Fjarðarpósturinn - 03.10.2013, Side 5
www.fjardarposturinn.is 5 Fimmtudagur 3. október 2013
Rokktríóið
The Vintage
Caravan
Rokktríóið The Vintage Cara
van hefur gert útgáfu samning
við Nuclear Blast frá Þýska landi
sem er stærsta sjálf stæða þunga
rokksútgáfa verald ar. Á meðal
þekktra hljóm sveita sem eru á
mála hjá fyrirtækinu eru Sepul
tura, Anth rax, Soulfly, Bio
hazard, Exodus og Overkill.
Samningurinn gerir ráð fyrir
að næstu plötur the Vintage
Caravan komi út hjá Nuclear
Blast. Einnig er stefnt á að önnur
plata sveitarinnar, Voy age sem
kom út hjá Senu í fyrra, komi út
í janúar um allan heim í nýjum
umbúðum.
Auk þessa hefur tríóið gert
samn ing við austurríska bók
unar skrifstofu. Hljómsveitin
spilar á Roadburnhátíðinni í
Hollandi í apríl og líklega fer hún
í tónleikaferðalag í janúar þegar
platan kemur út.
Næstu tónleikar verða í Kapla
krika á laugardag á hátíðinni
Rokk jötnar 2013.
The Vintage Caravan sækir
innblástur sinn í klassískt rokk
frá árunum í krinum 1970,
sveitum á borð við Led Zeppelin,
Cream, Deep Purple, Jimi
Hendrix, Trúbrot og Óðmenn.
Hljómsveitin hét upplega The
Vintage og tók þátt í Músík
tilraunum árið 2009 þar sem hún
lenti í þriðja sæti. Haustið 2010
breyttist nafnið í The Vintage
Caravan og sveitin spilaði á
Iceland Airwaves. Hljómsveitin
sigraði í undankeppni Glopal
Battle of the Bands hér á landi í
fyrra.
Í sveitinni eru Óskar Logi
Ágústsson gítarleikari og söngv
ari, Alexander Örn Númason
bassaleikari og Guðjón Reynis
son trommari. Strákarnir eru úr
Hafnarfirði og af Álftanesi.
Enn er
tilboðum
hafnað
Ás fsteignasala, fyrir hönd
óstofnaðs hlutafélags, gerði
Hafnar fjarð ar bæ tilboð í
eignirnar Strand götu 31 og
Strandgötu 33. Bæjar ráð
synjaði tilboðinu eins og það lá
fyrir en það hafði áður hafnað
tilboði sem þótti of lágt.
Hafnarfjarðarbær hefur um
nokkurt skeið haft þessar eignir
til sölu en ennþá án árangurs.
Vinstri beygja bönnuð
Á síðasta fundi skipulags og
byggingarráðs var tekin fyrir
nýju tillaga Skipulags og bygg
ingarsviðs frá 5. júlí sl.um lag
fær ingar á gatnamótum Hjalla
hrauns og Fjarðarhrauns.
Undirbúningshópur um ferð ar
mála samþykkti fyrir liggjandi
tillögu og fól sviðinu að ræða við
Vegagerðina um fram kvæmda
tíma.
Skipulags og byggingarsviði
var falið að hefja undirbúning
deiliskipulags í samræmi við
tillöguna. Verður gerð aðrein inn
á Fjarðarhraunið frá Hjallahrauni
en vinstri beygja af Hjallahrauni
verður bönnuð. Það þýðir að nú
verður allri umferð úr hverfinu,
sem ætlar til norðurs, beint út að
Flatahrauni eða út á Reykja
víkurveg.