Fréttablaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
31. desember 2011
INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2011
Draumur
um einsemd
Gamlir og nýir andstæðingar EES halda því fram
að það sem vont og skaðlegt var fyrir hrun hafi
komið með EES-samningnum segir Pawel Barto-
szek og bendir á að það yrði galin ákvörðun að
segja samningnum upp. Enginn hafi grætt meira
á EES en íslendingar og enginn muni tapa meira á
uppsögn samningsins en íslenska þjóðin.
argt virðist benda
til að þrátt fyrir
að fjármála-
krísan sé alþjóð-
leg hafi umfang
hennar á íslandi
mest með innlendar ákvarðanir að
gera. Vöxtur bankanna var eins og
hann var og aðgerðir stjórnvalda til
að halda honum í skefjum voru eins
og þær voru. Hafi frelsi í fjárfest-
ingum milli landa þannlg haft ein-
hver áhrif þá voru það fremur fjár-
festingar Islendinga erlendis sem
komu okkur í vanda heldur en fjár-
festingar útlendinga á íslandi.
En í allri þeirri bylgju þjóðernis-
geðshræringar sem nú ríður yfir er
hætta á því að auðvelt verði fyrir
menn á kössum með gjallarhorn
að hrópa niður öll tengsl okkar við
útlönd. Þeir sem vilja veg íslands
á alþjóðavísu meiri en minni þurfa
því að hafa sig alla við við að verja
það samstarf sem við tökum þátt
í, að ekki sé nú minnst á einhvers
konar dýpkun eða útvíkkun þess.
Vonda Schengen?
Á þinginu er nú búið að leggja fram
beiðni um að skoða kosti og galla
þátttöku íslands í Schengen-sam-
starfinu. Það getur verið erfitt að
andmæla ákalli um að eitthvað
sé skoðað vel. Hver vill það ekki?
En þegar slíkar beiðnir eru settar
fram, sérstaklega í kjölfar frétta af
afbrotum útlendinga á fslandi, er ef
til vill ástæða til að óttast að eitt-
hvað fleira búi að baki. Munu fleiri
framvegis tala fyrir því að öryggi
landsins verði best tryggt með því
læsa hliðinu og hlaða riffilinn?
Schengen-samstarfið veitir
okkur aðgang að öflugu upplýsinga-
kerfi evrópskra löggæslusveita og
styttir íslenskum farþegum biðina,
jafnt í Leifsstöð, sem og í erlend-
um flugstöðvum. Þá er mikilvægt
að átta sig á því að þátttaka okkar
í EES takmarkar, til allrar ham-
ingju, möguleika okkar á að halda
fólki, alla vega evrópsku fólki, frá
landinu. Við getum til dæmis ekki
farið að krefja alla evrópska ferða-
menn um heilbrigðisvottorð, saka-
vottorð eða vegabréfsáritun, svo
lengi sem við erum í EES. Og ef
við í einhverju bræðikasti gengj-
um úr EES og færum að krefjast
allra þessa hluta þá gætum við átt
von á því að fá svipaða meðhöndlun
á móti. Það væri hryllileg lífskjara-
skerðing fyrir okkur öll.
Vonda EES?
Aðild okkar að EES-samstarfinu
var, eins og þekkt er, ekki óumdeild
á sínum tíma. Hún var samþykkt á
þingi með 33 atkvæðum og vel yfir
þrjátíu þúsund kjósendur kröfðust
þess að fá að kjósa um hana í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Miðað við þau
fordæmi sem síðar hafa verið sköp-
uð má telja nokkuð líklegt að aðild-
in hefði verið send í þjóðaratkvæði
ef persónu núverandi forseta hefði
notið við, og líklega hefði verið tví-
sýnt um samþykki hennar í slíkri
atkvæðagreiðslu. Þær vangavelt-
ur eru kannski til lítils nú, hún var
samþykkt og það er gott.
jO^KjördeiM
KOSIÐ UM ICESAVE „(slendingar tóku, á slnum tlma og með sfnum hætti, ákvörðun um að fara mögulega i dómsmál út af
lceSave. Þeirri ákvörðun fylgdi áhætta," segir Pawel Bartoszek en Islendingar höfnuðu samningum um lausn lceSave-deilunnar í
þjóðaratkvæðagreiðslu 9. april síðastliðinn. fréttablaðið/daníel
EES-samningurinn er síðri en
ESB-aðild. Við tökum hvorki þátt í
samevrópska tollsvæðinu né í land-
búnaðarsamstarfinu. íslending-
ar mega ekki kaupa danskt smjör.
