Fjarðarpósturinn - 03.10.2013, Qupperneq 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. október 2013
Tré og runnar
...í garðinn þinn
Kaldárselsvegi • sími 555 6455
Upplagt tækifæri til að hitta bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og aðra flokksmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði
alla laugardagsmorgna í vetur milli kl. 10 og 12
í Sjálfstæðisheimilinu að Norðurbakka 1
Laugardagskaffi
„Loksins nýr veitingastaður í
miðbænum,“ gæti einhver sagt
en á undanförnum árum hafa
flestir nýir veitingastaðir í
Hafnarfirði verið opnaðir í
iðnaðar og þjónustuhverfum í
Hraun unum, frá Reykja víkur
vegi að Bæjarhrauni. Stjarnan,
sem á og rekur Subway staðina,
ætlar að opna nýjan stað í
húsnæði þar sem Íslandsbanki
var áður og tilheyrir Fjarðar göt
unni.
Bætist þessi staður við
nýuppfrískaðan Subway stað
hjá N1 á Reykjavíkurvegi og
verður eflaust kærkomin viðbót
í miðbænum.
Nýi staðurinn verður um 100
m² stór og er áætlað að opna í
nóvember nk.
Nýr Subway staður brátt
opnaður í miðbænum
Flestir veitingastaðir á Hraununum
Það er alltaf hátíð á Bessa
stöðum þegar skátar taka við
For setamerkinu úr höndum
forseta Íslands. Forseti Íslands
hefur afhent merkið frá 1965 er
það var fyrst afhent í Bessa
staðakirkju. Rekkaskátar, sem
eru skátar á aldrinum 1618 ára
vinna sérstaklega að verkefninu
og þeir einir sem ná að uppfylla
fjölbreytt og krefjandi skilyrði
fá merkið.
Sl. laugardag fengu 18 skátar
Forsetamerkið og koma þeir úr
skátafélögunum Hraunbúum í
Hafnar firði, Kópum í Kóp
avogi, Klakki á Akureyri,
Svön um á Álftanesi, Vífli í
Garðabæ og Strók í Hveragerði.
Hafnfirðingarnir sem fengu
merk ið voru fjórir, Dóra
Magnea Hermannsdóttir, Krist
inn Jón Arnarson, Rúnar Geir
Guðjónsson og Sigurrós Arnar
dóttir en þau eru öll í Skáta
félaginu Hraunbúum.
Forsetinn afhenti merkin
Fjórir hafnfirskir skátar fengu afhent Forestamerkið
Systkinin Sigurrós og Kristinn Jón með forseta Íslands.
Allir mæta samkvæmis klædd
ir á dansleiki hjá félaginu Kátu
fólki, konur koma í síðum
kjólum, karlar í smoking, í hvítri
skyrtu með svarta þverslaufu.
Í lögum félagsins síðan 1949
segir: „Stefna félagsins er að
halda dansskemmtanir fyrir
félags menn er séu í senn prúð
mann legar, frjálsar og ódýrar.
Þannig skuldbinda félagsmenn
sig til að vera ekki með víni, þá
er þeir mæta á skemmtunum
félagsins, né heldur neyta þar
áfengis á nokkurn hátt. Brot á
þessu grund vallaratriði félagsins
varð ar brottrekstri þaðan að fullu
og öllu. Áhersla skal lögð á gott
svigrúm á skemmtunum félags
ins og að þær hefjist stundvíslega.
Þar þúast allir og allir mæta
samkvæmisklæddir. Félags
mönnum er aðeins heimilt að
taka með sér eina dömu á félags
skemmtanir. Karlar eru aðeins
félagar“
Hafnfirskir formenn í 36 ár
Gaman er að geta þess að
síðustu 36 ár hafa Hafnfirðingar
verið formenn félagsins. Boði
Björnsson, Hafsteinn Sigurðsson
og nú Hilmar Kristensson.
Hilmar býður áhugasömum að
koma og kynna þér félags
skapinn, jafnvel taka frúna með
og stíga nokkur dansspor í
þessum einstaka félagsskap.
Næsta skemmtun Káts fólks er
19. október í Haukahúsinu og
hefst hún kl. 20. Undanfarin ár
hafa skemmtanir félagsins verið
haldnar í veislusalnum að Ás
völlum.
Nánari upplýsingar um félagið
má fá hjá Hilmari í s. 820 3446
og á www.harnason.is/kattfolk
og á Facebook.
Kátt fólk er 65 ára
Sídansandi og kátt fólk án áfengis
Lj
ós
m
.:
K
át
t f
ól
k
F.v.: Sigurrós Arnar dóttir, Rúnar Geir Guðjónsson, Krist inn Jón Arnarson og Dóra Magnea
Hermannsdóttir, öll skátar úr Hraunbúum.
Lj
ós
m
.:
K
ris
tja
na
Þ
ór
dí
s
Á
sg
ei
rs
dó
tti
r
Lj
ós
m
.:
K
ris
tja
na
Þ
ór
dí
s
Á
sg
ei
rs
dó
tti
r
Kvöldganga á skógarstígum
Krabbameinsfélag Hafnar
fjarðar og Skógræktarfélag
Hafn ar fjarðar bjóða til skógar
göngu nk. þriðjudag, 8. október,
kl. 19.30. Safnast verður saman
við Gróðrarstöðina Þöll við
Kaldársselsveg og þaðan verður
gengið um skógarsvæði Skóg
ræktarfélags Hafnarfjarðar.
Við upphaf göngunnar flytur
formaður Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar, Anna Borg, stutt
ávarp og að því loknu mun
Steinar Björgvinsson, skóg
fræð ingur, vera með leiðsögn
um skóginn. Gert er ráð fyrir að
skógargangan taki um eina
klukkustund og að henni lok
inni verður boðið upp á súkku
laði og meðlæti í húsakynnum
Þallar.
Krabbameinsfélag Hafn
arfjarðar og Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar, hvetja sem flesta
til að taka þátt í kvöldgöngu um
skóginn. Göngufólk er beðið að
taka með sér ljósfæri þar sem
skuggsýnt er orðið.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n