Fréttablaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 4
GENGIÐ 30.12.2011
4
FRÉTTABLAÐIÐ
31. desember 2011 LAUCARDACUR
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
i Bandaríkjadalur 122,42 123
í* 5 Sterlingspund 188,97 189,89
BW Evra 158,4 159,28
■Dönsk króna 21,305 21,429
gj^ Norsk króna 20,343 20,463
J2 Sænsk króna 17,739 17,843
: 0 Japanskt jen 1,5807 1,5899
SDR 187,83 188,95
GENGISVlSITALA KRÓNUNNAR j
217,2815 |
HEIMILD: Seðlabanki íslands i
„Það er ekkert plan B," segir lyfjafræðingur um rafrænt lyfseðlakerfi apótekanna:
Fólk féklc elcki lyf vegna bilunar
HEILBRICÐISMÁL FÓlk sem hugðÍSt
nýta sér rafræna lyfseðlakerfið
til að sækja sér lyf þurfti frá að
hverfa í tvígang í gær. Kerfið, sem
er miðlægt og tengist öllum apó-
tekum landsins, lá niðri í rúma
klukkustund í gærmorgun og sló
aftur út undir kvöld.
„Ein kona spurði hvort það væri
ekkert plan B ef þetta klikkaði, en
það er ekkert plan B. Ég veit ekki
til þess,“ segir Sigrún Karlsdóttir,
lyfjafræðingur í Lyfjum og heilsu
í Kringlunni.
Drjúgur meirihluti allra lyfseðla
er nú sendur beint frá læknum inn
í þetta kerfi, sem var komið á lagg-
irnar árið 2007.
„Auðvitað verður fólk pirrað að
fá ekki lyfin sín, maður skilur það
vel,“ segir Sigrún, sem gat þó lítið
gert annað en að bíða eftir lagfær-
ingunni frekar en aðrir starfs-
menn apóteka.
Áfram var hægt að afgreiða
fólk með lyfseðla í pappírsformi
en hinir þurftu að koma aftur
síðar. „Flestir skruppu aðeins frá
og komu aftur,“ segir Sigrún. „Ég
held að það hafi nú ekki verið mjög
margir sem þurftu alveg frá að
hverfa “ - sh
fyf&heilsa
PIRRINGUR i APÓTEKUM „Auðvitað
verður fólk pirrað að fá ekki lyfin sín,"
segir Sigrún Karlsdóttir I Lyfjum og
heilsu.
Síðustu kaup ársins:
Verslanir opnar
á gamlársdag
verslun Flestar matvöruversl-
anir verða opnar í dag. Kringlan,
Smáralind og Vínbúðirnar verða
opnar frá klukkan 10 til 13 og
verslanir Bónuss frá klukkan 10
til 15.
Þær verslanir Hagkaupa sem
hafa venjulega opið allan sólar-
hringinn verða með opnunartíma
í dag frá klukkan 9 til 18. Þær
sem halda venjulegan opnunar-
tíma loka klukkan 14.
Verslunarmiðstöðin Glerártorg
á Akureyri er með opið frá klukk-
anl0till2. - sv
Rekstrartekjur RÚV
2010/2011 Milljónirkr. Breyting
Þjónustutekjur 3.054,4 -6,0%
Augiýsingar 1.555,8 13,8%
Kostun 179,2 31,1%
Aðrartekjur 193,7 -10,5%
Alls 4.983,1 0,3%
Heimild: Ársreikningur RÚV ohf.
Eignir nema 5,6 milljörðum:
Hagnaður RÚV
er 16 milljónir
fiölmiðlar Hagnaður af rekstri
Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) síð-
asta rekstrarár er tæpur tólfti
hluti af hagnaði ársins á undan.
Rekstrarárið 1. september 2010
til 31. ágúst 2011, hagnaðist RÚV
um 16,2 milljónir króna, miðað
við 205,6 milljónir árið áður.
„Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBITDA) var 553
milljónir króna,“ segir í tilkynn-
ingu, en samkvæmt efnahags-
reikningi félagsins nema eignir
þess 5,6 milljörðum króna. Bók-
fært eigið fé í lok rekstrarársins
var 737 milljónir og eiginfjárhlut-
fallið 13,3 prósent. - óká
Vegaþjónusta um áramót
Allar leiðir sem hafa 7 daga þjónustu
verða þjónustaðar á nýársdag. Á
leiðum með fastan mokstursdag
á sunnudegi (nýársdegi), verður
þjónustan flutt af sunnudegi yfir
á laugardag (gamlársdag). Færð á
vegum er ekki könnuð á vettvangi
nema á umferðarþyngstu vegum.