Þeir þurfa að kaupa íslenskt smjör
því íslenskir stjórnmálamenn vilja
hafa það þannig. Vefverslun til
landsins er heft og tollverðir leita
í töskum ferðamanna. Við sitjum
uppi með mynt sem við þurfum
leyfi og ástæðu til að skipta í aðra
mynt. Við sitjum líka uppi með
stjórnmálamenn sem telja það fyr-
irkomulag sérstaka blessun fyrir
okkur öll. Við fáum ekki aðkomu að
ákvörðunum innan ESB. ESB væri
betra en EES. En EES er samt svo
margfalt, margfalt betra en ekki
neitt.
Þegar ríki opna á fjárfestingar
yfir landamæri spáir alltaf ein-
hver því að menn í öðrum ríkjum
muni koma og kaupa upp allt það
besta í þeirra ríki. Þjóðverjar muni
kaupa upp sumarhús á Jótlandi.
Svipuðu var spáð á íslandi þegar
EES-samningurinn var gerður.
En í reynd voru það frekar íslend-
ingar sem nýttu sér, jafnvel um of,
mætti einhver segja, það fjárfest-
ingafrelsi sem EES-samningurinn
veitti þeim. Hræðsluáróðurinn um
möguleg allsherjaruppkaup útlend-
inga á íslenskum jörðum og fyrir-
tækjum, sem reynt var að tefla
fram við gildistöku EES-samnings-
ins, reyndist innantómur.
Þrátt fyrir deilur í upphafi hafði
í á hálfan annan áratug ríkt tiltölu-
lega breið sátt um EES-samning-
inn. Nú má hins vegar oftar heyra
þá skoðun að samningurinn hafi átt
einhvern þátt í því hvernig fyrir
íslendingum sé komið. Það má líka
oftar heyra þá skoðun að ef íslandi
verði með einhverjum hætti gert
að greiða lágmarksupphæð inni-
stæðutrygginga til breskra og hol-
lenskra innistæðueigenda þá sé
EES-samstarfið ekki þeirra pen-
inga virði. Þannig eru gamlir og
nýir EES-andstæðingar að undir-
búa fólk undir það að EES-sam-
starfinu verði sagt upp. Það yrði
galin ákvörðun.
íslenskar alþjóðastofnanir
Nú liggur fyrir að Eftirlitsstofnun
EFTA hefur kært ísland til EFTA-
dómstólsins vegna IceSave-deilunn-
ar. í ljósi umræðunnar þarf að koma
því á hreint að umræddar stofnan-
ir eru ekki ESB-stofnanir. Þær eru
hluti af EES-samningnum og eru
reknar af EFTA-ríkjunum þremur
sem taka þátt í EES, íslandi, Noregi
og Liechtenstein. Stofnanirnar tvær
eru eins íslenskar og alþjóðastofn-
anir geta orðið. Það eru þrír dóm-
arar við EFTA-dómstóllinn, einn til-
nefndur af hverju ríkjanna þriggja.
Fimm af fimmtán starfsmönnum
dómsins eru íslendingar. EFTA-rík-
in þrjú tilnefna hvert um sig einn
fulltrúa í þriggja mann stjórn Eft-
irlitsstofnunar EFTA. Af þeim 75
nöfnum starfsmanna Eftirlitsstofn-
unar EFTA sem finna má á heima-
síðu stofnunarinnar eru 15 íslensk.
Þessi tölfræði skiptir vitanlega
litlu fyrir málflutning íslands og er
aðallega sett fram til fróðleiks. En
stóri punkturinn er að þetta eru þær
stofnanir sem við sjálf settum upp
til að gæta EES-samningsins. Kom-
ist þær að þeirri niðurstöðu að við
fylgjum honum ekki eftir þá leika
menn sér að ekki að því að hafa þá
niðurstöðu að engu.
Tólf núll
Saga málareksturs frammi fyrir
EFTA-dómstólnum gefur tilefni
til fremur dempaðrar bjartsýni. Af
þeim þrettán málum sem Eftirlits-
stofnun EFTA hefur vísað á hendur
íslandi til dómstólsins hefur í eitt
skipti verið fallið frá
málarekstrinum eftir
að ísland gerði nauð-
synlegar breytingar á
íslenskum lögum. Hin
tólf málin hafa öll tap-
ast. Við skulum auð-
ff
breskir sparifjáreigendur. Þetta
eru ekki okkar mál. Við höfum
ekkert með neitt af þessu að gera,“
myndu menn segja og ganga svo úr
EES. Það væri miður viturlegt: Að
ætla sér að refsa öðrum með því að
setja sjálfan sig í viðskiptabann.
