Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.10.2013, Page 6

Fjarðarpósturinn - 24.10.2013, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 24. október 2013 F R U M - w w w .f ru m .i s Veldu FRAMÚRSKARANDI þjónustu í þínum fasteignaviðskiptum Rúnar S. Gíslason hdl. Lögg. fasteignasali Ágúst Valsson Viðskiptafr. / Sölufulltrúi hringdu núna 611 6660 „Ég þekki fasteigna- markaðinn vel í Firðinum. Ég er fjölskyldumaður og bý í Hafnarfirði.“ Allar viðgerðir á einum stað fyrir bílinn Bremsuviðgerðir, rúðuskipti, tímareimar, demparar, stýrisendar, spindilkúlur, hjólalegur o.fl. o.fl. Dekk undir alla bíla Bílaverkstæði Birgis Guðnasonar Eyrartröð 8, Hafnarfirði • s. 466 2592, 893 7203 Aðalfundur Starfsmannafélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 24. október kl. 20:00 í sal Víðistaðaskóla, Hrauntungu 7. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf. • Lagabreytingar • Önnur mál. Félagsmenn fjölmennið! Stjórn Starfsmannafélags Hafnarfjarðar Nýtt íþróttahús og fjórar skóla­ stofur við Áslandsskóla er for­ gangs mál hjá meirihluta bæjar­ stjórnar Hafnarfjarðar sem hefur ákveðið að 40 milljónir króna fari í verkið á þessu ári. Heildar­ kostnaður er áætlaður um 600 milljónir en hingað til hafa þrjár lausar skólastofur leyst bráðasta húsnæðis­ vanda skólans. Sam­ kvæmt spám um íbúa­ þróun og nemenda­ fjölda verður jafnvægi náð í hverfinu innan 10 ára og að þá verði um 400 nemendur í Ás lands skóla sem rúmast í núverandi húsnæði skólans. Sjálfstæðisflokk urinn setur nýjan leikskóla í forgang Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn lögðu á síðasta fundi fram breytingatillögu þess efnis að umrætt fé yrði frekar nýtt til byggingar á leiksskóla að Bjarka rvöllum 3 en það er mat minni hlutans að það sé brýnasta fjárfestingaverkefnið. Verkinu verði áfangaskipt og fjármögnun innan þess ramma sem leyfilegur er samkvæmt sveitarstjórnar­ lögum, og fyrsti áfangi tekinn í notkun haustið 2015. Sjálfstæðismenn vilja aukna samvinnu og betri nýtingu skólahúsnæðis Megináhersla Sjálfstæðis­ flokks ins í fræðslumálum er að huga að velferð nemenda og starfs fólks skólanna. Við höfum því lagt til að skoðað verði í sam­ ráði við skólastjórnendur og fagfólk á fræðslusviði hvort nýta megi betur skólahúsnæði í bæn um þannig að skólar taki upp samstarf sín á milli á efsta stigi grunnskóla. Með auknu sam­ starfi mætti hvort tveggja auka valmögu­ leika og nýta skólahús­ næði betur. Við leggj­ um áherslu á að frum­ kvæði og lausnir komi frá skólafólki í þessum efnum. Hvar er fjármagnið sem meirihlutinn lofar? Ekki liggur fyrir nein áætlun um það hvernig meirihluti bæjarstjórnar hyggst fjármagna byggingu við Áslandsskóla né aðrar skólabyggingar sem lagt hefur verið til að ráðast í. Tillög­ urnar eru því aðeins viljayfir lýs­ ing um hvaða áherslur meiri­ hlutinn hefur og á meðan ekki liggur fyrir nein áætlun um fjár­ mögnun eru þær orðin tóm. Hafnarfjörður er fjórða skuldsettasta sveitarfélagið Hafnarfjörður er fjórða skuld­ settasta sveitarfélag landsins með skuldahlutfall yfir 250%. Samkvæmt nýjum lögum ber sveitarfélaginu að greiða niður skuldir næstu 10 ár og ná skulda­ hlutfalli niður fyrir 150%. Til­ lögur okkar sjálfstæðismanna eru raunhæfar og miða við að farið sé að lögum og nýfjárfest­ ingar taki mið af því takmarkaða fjármagni sem er til ráðstöfunar. Höfundur er bæjarfulltrúi. Samfylking og VG setja nýtt íþróttahús í forgang Helga Ingólfsdóttir Þessa dagana sit ég á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn, í fjarveru hins ágæta þingmanns Þorsteins Sæmundssonar. Þetta tækifæri til að taka þátt í innsta hring þingmeirihluta og ríkis­ stjórnar er bæði áhuga vert og lærdómsríkt. Þetta er nefnilega ansi merkilegur tími á þinginu. Ríkisstjórnin er að undirbúa leið­ rétt ingu verðtryggðra skulda og afnám verð trygg ingar, en á sama tíma hamast stjórnar and stæðan á því að reyna að búa fyrirfram til efasemdir um útfærslu þessara tveggja grunnstoða ríkisstjórnar­ samstarfsins – áður en þær eru komnar fram. Sú neikvæðni sem birtist hjá stjórnarandstöðunni, sérlega núver andi forystu Samfylking­ arinn ar, og í fjölmiðlum er í hróp andi andstöðu við þá bjart­ sýni sem ég upplifi innan þing­ flokks Framsóknarflokksins. Ég get sagt það án nokkurs vafa að það er engan bilbug að finna á okkur Framsóknarmönnum. Stjórn ar sáttmáli ríkisstjórnar­ innar er skýr – leiðrétting for­ sendu brestsins og afnám verð­ trygg ingarinnar. Við gerum okkur fulla grein fyrir því af hverju við vorum kosin, og látum ekki nei kvæðni og upphlaup gömlu stjórn málanna stöðva okkur. Þessar tillögur eru útfærðar af nefndum skipuðum sérfræðing­ um, þ.e fyrir utan gömlu hægri/vinstri póli tíkina. Slík stjórn­ mál, byggð á skynsemi og sérfræðiþekkingu, er megin­ stoð Framsóknarflokksins í dag. Þessi nýja nálgun á stjórnmál fær sína eldskírn á næstunni, þegar lausnir á skuldavanda heimilanna verða kynntar. Þörf á nýrri pólitík í bæjarstjórnina? Ég hef lengi fylgst með bæjar­ málum í Hafnarfirði og með hverju deilumálinu sem upp kemur, verð ég sannfærðari um að þörf sé á nýrri nálgun í bæjar­ stjórn Hafnarfjarðar. Það er orðið ansi þreytt að sjá hvert málið af fætur öðru leysast upp í gamal­ dags hægri/vinstri rifr­ ildi. Sú póli tík hefur litlu skilað, sem krist­ all ast í slælegum ár angri við að rétta við fjárhag bæjarins, sam­ an borið við önnur bæjar félög í sama vanda. Gömlu valda­ blokk irnar í Firðinum hafa feng ið sitt tækifæri – og farið illa með það! Því er það mín von og trú að í næstu bæjarstjórnarkosningum muni Framsóknarflokkurinn bjóða upp á nýja nálgun á bæjar­ málin. Stjórnmál byggð á lausn­ um, án tillits til gamaldags hægri/ vinstri hugmyndafræði ­ stjórn­ mál miðjumanna. Höfundur er varaþingmaður og formaður Framsóknar­ félags Hafnarfjarðar. Bjartsýna Framsókn í bæinn Sigurjón Norberg Kjærnested Jólin eru byrjuð í IKEA. Venju samkvæmt byrja þau snemma í Kauptúninu og það er ekki síst með það að markmiði að fólk gefi sér góðan tíma í jólaund ir­ búninginn og geti betur notið að ventunnar með vinum og fjölskyldu. Jólavöruúrvalið er glæsi legt að vanda og þar má finna allt frá merkimiðum á pakk anna og piparkökumótum til jólarúmfata og jólatrjáa. Að sjálf sögðu eru hefðbundnir jólalitir ríkjandi, en fyrir þá sem vilj a breyta til má finna bleikar og gular jólakúlur og silfruð og gyllt jólatré svo eitthvað sé nefnt. Það er tilvalið að hleypa jóla barninu snemma út og njóta svo jólamánaðarins í róleg heit um. Jólastemmningin komin í IKEA

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.