Heimilisritið - 01.10.1945, Side 20
Gólfstraumurinn
Þessi stutta grein er ekki ætluð náttúru-
fræðingum, heldur þeim, sem vilja fræðast
nánar um hinn hlýja hafsstraum, sem leikur
um landið okkar og þjóðin á beint eða óbeint
líf sitt að launa.
í öllum hinum miklu úthöfum
jarðar vorrar eru straumakerfi.
í norðanverðu Kyrrahafi er t. d
hinn japanski straumur, sem
mildar mjög veðráttu á Alaska-
skaga.
En sá straumur, sem við
Norður-Evrópubúar látumokkur
mestu varða, er Golfstraumur-
inn. Við skiljum hve afar mikla
og góða þýðingu Golfstraumur-
inn hefur fyrir Grænland, Fær-
eyjar, ísland og skandinavisku
löndin, þegar við berum saman
veðurfar á þeim og öðrum lönd-
um sem hafa sömu breiddarstig,
t. d. Norður-Ameríku.
Þó að Golfstraumurinn hafi
verið rannsakaður allmikið, er
þeim rannsóknum ekki lokið.
Það eru liðin 432 ár frá því
straumur þessi varð lýðuin
ljós.
Það var árið 1513 að Ponce
de Leon var á sigliijgu til Flor-
ida. Þrátt fyrir hagstætt leiði,
varð Leon þess var, sér til mik-
illar skapraunar, að skipið rak
aftur á bak. Straumur sá, er
skipið hafði á móti, var sterk-
ari en vindurinn sem þandi út
segl þess. Ponce de Leon hafði
komist í Golfstrauminn.
Farþegaskipin ensku, er
sigldu á milli nýlendnanna í
Norður-Ameríku og Englands,
töfðust oft svo lengi í vestur-
förum, að nefnd var skipuð til
að finna orsakir þess ef mögu-
legt væri. Formaður nefndar
þessarar var Benjamín Frank-
lín.
Franklín settist ekki við
skrifborð sitt og fór að athuga
gamla landfræðilega upp-
drætti. Hann lét í haf og ákvað
að gera sjálfstæðar athuganir
þessu a^útandi. Hann talaði við
hvalveiðamenn, gerði rannsókn-
ir og teiknaði fyrsta kortið í
Golfstmumnum.
Benjamín Franklín sá með
18
HEIMILISRITIÐ