Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 14
Vikan í tölum Nýtt hlutverk í lífinu Hver vill ekki eiga þrjár ömmur? É g er að eignast ömmubarn. Reyndar verð ég stjúp­amma barnsins – en ég er sannfærð um að hvorki ég né ömmubarnið mitt munum láta það hafa áhrif á samband okkar. Elsta dóttir mannsins míns, elsta stjúp­ dóttir mín, er sem sagt að verða mamma. Hún var orðin tvítug þegar ég og pabbi hennar tókum saman þannig að ég hef aldrei beinlínis verið stjúpmamma hennar, þannig séð – til þess var hún orðin of fullorðin. Við höfum hins vegar alltaf verið góðar vinkonur og mér þykir óendan­ lega vænt um það. Nú fæ ég hins vegar að taka þátt í lífi barnsins hennar og verða amma þess – ef ég legg mig fram um það. Stjúpömmuhlutverksins vegna get ég valið hvort barnið kallar mig ömmu – eða bara Siggu – og þannig pínulítið lagt grunninn að framtíðarsambandi okkar. Því börn kalla ekki hvern sem er ömmu. Ömmur eru einstakar. Mér þótti óskaplega vænt um ömmur mínar en ólst því miður upp í öðrum landshluta en þær bjuggu í og öfundaði þær vinkonur mínar ávallt sem áttu ömmu í næstu götu sem þær gátu heimsótt þegar þær vildu. Nú hef ég hins vegar tækifæri til að verða þessi amma í næstu götu sem mig dreymdi alltaf um að eiga. Og þetta til­ tekna, ófædda barn á einmitt enga aðra ömmu í næstu götu en mig. Hinar tvær ömmurnar – blóðskyldu ömmurnar – búa langt í burtu og hef ég því einstakt tækifæri til þess að verða sú amma sem mig dreymdi sjálf um að eiga. Þetta er nefnilega svo merkilegt. Stjúpforeldrar verða oft svona eins og þriðja hjól undir vagni og þurfa oft að berjast fyrir því að fá að taka virkan þátt í uppeldi stjúp­ barna sinna. Þau eiga mömmu og pabba – alltaf bara eina mömmu og einn pabba – og svo stjúpforeldra. Börn eiga hins vegar tvö sett af ömmum og öfum þannig að stjúpömmurnar og ­afarnir hafa því tækifæri á að stækka þann hóp. Hver vill ekki eiga þrjár ömmur? Ég er algjörlega sannfærð um að í augum barnsins verði ég einfaldlega „amma“. Ég verð væntanlega að­ greind frá hinum ömmunum með því að fá sæmdarheitið Sigga amma (sem mér þykir svo vænt um því sjálf átti ég yndislega Siggu ömmu). Ég verð aldrei kölluð Sigga stjúpamma. Enda ætla ég ekki að kalla barnabarnið mitt ófædda stjúpömmubarn. Það verður ömmubarnið mitt. Sigríður Dögg auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is sjónarhóll Kringlan er einn fjölsóttasti verslunar- og þjónustukjarni Íslands og einn fjölmennasti vinnustaður landsins. Hátt í 1.000 hjálpfúsir starfsmenn eru þér ávallt innan handar, þakklátir fyrir innlitið og viðskiptin. TAKK FYRIR AÐ STYÐJA ÍSLENSKA VERSLUN Anh Viet Nquyen SuZushii F ÍT O N / S ÍA 200 athugasemdir voru gerðar við aðal- skipulag Reykjavíkur en frestur til þess rann út síðasta föstudag. 1.803 kíló vógu keppendur í íslensku útgáfunni af The Biggest Loser samanlagt þegar tökur á þáttunum hófust. Það kemur í hlut þjálfaranna Everts Víglundssonar og Guð- ríðar Torfadóttur að koma þeim í form. 391.000.000 króna tap varð á rekstri Byko í fyrra. 42.000 rjúpur mega íslenskir veiðimenn skjóta á veiði- tímabilinu sem hefst 25. október. 1.726 milljónir króna komu í kassann hjá World Class með sölu aðgangskorta og veitinga í fyrra. Hagnaður ársins nam 147 milljónum en eigið fé er neikvætt um 107 milljónir króna. 9,5 milljóna hagnaður varð af rekstri Kaffibarsins á síðasta ári. 14 viðhorf Helgin 27.-29. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.