Fjarðarpósturinn - 03.10.2013, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. október 2013
umsækjandi verkefni kr.
Jafnréttishús Samfélagsverkefni fyrir félagslega einangraðar konur 2.830.000
Flensborgarskóli (HÁS) Efling netmiðilins gaflari.is 2.000.000
Halldór Árni Sveinsson Þau byggðu bæinn, viðtalsþættir 2.000.000
Halldór Árni Sveinsson Heimildarmynd um 100 ára afmæli Hafnarfjarðar 2.000.000
Leikhópurinn Draumsmiðjan Elskuleg móðir mín, uppsetning
leiksýningar 1.000.000
Inga María Eyjólfsdóttir Leikaranám í CISPA, skólagjöld 1.000.000
Halldór Árni Sveinsson Afritun og skráning heildarsafns kvikmynda-
og hljóðupptaka. 1.000.000
Leikfélag Hafnarfjarðar Beiðni um árlegan styrk 800.000
MeginMál ehf Árangursríkari velferðarþjónusta, úttekt og mat 600.000
Lárus Vilhjálmsson Unglingurinn. Leikrit um unglinga eftir unglinga 500.000
Hólmfríður Þórisdóttir Frétta- og mannlífsvefur, tæki og hugbúnaður 500.000
Gaflarakórinn Kóramót í Hafnarfirði maí 2014 500.000
Kvennakór Hafnarfjarðar Tónleikahald 2013-2014 og þátttaka í Landsmóti
íslenskra kóra 300.000
Jónína Björk Óskarsdóttir Orlofsferð eldri borgara 2014 300.000
Hafdís Inga Hinriksdóttir Ráðstefna í Bretlandi um kynferðisofbeldi innan íþrótta 250.000
Karlakórinn Þrestir Konudagstónleikar 200.000
Sjálfsbjörg Rekstrarstyrkur 2014 100.000
Karlakór eldir Þrasta Almennur rekstrarstyrkur 100.000
Hagsmunasamtök heimilanna Fjárstyrkur vegna málsókna óskilgreint
Skáksamband Íslands Evrópumót landsliða í skák 2013 óskilgreint
Samtals 15.980.000
Ásókn í styrki bæjarráðs
Sótt um 16 milljónir til 20 verkefna
Alls var sótt um styrk til 20
verkefna þegar bæjarráð
auglýsti eftir styrkumsóknum í
annað og síðara skipti á þessu
ári. Alls eru til úthlutunar 2,5
milljónir kr. en aðeins nú var
sótt um tæpar 16 milljónir kr.
Því er ljóst að margir fá höfnun.
Bæjarráð mun ljúka úthlutun
fyrir 1. desember nk.
Bæjarráð Hafnarfjarðar sam
þykkti á fundi sínum sl. fimmtu
dag að veita Icelandair ehf.
vilyrði fyrir 16 þúsund m² lóð á
milli Selhellu 1 og Tjarnarvalla
15. Er þetta frá gangstígnum að
nýju undir göngunum og að þeim
stað sem gamli Krýsuvíkur veg
urinn var.
Hefur bæjarráð falið skipu
lags og byggingarfulltrúa að
vinna úr skipulagsþáttum um
sókn arinnar en til þess að hægt
verði að úthluta þessari lóð þarf
að breyta aðalskipulagi og í
fram haldi af því deili skipulagi.
Skv. upplýsingum Hlyns
Elías sonar, framkvæmdastjóra
fjára málasviðs Icelandair, er
stefnt að því að byggja 1.500 m²
hús sem hýsa á nýja flugherminn
fyrir Boeing 757 flugvélar sem
félagið hefur keypt. Þar á einnig
að sameina þjálfurnar og kennu
setur sem hefur verið á á fleiri en
einum stað.
Stefnt er að því að flug herm
inn verði tekinn í notkun haustið
2014 en undir hann þarf 10 m
hátt húsnæði. Ekki er fyrirhugað
að flytja höfuðstöðvar Icelandair
á þennan stað eins og vangaveltur
voru um er félagið fékk vilyrði
fyrir lóðinni Tjarnarvellir 7.
