Heimilisritið - 01.08.1950, Page 24
Næstu daga gerðu þau virð-
ingarverðar tilraunir til þess að
vera eðlileg í viðmóti hvort við
annað, en að lokum gat Hugh
ekki afborið þetta lengur og
stakk upp á því, að þau bindu
endi á hveitibrauðsdagana.
Nancy greip uppástunguna feg-
ins hendi, og þau óku saman
til borgarinnar, til hins nýja
heimilis síns, og smátt og smátt
tóku þau að sjá minna og minna
hvort til annars.
ÞANNIG leið um það bil eitt
ár.
Nancy þroskaðist. Ennþá elsk-
aði hún Hugh, en hann hafði
ekki nálgast hana, og hún lét
það ekki eftir sér að stíga nokk-
urt skref til ,,sátta“ né heldur
að bera harma sína upp við
neinn. Fyrr eða seinna, hugsaði
hún, hlyti ást hennar til Hughs
að fara þverrandi — eða deyja
algerlega úr næringarskorti. Að
öðru leyti naut hún hinnar nýju
tilveru sinnar til fullnustu. Þau
áttu nóga peninga, og Nancy
hafði lítið breytzt frá því að hún
var ógift stúlka, svo að allt
hafði ennþá yndistöfra ný-
breytninnar í hennar augum.
Hugh hafði aftur á móti sam-
vizkubit. Framkoma Nancy
gagnvart honum var með öllu
óaðfinnanleg. Hún var nærgæt-
in og hugsaði að öllu leyti um
að láta fara vel um hann. Hið
mikla ósamræmi í hjónabandi
þeirra olli honum hugarangurs
annað slagið; af mörgum smá-
tilefnum varð hann þess á-
skynja, að Nancy elskaði hann
ennþá, og honum varð raun-
verulega augljóst, að hún eyddi
æsku sinni til ónýtis hans
vegna.
ÞAÐ VAR eitt þeirra fáu
kvölda, sem þau eyddu alein
heima. Nancy sat fyrir framan
arininn og drakk kaffið sitt —
með hugsandi augnaráði starði
hún á reykskýin sem bylgjuðu
sig upp í loftið úr sígarettunni.
„Ég þarf að segja þér dálítið
Nancy,“ sagði Hugh hikandi.
,.Ég þarf að fara til Suður-
Ameríku í viðskiptaerindum og
verð að líkindum fjarverandi
um 11—17 mánaða skeið. Lang-
ar þig til að ferðast með mér?“
Hana langaði mest til þess að
hrópa upp yfir sig: „Já, já,
taktu mig með þér — ég get
ekki séð af þér svona lengi!“
en hún stillti sig — hann skyldi
ekki, enn á ný, fá tækifæri til
þess að særa hana.
„Nei, þakka þér fyrir, Hugh,
það held ég ekki. Það fer svo
ágætlega um mig héma heima
og auk þess — á slíku ferðalagi
er maður svo mikið upp á fé-
lagsskap hvors annars kominn.
.2?
HEIMILISRITIÐ