því að ranns- aka Biblíuna og annað trúarlegt efni á hverjum degi. Honum finnst hann enn ekki tilbúinn aö halda Biblíu- rannsókn , en hann vonast til að verða tilbúinn fljqtlega. Jónas er nýr aðventisti. Hann var skírður fyrir einu og hálfu ári. Þar sem hann kemur ekki frá kristnu umhverfi, er þekking hans á Biblíunni enn fremur takmörkuð, en hann hefur þegar rannsakað með fjölda vina og einn þeirra hefur tekið á móti jesú sem Frelsara sínum. Spurningin vaknar: Kvers vegna heldur Jónas Biblíu- rannsóknir en Baldur ekki? Það er vegna þess, að Jónas skilur hugmynd Biblíunnar um kristinn vitnisburð. Þessar hugmyndir, sem grundvallast á meginreglum, sem Kristur setti fram, brjóta niður mótstöðu og hleyðidóma og ávinna trúst og tiltrú eins og við munum sjá. Frh. í næsta blaði. MANNTAL í þessu blaði er skýrslublað vegna manntals. Að vísu eru allir skráðir hjá okkur, þegar þeir eru skírðir, en samt vantar að vita viss atriði. A manntalsskýrslum til hins opinþera þurfum við ávallt að geta foreldra viðkomandi manns og þær upplýsingar vantar okkur oft á tíðum. Einnig er hætta á að við höfum ekki nógu góðar upplýsingar um börnin. Þessi manntalsskýrsla á að bæta úr þessu. Fyllið hana vinsamlegast nákvasmlega út og sendið til skrifstofunnar eigi síðar en I. april n.k. VERÐ A BIBLÍULEXÍUM Verð á Biblíulexíunum frá 1. jan. 1974 verður kr. 200 heftið. Er það hækkun frá fyrra ári, en hjá þvx verður ekki komizt vegna hækkandi verðlags. Gíróseðlar verða nú sendir út til að auðvelda fólki greiðslu á lexíunum, og er fólk vinsamlegast beðið að senda greiðslu sem fyrst.

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.