Sjálfstæð eða einstæð?
Stærstan hluta lýðveldissögunn-
ar hafa íslendingar lifað við gjald-
eyrishöft, og ýmsar aðrar skrýtn-
ar hindranir á viðskipti fyrirtækja
og almennings. Hinu stutta tíma-
bili sæmilegs haftaleysis lauk með
því að allt fór í steik. Menn fara að
tengja saman og álykta ranglega að
íslendingar séu ekki færir um að
þrífast innan eðlilegs markaðshag-
kerfis. Og menn fara að álykta að
það sem vont og skaðlegt var fyrir
hrun hafi komið með
EES-samningnum. Frá
útlöndum.
Menn fara að leggja
til að Schengen og EES
verði sagt upp. Hvað
svo? Á að láta Evrópu-
vitað vona að raunin búa sækja um vegabréfs-
verði önnur nú.
Tapist málið fyrir
EFTA-dómstólnum
getur ýmislegt gerst.
Ef trúa á málflutningi
talsmanna dómstóla-
leiðarinnar þá ættu
Bretar og Hollending-
ar að höfða mál fyrir
íslenskum dómstól-
um. Sjáum til. En fari
það á endanum svo að
íslenska ríkið verði
fyrir íslenskum dóm-
stól, og á grundvelli
íslenskra laga dæmt til
að greiða einhverjum
bætur vegna mistaka sem skrif-
ast á íslensk stjórnvöld, íslenskan
seðlabanka og íslenskt fjármála-
eftirlit; þá væri það varla rökrétt
skref að segja upp EES-samstarf-
inu í kjölfarið. Né myndi það auð-
vitað breyta nokkru um niðurstöðu
dómsins þegar þangað væri komið.
Sjálfsviðskiptabann
fslendingar tóku, á sínum tíma og
með sínum hætti, ákvörðun um
að fara mögulega í dómsmál út af
IceSave. Þeirri ákvörðun fylgdi
áhætta. Sem betur fer bendir nokk-
uð til að með batnandi heimtum úr
þrotabúi Landsbankans verði fjár-
hagslegt tap skattgreiðenda, jafn-
vel þótt málið tapist, mun minna
en hinar mjög svo myrku spár í
upphafi bankahrunsins gerðu ráð
fyrir. í raun þarf ekki að óttast pen-
ingalegar afleiðingar slíks ósigurs
og jafnmikið og þær pólitísku. Og
þá er ekki átt við þá afar takmörk-
uðu áhættu á því að ESB, með öll
sín vandamál fari að reka ísland úr
EES. Mun frekar má óttast að við
þær aðstæður færum við að asnast
til að segja honum upp sjálf.
„Erlendir dómstólar, evrópsk lög,
Við sitjum
uppi með
mynt sem við
þurfum leyfi
og ástæðu
til að skipta í
aðra mynt.
áritanir, setja upp þjóð-
ernisfýlutolla á allt sem
frá ESB kemur og ætl-
ast til að allir erlendir
fjárfestar þurfi að stan-
dast manngæskupróf
innanríkisráðherra til
að fá að kaupa hér jarð-
ir eða fyrirtæki? Á að
hætta að bjóða út opin-
berar framkvæmdir?
Herða gjaldeyrishöftin?
Setja aftur hærri skatt
á erlendar bækur? Allt
þetta væri galið. Eng-
........ inn hefur grætt meira á
EES en við sjálf. Enginn
mun tapa meira á uppsögn þess en
við sjálf.
Yrðu endalok EES heimsend-
ir? Vitanlega ekki. Með tíma sæju
menn að sér. Smám saman yrði
samið um ferðafrelsi íslendinga til
útlanda, síðan atvinnufrelsi, síðan
kannski frjálsa vöruflutninga og
gagnkvæmar heimildir til fjár-
festinga. Einhvern tímann fengjum
við kannski næstum því jafngóðan
samning og EES-samningurinn er
nú þegar. Kannski eftir áratug ein-
angrunar og vitleysu. En það er ára-
tugur sem ég kysi helst að vera án.
Pawel Bartoszek
er stærðfræðingur
og fastur pistlahöf-
undur í Frétta-
blaðinu.
Innlendir vendipunktar 2011
Fréttablaðið gerir upp árið með
greinum eftir valda höfunda.
Vendipunktarnir snúast um atburði
sem gerðust á árinu og gætu haft
áhrif til frambúðar á (slandi.