Heimilisritið - 01.10.1945, Blaðsíða 47
málum Þjóðverja, að draga svo
stórar byssur með slíkum
hraða?
Loks nemum við staðar. Virki
með sex þumlunga byssum, sem
falið er undir trjám í aldingarði
hægra megin vegarins, þrumar
í ákafa. Nú sjáum við yfir
Scheldedalinn og Slíðarnar
handan árinnar blasa yið. Fall-
byssuskotin leiftra og augna-
bliki síðar gýs upp mökkur yfir
í hlíðinni, þar sem kúlurnar
springa. Foringi einn segir mér,
að skothríðinni sé beint á veg-
inn að baki óvinahersins. Það
er hægt að sjá vegarbugðurnar
í hlíðinni hinum megin á reykj-
argusum sprengikúlnanna.
Við ryðjumst út úr bílnum,
en óðara kemur einhver og skip-
ar okkur að hörfa til baka, við
séum hér hlífðarlausir. Óvina-
flugvélar eða sprengikúlur stór-
skotaliðsins geti grandað okx-
ur hér. Við ökum til baka og
snúum síðan beint í vestur og
klífum upp á hæð eina fyrir
fram-an stórskotaliðið, svo að nú
fljúga stórskeytin yfir okkur.
Stórskotaliðið hefur athugana-
stöð í skóginum þama uppi á
hæðinni. Við sitjum i brekkunni
og horfum fram á milli trjánna
til yígvallarins.
En það urðu vonbrigði. Það
var svo lítið, sem sást. Það
var engin leið að greina fót-
gönguliðið, né hvað það hafð-
ist að. Foringi einn segir, að
það berjist fram með ánni
þarna fyrir neðan. Bandamenn
haldi enn báðurn bökkum ár-
innar, en séu að hörfa með lið
sitt yfir hana. Hin einu sjá-
anlegu merki þess, að fótgöngu-
liðið sæki fram í orustu, eru
þau, að eldgirðing frá sprengi-
kúlum Þjóðverja þokast áfram.
Nemur svo staðar. Heldur af
stað á ný og nálgast okkur
mjög. Við ályktum af því, að
andstæðingamir hafi gert gagn-
á'hlaup, og þýzka áhlaupsliðið,
sem fylgdi eftir sprengjuhríð-
inni, verði að endurtaka leik-
inn. Foringi einn frá Vilhelm-
strasse, en viðvaningur á víg-
velli, fullyrðir, að hann sjái fót-
gönguliðið. Ég þreif kíkinn.
Enginn maður sést.
Við sjáum á reyknum frá
sprengjukúlunum, sem dynja í
hlíðinni handan yið Schelde,'^
að Þjóðverjar valdá gífurleg-
um spjöllum á samgönguleið-
um á bak við herlínu andstæð-
inganna. í kíki má gerla sjá,
hvernig þeir skjóta veginn
sundur og fylgja hverri bugðu.
Eftir stundarkorn liggur sam-
felldur reykjiarmökkur yfir
hlíðinni. Fram til þessa hafa
ekki farið miklar sögur af
þætti stórskotaliðsins í • hinni
furðulegu framsókn Þjóðverja.
HEIMILISRITIÐ
45-