Hlynur segir félagið vilja tryggja
sér stóra lóð til að eiga stækk
unarmöguleika í fram tíðinni en
vilji sé fyrir því að hafa starfsemina
á færri stöðum en nú er.
Fær lækkun á
gatnagerðargjöldum
Í samþykkt bæjarráðs sem fá
þarf staðfestingu bæjarstjórnar,
er bæjarráði heimilað að beita
ákvæðum 6 g. samþykktar um
gatnagerðargjöld og nýta sér
staka lækkunarheimilda vegna
lóðarinnar þar sem þarna verð
ur sérstök atvinnuupp bygging.
Fullkominn flughermir
Flughermirinn er af gerðinni
B757 „Level D“ sem er ná kvæm
eftirlíking af stjórn klefa Boeing
757 flugvélar eins og Icelandair
notar í sínum flugrekstri. Flug
hermirinn líkir eftir flugeigin
leikum vélanna og unnt er að
kalla fram margháttaðar bilanir
og óvæntar aðstæður og þjálfa
viðbrögð flugmanna, sem og
þjálfa flug við breytileg veður
skilyrði til að reyna á þjálfun
þeirra.
Flughermirinn er með mjög
fullkomnum myndvörpum sem
líkja eftir útsýni úr flugstjórnar
klefa og á tjökkum sem hreyfa
hann og skapa þá tilfinningu hjá
flugmönnum að þeir séu að
fljúga við raunverulegar að
stæður. Flughermir af þessari
gerð hreyfist á tjökkum sem eru
rafdrifnir í stað vökvadrifinna
tjakka sem eldri flughermar
hreyf ast á, en slíkir flughermar
nota mun minni orku en þeir
eldri og eru því umhverfisvænni.
Icelandair vill 16 þúsund m² lóð
Vilja reisa hús undir nýjan flughermi og þjálfunarsetur
Nálega á þessu svæði sækir Icelandair um 16.000 m² sem er eitthvað minni en guli reiturinn.
Ný undirgöng
Se
lh
el
la
Gamli
Krýsuvíkurvegurinn
Bónus
Reykja
nesbra
ut
Tjar
narv
ellir
Ásbrau
t
Starfsfólk og íbúar á Hverfisgötu 29
sameinast í bílskúrssölu
helgina 5-6. október kl. 11-17
Starfsfólk er að safna í ferðasjóð og íbúar í skemmtisjóð. Því
er um að gera að styrkja gott málefni og mæta á staðinn.
Það verða ótrúlegustu hlutir til sölu barnaföt, dvd myndir,
ferðaklósett, nýtísku föt, björgunarvesti, hundabúr og ýmis
raftæki og svo auðvitað kaffi og með því á klink. Lj
ós
m
.:
Ic
el
an
da
ir
Sigurður Haraldsson, for
maður frjálsíþróttadeildar FH
og formaður mann virkja nefnd
ar Frjálsíþróttasambands Íslans,
FRÍ, lauk í byrjun september
sl., námskeiði og prófi sem
veitir honum alþjóðleg dómara
réttindi í frjálsum íþróttum.
Sigurður sótti námskeið
Level II TOECS námskeiða á
veg um Alþjóðafrjáls íþrótta
sam bandsins, IAAF, í Lissabon
3. 8. september sl., en þar fór
líka fram mat á hæfni ein stakl
inganna.
Aðrir Íslendingar sem hafa
haft þessi réttindi áður eru:
Birgir Guðjónsson, sem var for
maður laga og síðar tækni
nefndar FRÍ í um þrjá áratugi
og Þorsteinn Þorsteinsson sem
nú gegnir formennsku í tækni
nefnd sambandsins.
Sigurður er eini Íslendingur
inn sem lokið hefur þessu prófi.
Sigurður er byggingaverk
fræðingur og er starfandi sviðs
stjóri umhverfis og fram
kvæmda hjá Hafnarfjarðarbæ.
Sigurður fékk alþjóðleg
dómararéttindi