Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 33
Skiptir ekki máli hvort það er eitt brjóst eða tvö
Þannig er verðmyndun á 1 kg af sykri:
Fræðsluauglýsing frá Kosti #1
Vissir þú þetta
um kostnaðinn
við sykurinn í Kosti?
Innkaupsverð 160 kr.
Flutningskostnaður 19 kr.
Tollar og opinber gjöld 202 kr.
Álagning Kosts -17 kr.
Virðisaukaskattur 26 kr.
Útsöluverð 389 kr.
Þegar þú kaupir kíló af sykri í Kosti fær ríkið
228 krónur í sinn hlut en Kostur ekki neitt.
Er eðlilegt að greiða ríkinu 228 krónur af hverju kílói af sykri,
ef þú vilt sykra pönnukökurnar þínar?
Til þess að draga úr áhrifum sykurskattsins greiðir verslunin
17 krónur með hverju kílói af sykri.
Ath! Verð er
námundað við
næstu heilu krónu.
Kostur ehf | Dalvegi 10-14 | 201 Kópavogur | Sími: 560-2500 | Netfang: kostur@kostur.is | Opið alla daga frá 10.00 - 20.00
Virðisaukaskattur 26 kr.
Tollar og opinb. gjöld 202 kr.
Flutningskostnaður 19 kr.
Innkaupsverð 160 kr.
Álagning Kosts -17 kr.
málið sé þrungið alvöru.
„Eftir þá skoðun kom í
ljós að það þyrfti að taka
brjóstið.“
Allt brjóstið tekið
Hún segist hafa verið
merkilega æðrulaus
á þessum tímapunkti.
„Ég held að fjölskyldan
hafi verið í meira áfalli.
Kannski var þetta ein-
hver Pollýanna í mér en
ég vonaði bara það besta.
Ég fann samt að það var
hræðsla í fólkinu í kring
um mig.“
Aðgerðin var þann 8.
október á síðasta ári. „Ég
er ekki brjóstastór þannig
að það var ekki hægt að
fleygskera. Þetta náði
líka yfir allt hjá mér. Allt
brjóstið var því tekið en
ég þurfti hvorki geisla né
lyf. Ég veit ekki hvernig
þetta hefði endað ef ég
hefði ekki farið í þessa
skoðun,“ segir hún ábúð-
arfull. „Ég er heppin því
þetta fannst bara því ég
fór á Leitarstöðina. Þetta
var ekki æxli sem hefði
fundist með því að þreifa
heldur sást það bara í
myndatöku.“
Enginn feluleikur
Hún ákvað að leyfa maka
sínum og einkasyni að
fylgjast vel með öllu
ferlinu. „Ég reyndi að
hafa þá eins mikið með
og hægt var. Fólk hugsar
alltaf það vesta. Ég leyfði
þeim að sjá skurðinn eftir
á og koma við hann. Þetta
hefur aldrei verið neinn
feluleikur hjá okkur. Þeir
umgangast mig alveg
eðlilega og þó ég sé bera
að ofan þá skiptir það
ekki máli, það skiptir
ekki máli hvort það er
eitt brjóst eða tvö. Ég er
ekki búin að fara í upp-
byggingu á brjósti og er
því með mikla holu. Þess
vegna þarf ég að vera í
fötum sem ná vel upp á
háls – annars bara gapir
niður. Það er það eina
sem pirrar mig núna, að
geta ekki klætt mig eins
og ég gerði. Ég veit ekki
hvort maður venst þessu
einhvern tímann – að það
vanti á mann. Þetta er
rosalega skrýtið,“ segir
hún hreinskilin. Valdís
fann fyrir orkuleysi um
tíma en hefur nú náð
orkunni upp aftur. „Ég
held að það sé einstak-
lingsbundið hvaða áhrif
þetta hefur á fólk. Ég er
bara þakklát fyrir að hafa
verið svona heppin, að
þetta hafi greinst í tíma.“
Þakklæti Valdísar er
innilegt enda grunaði
hana aldrei að hún væri
með krabbamein eða
frumubreytingar. „Þú
hvorki þreifar eða færð
verki vegna frumubreyt-
inga. Það hvarflaði aldrei
að mér að neitt væri að.
Alltaf þegar talið berst
að fólki með krabbamein
finnst manni það alveg
hræðilegt en maður horf-
ir ekki sjálfur í spegil og
hugsar að þetta geti kom-
ið fyrir mann sjálfan.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is