Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 10

Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 10
Það er mjög algengt í dag að ungt fólk í leiguhús- næði fái sér hund eða kött og þarf svo að láta svæfa þau þegar flutt er. Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir hjá Dýraspítalanum í Garðabæ, ásamt hundinum Mikka. Hún segir ekki nóg að gefa hundum að borða og hleypa þeim út að pissa. Hundar hafi stöðuga þörf fyrir félagsskap og væntumþykju eigenda sinna. Ljósmynd/Hari. Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220 www.lindesing.is Dúnmjúkur draumur Við fögnum 12.000 ánægðum viðskiptavinum og bjóðum fleiri í hópinn með risatilboði á sængum. Léttar og hlýjar dúnsængur sem færa þér einstakan svefn. Eingöngu 100% náttúruleg efni, dúnn & bómull. Allur dúnn er hitahreinsaður án kemískra efna. 30% af rúmfötum Áður 34.990 kr Nú 24.990 kr Þú sparar 10.000 kr Stærð: 140x200 Fylling: 100% hvítur dúnn Dúnmagn: 790 gr með hverri dúnsæng Tvöfalt fleiri hundar í þéttbýli nú en fyrir áratug H undum í þéttbýli hefur fjölgað mikið á undan-förnum árum og má sem dæmi nefna að árið 2002 voru 1106 hundar til samans skráðir í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópa- vogi. Í lok árs 2012 var fjöldinn orðinn 2371. Sama er uppi á teningnum í Reykjavík þar sem þeim fjölgaði úr 1389 árið 2003 í 2277 árið 2012. Samkvæmt upp- lýsingum frá Ríkislögreglustjóra voru sex brot á samþykktum sveitarfélaga um hundahald skráð árið 2007 en hafði fjölgað í þrettán árið 2012. Að sögn Hönnu Arnórsdóttur dýralæknis mætti margt betur fara við hundahald hér á landi þó ástandið sé betra en víða annars staðar. „Ef hunda- eigendur myndu passa betur upp á að hundar sleppi ekki út þá myndi vandamálum tengdum þeim fækka mikið. Ég myndi giska á að í um sjötíu prósent tilfella séu það lausir hundar sem valda ónæði. Til dæmis með því að skíta í garða og svo eru sumir líka hræddir við lausa hunda sem enginn stýrir,“ segir hún. Þá bendir Hanna á að hundar eigi aldrei að vera lausir í þéttbýli. „Nægt er plássið fyrir utan þéttbýli til að leyfa hundum að vera lausir. Þar eru minni líkur á árekstrum við fólk sem er hrætt við hunda eða að þeir lendi í áflogum við hvorn annan.“ Hanna telur að ef eðli hunda og dýra almennt væri sýnd meiri þolinmæði væri dýrahald í þétt- býli mun farsælla. „Það er mikil- vægt að geta lesið í hegðun hunda því áður en þeir glefsa eða bíta eru þeir yfirleitt búnir að láta vita áður að þeim líði illa eða séu hræddir, til dæmis með því að bakka, lyfta efri vör örlítið eða urra. Allt eru þetta aðvaranir sem fólk á til að leiða hjá sér eða hefur ekki kunnáttu til að lesa í.“ Stund- um jafnvel ávíti eigendur hunda sína fyrir að urra og þá sé búið að Sú var tíðin á Íslandi að hundar bjuggu í sveitum og gengu þar frjálsir en á undanförnum áratugum hefur þeim fjölgað mikið í þéttbýli og eru nú yfir fimm þúsund hundar skráðir á höfuðborgar- svæðinu. Dýralæknir segir mikilvægt að hundar gangi ekki lausir í þéttbýli og að aðeins þeir sem hafi aldur og burði til fari með hunda í gönguferðir. taka aðvörunina í burtu. Næsta skref hjá hundunum sé því að glefsa úr því að ekki var hlustað á óskirnar með urrinu. Að mati Hönnu er það viðhorf ríkjandi á Íslandi að annað hvort séu hundar góðir eða vondir en að það sé fjarri raunveruleikanum. „Við sem vinnum hér saman, dýralæknarnir og atferlisfræðingarnir, förum yfir það sem á sér stað áður en hundur bítur og yfirleitt er forsagan þannig að hann er búinn að sýna vanlíðan í ákveðnum aðstæðum sem eigandinn hefði átt að vera búinn að gera sér grein fyrir.“ Því sé vanhugsað að aflífa hund við fyrsta glefs, það sé hvorki rétt gagnvart honum né eigandanum. Börn beri ekki ábyrgð á hundum Hanna segir mikilvægt að aðeins þeir sem hafi aldur og burði til fari með hunda í gönguferðir og aldrei börn yngri en tólf ára. Þegar um stóra og þunga hunda sé að ræða ættu börn ekki að bera ábyrgð á þeim því ætli þeir sér að fara í burtu sé erfitt að halda aftur af þeim. Flest börn sem bitin eru af hundum eru á aldrinum sex til tólf ára og segir Hanna megin ástæðuna vera þá að hreyfingar þeirra eru örar, þau sýni mikla væntumþykju og knúsi dýrin sem líkar það ekki alltaf. „Hundar og ung börn eiga aldrei að vera ein saman. Ef eitthvað gerist og barnið fer að gráta er ekki neinn til frásagnar og ómögulegt að vita hvort hundurinn hafi hoppað upp á það til að leika eða hvort barnið hafi potað í hundinn og hann svarað með glefsi.“ Hundar eru félagsverur Hanna segir það alltaf slæmt þegar fólk fær sér hund til að prófa hvernig það er. „Slíkt verður yfirleitt ekki far- sælt því fyrir hundinn er það binding fyrir lífstíð að fá eiganda og svo er ekki alltaf hlaupið að því að finna nýtt heimili þegar fólk vill losna við þá.“ Því sé mikilvægt að fólk íhugi vel áður en það fær sér hund hvort það hafi tíma til þess að hugsa um hann og búi í varan- legu húsnæði. „Það er mjög algengt í dag að ungt fólk í leiguhúsnæði fái sér hund eða kött og þarf svo að láta svæfa dýrin þegar flutningar standa til.“ Þá sé mikilvægt að gera sér grein fyrir því að veikist hundurinn fylgi því kostnaður við þjónustu dýralæknis. Hundar eru miklar félagsverur og hafa ríka þörf fyrir væntumþykju eigenda sinna og þeim á ekki að ýta til hliðar þegar fólk hefur litinn tíma. „Hundar lifa yfirleitt í níu til fjórtán ár og þarfir þeirra breytast ekki mikið á þessum tíma.“ Hanna segir ekki er nóg að gefa hundi að borða og hleypa honum út að pissa heldur hafi hann stöðuga þörf fyrir félags- skap eiganda síns og því sé mikil- vægt að hann sé áhugasamur um hundinn sinn. Að sögn Hönnu liður hundum best þegar þeir fá að nota skynfæri sín úti í náttúrunni og þefa og merkja sér staði. Allir hundar þurfi að hreyfa sig úti og það er ekki til neitt sem heitir „innihundur“. Fyrir flesta hunda er hæfilegt að ganga daglega um í taumi í þéttbýli en fara einu sinni til tvisvar sinnum í viku út í náttúruna þar sem þeir geta hlaupið um frjálsir. „Í mínum huga eru skemmtilegustu stundirnar með hundum úti í náttúrunni þar sem maður sér þá í réttu ljósi og hvað þeir eru athugulir á umhverfi sitt.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is 10 viðtal Helgin 27.-29. september 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.