Fjarðarpósturinn - 03.10.2013, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. október 2013
Sorptunnustandar
Standarnir eru fyrir tvær tunnur og hægt að festa
þeim hvort sem er á stétt eða í vegg.
Auðvelt er að ná tunnum og ganga frá í standinn.
Fyrir framan tunnurnar er slá
sem einfalt er að opna og loka að.
Standarnir eru heitgalvaniseraðir og einnig er hægt
að fá þá duftlakkaða í nokkrum litum.
Upplýsingar og pantanir í síma 565 2378
Fjarðarstál ehf
Eyrartröð 6 Hafnarfirði fjardarstal@fjardarstal.is
Í mínum huga er Fjarðar
pósturinn og Guðni, ritstjóri
hans, órjúfanleg heild. Fjarðar
póst urinn (og þar með Guðni) er
svona eins og náinn ættingi.
Stundum finnst manni hann
óskap lega fyndinn og stundum
fer hann líka alveg fer
lega í taugarnar á
manni. En það breytir
því ekki að manni þyk
ir vænt um hann.
Það fyrsta sem mér
dettur í hug þegar ég
hugsa til Fjarðar pósts
ins er að hann sé órjúf
an legur hluti fimmtu
daganna hjá mér og
reyndar síðari hluta
mið vikudaganna líka síðan að
blaðið fór að birtast rafrænt
deginum áður en því er dreift til
okkar inn um lúguna.
Ég er nú yfirleitt búin að
skanna blaðið áður en það berst
mér í hendur og þá er alltaf jafn
spennandi að skoða hvað Guðna
hafi nú dottið í hug að setja sem
forsíðumynd og hvað hann geri
nú að umtalsefni í leiðaranum.
Guðni er duglegur að
láta okkur í bæjar
stjórn inni heyra það
þegar honum mislíkar
eitthvað af því sem við
erum að gera og líka
það sem við erum ekki
að gera. Guðni hefur
ávallt verið málsvari
op innar og gegn sæjar
stjórnsýslu og það er
kannski vegna þess
hversu ötull hann hefur verið að
tuða í okkur hérna í bæjar póli
tíkinni að Hafnar fjörð ur varð
fyrst sveitar félaga til að láta gögn
fylgja með í fund ar gerðum. Við
hjá Hafn ar fjarðarbæ erum langt
á undan öðrum sveitarfélögum í
þeim efnum.
Það er mikil ábyrgð að gefa út
bæjarblað eins og Fjarðarpóstinn
sem borið er inn á hvert heimili í
bænum. Það lesa meira og minna
allir blaðið og hafa skoðun á því
sem þar er skrifað. Fjarðar póst
urinn er því órjúfanlegur hluti af
bæjarmenningunni. Það er því
ánægjulegt að geta nú farið inn á
timarit.is og skoða öll 1170 tölu
blöðin sem gefin hafa verið út frá
upphafi til 15. ágúst sl.
Fjarðarpósturinn, innilega til
hamingju með þennan merka
áfanga. Það er afrek að halda úti
bæjarblaði í heil 30 ár, megir þú
vaxa og dafna í a.m.k. önnur 30
ár!
Bestu afmæliskveðjur,
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir, bæjarstjóri
Til hamingju með afmælið!
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Starfsmaður í mötuneyti
Hlutastarf
IÐNSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI
Iðnskólinn í Hafnarfirði óskar eftir að ráða
starfsmann í mötuneyti skólans.
Um er að ræða hlutastarf milli kl. 13:00 og 16:00,
mánudaga til og með fimmtudaga,
á kennslutíma skólans. Starfið felst í vinnu við
að afgreiða í mötuneytinu og ganga frá í matsal
nemenda og starfsfólks. Næsti yfirmaður er
umsjónarmaður mötuneytisins
Umsókn þarf ekki að vera á sérstöku eyðublaði.
Með umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um
fyrri störf, meðmælendur og menntun. Umsóknir
skal senda til skólameistara á netfangið arsaell@
idnskolinn.is eða á heimilisfang skólans: Iðnskólinn
í Hafnarfirði, Flatahrauni 12, 220 Hafnarfjörður.
Umsóknarfrestur er til 10. október 2013.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi SFR.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ársæll
Guðmundsson, skólameistari á netfang inu arsaell@
idnskolinn.is. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef
staðan losnar á ný.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á
heimasíðu hans www.idnskolinn.is
Skólameistari
Stofnendur Fjarðarpóstsins
voru allt kennarar í Öldutúns
skóla. Þetta voru þeir:
Ellert Borgar Þorvaldsson,
Guðmundur Sveinsson og
Rúnar Brynjólfsson.
Gáfu þeir út blaðið til 1. mars
1988 er Fríða Proppé keypti
reksturinn og gaf hún blaðið út
til júní 1993 er blaðið lagðist í
dvala til októbers 1994 er nýir
aðilar tóku við rekstrinum,
Fjarðarpósturinn hf. Rak
fyrirtækið blaðið til mars 1996
er rekstur blaðsins var sam
einað ur undir nafni Almiðlunar
ehf. sem rak blaðið þar til
núverandi rekstraraðili, Keilir
útgáfufélag, tók við blaðinu í
nóvember 2001. Frá því hefur
Hönnunarhúsið ehf. séð um
útgáfustarfsemina sjálfa og
ritstjórn blaðsins.
Ritstjórar blaðsins hafa
verið átta frá upphafi:
Guðmundur Sveinsson, frá
sept. 1983 ágúst 1986
Rúnar Brynjólfsson, frá
ágúst 1986 apríl 1988.
Fríða Proppé, frá mars 1988
til júní 1993.
Friðrik Indriðason, frá okt.
1994 mars 1996.
Sæmundur Stefánsson, frá
apríl 1996 júní 1997.
Hólmfríður Þórisdóttir, frá
júní 1997 sept. 1998.
Halldór Árni Sveinsson, frá
sept. 1998 til nóv. 2001.
Guðni Gíslason, frá nóv.
2001.
Átta ritstjórar frá upphafi
Leitaðu:
„Fjarðarpósturinn“
Óskum Fjarðarpóstinum til hamingju með 30 ára afmælið!
Kaplahrauni 5 | www.hella.is
Óskum Fjarðarpóstinum til hamingju með 30 ára afmælið!
Strandgötu 24 | www.raudikrossinn.is/hafnarfjordur