Hugið að útigangshrossum
Matvælastofnun hvetur bændur og
aðra umráðamenn útigangshrossa
til að huga vel að dýrum sínum nú
þegar víða eru jarðbönn. Hrossin
þurfa að vera í ríflegum holdum á
þessum árstíma og hafa aðgang að
skjóli. Ábendingar um hross sem
híma fóðurlaus í girðingum þar sem
enga beit er að hafa berast víða að,
en það gengur gegn landslögum.
Sex hundruð tonn af
flugeldum sprengd
Um 600 tonnum af flugeldum verður skotið upp í dag og kvöld. Þyngdin jafn-
gildir 200 jeppum. Ef flugeldar eru gallaðir bera framleiðendur og dreifingarað-
ilar fulla ábyrgð sem getur reynst dýrkeypt. Bomba.is innkallar gallaðar tertur.
fluceldar Áætlað er að um 600
tonnum af flugeldum verði skotið
á loft í dag og kvöld. Þyngdin jafn-
gildir um 200 Land Cruiser jeppum.
Neytendastofa bendir á að framleið-
endur og dreifingaraðilar flugelda
beri skaðabótaábyrgð samkvæmt
íslenskum lögum um skaðsemisá-
byrgð ef varan er gölluð.
í lögunum segir að samanlagt geti
bætur vegna líkamstjóns, þar með
talin dauðaslys, vegna vöru sem
haldin er framleiðslugalla numið
allt að 11,5 milljörðum íslenskra
króna, eða um 70 milljónum evra.
Á næsta ári verði ný tilskipun
Evrópusambandsins um flugelda
innleidd hér á landi. Þar verða gerð-
ar auknar kröfur varðandi fram-
leiðslu þeirra, merkingar, innihald
og leiðbeiningar. Neytendasamtök í
Danmþrku, þar sem reglurnar eru í
gildi, létu gera könnun á flugeldum
og í ljós kom að 27 eintök af 56 flug-
eldum uppfylltu ekki kröfur.
Bomba.is þurfti að innkalla tvær
gerðir af skottertum vegna fram-
leiðslugalla. Terturnar bera nöfnin
„Kópavogur“ og „Breiðholt" og eru
þeir sem fengið hafa þessar tertur
beðnir um að skila þeim í Víkur-
hvarf 6 þar sem Bomba.is er til
húsa. Neytendur geta annaðhvort
fengið endurgreitt eða aðra tertu
að sambærilegu verðgildi.
„Terturnar springa mun hraðar
heldur en við áttum von á,“ segir
Örn Árnason, leikari og flugelda-
sali. „Það á ekki að vera nein hætta
af þessu ef menn eru í hæfilegri
fjarlaegð. En hröðunin getur verið
það mikil að kúlurnar þvælast hver
fyrir annarri og springa þá ekki í
nógu mikilli hæð.“ - jss / s»
Dýrin geta orðið ofsahrædd
Mörg undanfarin áramót hafa orðið fjölmörg slys og óhöpp vegna ofsa-
hræðslu dýra við flugelda og hávaðann frá þeim. Samkvæmt leiðbeiningúm
frá Matvælastofnun skal halda dýrum innandyra á gamlárskvöld og best er
að útbúa aðstöðu í einhverju herbergi sem þau þekkja til. Þar skal draga
fyrir glugga og hafa Ijósið kveikt og einhverja tónlist í gangi þar sem það
getur dregið úr hávaðanum sem berst inn. Ráðlegt er að tala rólega við
dýrin en ekki vorkenna þeim um of.
Dýr sem verða mjög hrædd má ekki skilja eftir einsömul. Hvolpum og
kettlingum sem eru að upplifa sín fyrstu áramót þarf einnig að sýna sér-
staka aðgát. Hræðsla við hávaða eykst oft eftir því sem dýrin eldast. Hestum
sem komnir eru á gjöf í hesthúsum skal gefið vel, hafa Ijós kveikt og útvarp í
gangi. Eigendur ættu einnig að vitja þeirra á þessum tíma. Útigangshrossum
á að gefa vel og halda á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður
að voða ef hræðsla grípur þau.
Bannað að breyta
Lögreglan minnir á að óheimilt er að breyta flugeldum á nokkurn hátt þannig að
þeir hljóti aðra eiginleika en framleiðendur ætluðust til, samkvæmt áminningu
frá lögreglu.
Við meðferð og vörslu skotelda skal ýtrustu varúðar gætt og ætíð farið eftir
skráðum leiðbeiningum. Við brennu og í næsta nágrenni við hana er öll meðferð
flugelda og annarra skotelda sem hætta stafar af vegna ferils þeirra eftir tendrun
bönnuð. Þar er aðeins leyfilegt að nota stjörnuljós og blys, þó ekki skotblys.
