Fjarðarpósturinn - 03.10.2013, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. október 2013
Unglingahópur, bæði drengir
og stúlkur, hafa gengið ber
serks gang um Kinnarnar í um
78 vikur. Hópurinn hefur gert
dyraat og kast að eggjum að
húsum og valdið skemmdum á
eigum íbúa í hverfinu. Virðist
þetta alltaf gerast á tveggja
vikna fresti á föstudögum,
síðast sl. föstudag um kl. 910
um kvöld ið.
Íbúi í hverfinu segir þetta
vera hóp um 1015 krakka á
aldrinum 1315 ára. Segir hann
sum þeirra haga sér eins og þau
séu undir áhrifum áfengis og sé
lítið sem lögreglan geti gert og
hafi lítil áhrif á þennan hóp en
lögreglan hafi þó gert sitt besta
við að vakta hverfið.
„Þessi hópur gengur í gegnum
hverfið upp að Öldutúnsskóla
og hefur aðsetur þar fyrir utan
og eru með bæði hávaða og
valda miklu ónæði þar í kring.“
Segir íbúinn þetta ekki í fyrsta
sinn sem unglingahópar ganga
um hverfið. Í gegnum árin hafi
þó nokkrir hópar gengið í
gegnum hverfið frá videó leig
unni og upp eftir en aldrei verið
til neinna vandræða og verið til
fyrirmyndar.
Segir hann leiðinlegt að
svona skemmd epli og óeirðar
seggir skuli vera að skemma og
eyðileggja svona fallegt og
friðsælt hverfi eins og Kinn
arnar hafi verið í gegnum árin.
Foreldrar eru hvattir til að
ræða við börnin sín um
mikilvægi góðs samfélags og
hvetja þau til að sýna andstöðu
við svona andfélagslega hegðun.
Valda usla í Kinnunum
Hópur unglinga ergir íbúa og skemmir
Það er mikils virði í
bæjarfélagi eins og Hafnarfirði
að reglulega komi út blað með
fréttum úr bæjarlífinu.
Og það viku eftir viku,
ár eftir ár. Um áratuga
skeið hefur Fjarðar
pósturinn gefið okkur
innsýn í mannlíf,
menningu, stjórnmál
og íþróttalíf samfélags
ins. Fjallað um hugð
ar efni bæjarbúa og
helstu viðfangsefnin
hverju sinni. Þá er það
mikill kostur að ritstjórn blaðs
ins keppist við að sýna hlutleysi
í fréttaumfjöllun, en um leið
veita ríkjandi stjórnendum
bæjar ins hverju sinni aðhald, en
slíkt er mjög mikilvægt. Fjarðar
pósturinn hefur reynst öflugur
miðill og menn og málefni átt
greiðan aðgang að því að fá þar
birtar greinar, myndir
og annað efni sem
erindi á til bæjarbúa.
Blaðið hefur verið
mikil vægur vett vangur
í bæjar mála umræð
unni og iðulega hafa á
síðum blaðsins átt sér
stað góð og gagn leg
skoðanaskipti um hin
ýmsu mál sem tengjast
velferð og hagsmunum
bæjarbúa. Þar með hefur það
lagt mikið að mörkum sem vett
vangur lýðræðislegrar umræðu.
Um tíma var blaðið selt en nú
um langt árabil hefur því verið
dreift ókeypis, sem tryggir
útbreiðsluna. Ég hef um ára
tuga skeið verið dyggur lesandi
Fjarðarpóstinn og veit að hið
sama á við um fjölmarga aðra,
ef ekki flesta Hafnfirðinga. Allir
sem tengst hafa fjölmiðlun eða
rekstri af ýmsu tagi vita að það
er hægara sagt en gert að gefa út
blað sem þetta. Það þarf úthald,
seiglu, mikinn dugnað og
áhuga. Því ber að fagna sérs
taklega þessum ánægjulega og
merka áfanga með aðstand
endum blaðsins. Óhætt er að
segja að blaðið eldist vel og
vonandi munu næstu ár vera
blaðinu jafn heilladrjúg og þau
sem nú eru liðin. Til hamingju
með 30 ára afmælið!
Höfundur er bæjarfulltrúi.
Fjarðarpósturinn
– mikilvægur samfélagsspegill
Rósa
Guðbjartsdóttir
til hamingju með 30 ára afmælið.
Takk fyrir samstarfið
Almenn bókhaldsþjónusta – Stofnun félaga – Ársreikningar – Skattframtöl
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði – www.3skref.is – 3skref@3skref.is
Þín velgengni - okkar hagur
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n