Fjarðarpósturinn - 03.10.2013, Síða 18
18 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 3. október 2013
húsnæði í boði
Til leigu 3ja herbergja 103 m²
íbúð í Norðurbænum, laus strax.
Óskað er eftir bankaábyrgð. Leiga
160 þús. pr. mánuð. Áhugasamir
sendi póst á leigahafn@gmail.com
Studíóíbúð til leigu í Setberginu.
Ca. 36m², laus strax. Uppl. í síma
896 5448, Georg.
þjónusta
Kaupi bilaðar gamlar þvottavélar
og þurrkara. Þó ekki eldri en 8-10
ára. Uppl. í s. 772 2049.
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 849 6827 -
hjalp@gudnason.is
Fallegar neglur - gott verð.
Gel neglur með frens og án. Gel á
þínar eigin neglur. Gyða, s. 899 0760.
Vertu á velbónuðum bíl í vetur.
Alþrif, djúphreinsun, bón. Kem og
sæki. Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
til sölu
Bútasaumur. Til sölu bútasaums-
efni og verkfæri og ýmislegt annað.
Uppl. eftir kl. 19 í síma 557 7664.
6 yndislegir hvolpar undan Jarðar
Heru og C.I.E. SLO CH ISShCh
Vadászfai Oportó. Spennandi got
sem vert er að skoða. 1. einkunnar
hundar og rakkinn sá stigahæsti á
landi i sínum flokki. Áhugasamir hafi
samb. við Árna Gunnar í s. 861
1369 eða í jardarhera@gmail.com.
Sjá „Jarðar Hera“ á Facebook.
gefins
Stór hillusamstæða gefins. Með
skúffum og skápum og einni
glerhurð. Uppl. í síma 693 2304
tapað - fundið
Svört Modan skólataska m/stórri
mynd af fótbolta framan á,
tapaðist 13. sept. sl. Í töskunni er
lestrar bók, skór, nesti og föt. Merkt
Adam Óli. Ef einhver hefur séð
töskuna, vins. látið vita í síma 662
3955, Díana Ósk.
Prjóna- og handavinnukvöld
Í kvöld, fimmtudaginn kl. 20 verður
prjóna- og handvinnukvöld í Vonar-
höfn (gengið inn Suðurgötumegin),
frítt te og kaffi, frjálst að koma með
meðlæti.
Ganga um Suðurbæinn
Á laugardaginn kl. 10 stendur Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjarðar fyrir göngu
um Suðurbæinn. Hugað verður að
trjágróðri í görðum bæjarbúa. Mæld
verða stærstu tréin sem á vegi
göngufólks verða og skoðað hvaða
tegundir garðagróðurs leynast bakvið
garðveggina. Gangan hefst við
Suður bæjarlaug og tekur um tvo tíma.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
sovétska myndin Tíu dagar sem
skópu heiminn, frá 1028. Aukamynd;
Leningrad, vagga byltingarinnar.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
sovétska myndin Farðu og sjáðu, frá
1985. Íslenskur texti. Ókeypis er inn á
þessar sýningar.
Skógarganga
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða
til skógargöngu nk. þriðjudag kl.
19.30. Farið frá Gróðrarstöðinni Þöll
við Kaldárselsveg. Stutt ávarp og
Steinar Björgvinsson skógfræðingur
verður með leiðsögn um skóginn.
Boðið upp á súkkulaði og meðlæti í
húsakynnum Þallar í lokin. Göngufólk
er beðið um að taka með sér ljósfæri
þar sem skuggsýnt er orðið.
Haustsýning Hafnarborgar
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
Vísar – húsin í húsinu.
Sendið stuttar tilkynningar á
ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Það var góð stemmning í
Íþróttahúsinu við Strandgötu sl.
laugardag er ÍH tók á móti Fjölni
í sínum fyrsta heimaleik í 1.
deild karla í handbolta. Áhorf
endur voru nokkur hundruð og
létu ÍHingar stuðningsmenn
sína ekki verða fyrir vonbrigðum
og stóðu sig mjög vel gegn
Fjölni sem einnig sigraði í sínum
fyrsta leik.
Leikmenn ÍH léku mjög vel og
ekki var að sjá að þarna færi nýtt
lið í handbolta. Leikmennirnir
eru heldur engir nýgræðingar í
handbolta og koma m.a. frá FH í
krafti samstarfs félaganna.
Leiknum lauk með 2621 sigri
ÍH. Theodór Ingi Pálmason var
markahæstur með þrjú mörk.
Fjölmargir fylgdust með ÍH
sigra Fjölni á Strandgötunni
Fyrsti heimaleikurinn var á laugardaginn á Strandgötu
Dalshrauni 16 • Hafnarfirði
www.dekkjasalan.is | 587 3757
DEKKJAVERKSTÆÐI
NÝ DEKK NOTUÐ DEKK
FELGUR PÓLÝHÚÐUN
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA!
Við leysum málið!
Rósa í stjórn
Íbúðalánasjóðs
Félags og húsnæðismála
ráðherra hefur skipað Rósu
Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúa í
Hafnarfirði sem varaformann
Íbúðalánasjóðs eftir að nú ver
andi varaformaður hafði beðist
lausnar.
smáauglýsingar aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r. Ta pað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
Flestir á
löglegum hraða
Brot 5 ökumanna voru mynd
uð á Drekavöllum í Hafnarfirði á
þriðjudag. Á einni klukkustund,
fóru 26 ökutæki þessa akstursleið
og því ók tæp lega fimmtungur
ökumanna, eða 19%, of hratt eða
yfir af skipta hraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var 41 km/klst en
þarna er 30 km hámarkshraði. Sá
sem hraðast ók mældist á 46.
ÍHmenn fögnuðu vel sigrinum á Fjölni.
Stefán Tómas Þórarinsson skorar eitt þriggja marka sinna.
Bjarki Jónsson skorar eitt
þriggja marka sinna.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
bæjarblað Hafnrðinga 1983 – 2013