Fann gamalt ástarbréf:
99 ára karl
heimtar skilnað
fTALÍA ítali sem í málsskjölum
er nefndur Antonio C er mögu-
lega elsti maður í heimi sem sótt
hefur um skilnað, að því er segir
á vef breska blaðsins The Daily
Telegraph.
Þegar Antonio, sem er 99 ára og
býr í Róm, var á dögunum að taka
til í gömlum pappírum fann hann
ástarbréf sem eiginkona hans til
77 ára, Rosa, hafði skrifað ást-
manni sínum á fimmta áratug síð-
ustu aldar.
Rosa, sem er 96 ára, viður-
kenndi sakbitin ástarævintýrið
fyrir manni sínum. Henni hefur
ekki tekist að fá hann til að hætta
við kröfuna um skilnað. - ibs
Bankasýsla ríkisins:
Jón Gunnar
Jónsson ráðinn
nyr forstjóri
STJÓRNSÝSLA Stjórn Bankasýslu
ríkisins hefur ráðið Jón Gunnar
Jónsson sem nýjan forstjóra
Bankasýslunnar.
Starf forstjóra var auglýst til
umsóknar í nóvember. Sautján
umsóknir bárust.
Ráðning Jóns
Gunnars grund-
vallast á vinnu
hæfnisnefndar
sem meðal ann-
ars tók mið af
hæfismati FME
fyrir stjórnend-
ur og stjórnar-
menn fjármála-
fyrirtækja.
Jón Gunnar
er með LL.M. gráðu í lög- og
hagfræði auk B.S. gráðu í sömu
fræðum frá Cornell háskólanum
í Bandaríkjunum. Jón sat í stjórn
MP banka frá 2010 til 2011 og
kom meðal annars að endurskipu-
lagningu bankans. . shá
JÓN GUNNAR
JÓNSSON
Bakleikfími
Betri líðan í hálsi, herðum og baki
undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Hádegis- og eftirmiðdagstímar
í SUNDLAUG HRAFNISTU VIÐ LAUGARÁS
Með sambaívafi í HEILSUBORG OG SPORTHÚSINU
Innritun í síma 897 2896
www.bakleikfimi.is
BREIÐU BÖKIN
VEÐURSPA
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
□
CLEÐILECT ÁR!
Það lítur út fyrir fínt
flugeldaveður um
allt land einkum
norðaustantil. Vind-
ur verður nokkuð
hægur af suðvestri
en það,má búast
við stöku éljum
eða slydduéijum
um vestanvert
landið. Kólnar á ný
f kvöld.
Á MORGUN1
3-8 m/s.
b
j
;□
6
Bl
■ r',
'*Y
/P
<23
taQ3
7»
0*
ef
ef
ð£3*
*
MÁNUDAGUR
5-13 m/s.
HEIMURINN Alicante 9°
Basel 1°
Berlln 5°
Billund 3°
Frankfurt 6°
Friedrichshafen -1°
Gautaborg 3°
Kaupmannahöfn 3°
Las Palmas 20°
London 13°
Mallorca 17°
New York 10°
Orlando 24°
Ósló 0°
Parls 7°
jSan Francisco 14°
Stokkhólmur 4°
B
:y
Vindhraði er I m/s.
Hitastig eru I °C.
Gildistlmi korta er um hádegi.
AUCLÝSINOADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS - AUCLÝSINGA5T1ÓRI: Jón Laufdal jonl@frettobladid.is ALMENNAR SÍMI 51J-5401: Einar Davíðssön ánor.dm/dsson@365./5, Guðmundur Steinsson gudmundijn@365.á, Hjö/dls Zoéga hjadk&rettablodkUs, Htynur Steingrimsson hýnors@365./s, Uila Áwad fa/io@365is, Öm Gei/sson
om.geinson@365Js ALLTSlMI 512-5402:16na Hafsteinsdótti//m/i@36JÁ B/ynja Gunna/sdóttirZ»ynÁij@365Á Snorri Snorrasonsnorris@365.is SÉRBLÖÐ SlMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.k, Sigrtður Siguit)jömsdóttirs/jndo/rfojn)/@365.H, Ivar Hanscn ivarom@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SlMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365Js, Viðar Pétu/sson vip@365Js ÞÍÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Siguriaug Aðakteinsdóttir siguriaug@365.is, Ama Kristinsdóttir amarut@365Js, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365Js, Signjn Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTiÓRI: Eina/ Skúlason einarskulason@365.is