Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Síða 20

Fréttatíminn - 27.09.2013, Síða 20
Sigríður grípur síðustu orðin á lofti: „Eins og segir í textanum“ og vísar í lag Stjórnarinnar, Til í allt. Lagt fyrir nefnd hjá RÚV Eftir sigurinn hér heima kom ekki annað til greina af hálfu Siggu og Grétars en að hljómsveitin færi með þeim til Zagreb í Júgóslagívu þar sem aðalkeppnin fór fram. „Þeir hjá RÚV höfðu aðrar hug- myndir um fyrirkomulagið og við áttum bara að fara tvö með einhverjar ríkisbakraddir,“ segir Grétar. „Þeir sem voru með okkur í hljómsveitinni voru fullfærir um að radda lagið með okkur en for- svarsmenn RÚV höfðu ekki meiri trú á þessu en það að fengnir voru þekktir menn úr tónlistarbrans- anum til að úrskurða um hvort við værum hæf. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn en þetta voru toppar í ís- lensku tónlistarlífi. Þeir voru settir í dómarasæti til að ákveða hvort strákarnir gætu raddað lagið,“ segir hann. Sigga er þung á brún þegar hún rifjar þetta upp. „Ég held að þetta hafi aldrei komið fram. Mér fannst þetta mjög sérstakt.“ Það fékkst í gegn að Stjórnin færi öll út og Sigga og Grétar lögðust í dansæfingar. „Við erum hvorugt miklir dansarar og æfðum í marga mánuði,“ segir Grétar. Hann tekur fram að Sigga sé miklu meiri dans- ari en hann. Þessi mótmælir Sigga brosmild og segir Grétar vera betri dansarann. Lagið hafnaði í fjórða sæti, sem er þriðji besti árangur Ís- lands í Eurovison. Á þessum tíma sungu allar þjóðir á eigin tungu- máli og bæði segjast þau frekar hafa viljað syngja á ensku. „Við hefðum alltaf haft enn betri mögu- leika á að vinna þannig,“ segir Grétar. Blómafötin týnd Mikið var lagt upp úr klæðnaði þeirra Siggu og Grétars á þessum tíma og ekki hægt annað en að víkja tali að sviðsbúningunum. Í undankeppninni voru þau í sam- stæðum gallafatnaði með skraut- legu blómamynstri sem þóttu þá afar töff en þykja það vart í dag. „Ég á flesta búningana. Þeir eru svo eftirminnilegir. Sér í lagi rauði kjóllinn sem ég var í úti í keppninni og svo blómadressið sem er eitt það hræðilegasta sem hægt er að sjá,“ segir Sigga og hefur fullan húmor fyrir því hvað tíska þessa tíma hefur elst illa. Grétar segist hins vegar ekki lengur hafa blómafötin í sínum fórum því hann hafi lánað þau og þeim ekki verið skilað. „Það voru margir sem vildu fá þessi föt lánuð. Ég man ekki hver það var sem fékk þau lánuð síðast. Kannski er einhver sem klæðir sig reglulega upp í þeim. En ég verð eiginlega að nota þetta tækifæri til að auglýsa eftir skræpóttu fötunum. Það er einhver með þessi föt,“ segir hann. Sigga segist einu sinni hafa lánað rauða kjólinn í söngvakeppni á Sauðárkróki þar sem flutt var lagið Eitt lag enn. „Þessi föt eru dæmd til að týnast ef maður lánar þau í gæsapartí eða fyrirtækjapartí. Það er gaman að eiga þessa búninga og við komum til með að stilla þeim upp á afmælistónleikunum. Ég held að fólk hafi gaman af því að skoða þá,“ segir hún. Hentu kínaskónum Útlitið skipti ekki síður máli þegar hljómsveitin ferðaðist um landið og spilaði á böllum. „Ég var alltaf í leðurjakka. Það voru allir að spá í útlitið því það bara tilheyrir þess- um bransa. Það er ákveðið leikrit sem er sett á svið fyrir áhorfendur,“ segir Grétar. Hann rifjar upp að einum hljómsveitarmeðlimi hafi þótt hinir svokölluðu kínaskór vera öllu þægilegri og hann hafi því ekki gengið í kúrekastígvélum eins og hinir, sem voru allt annað en hrifnir að skóbúnaði félagans. „Í hljóm- sveitarrútunni var í eitt skiptið tek- in umræða um þessa kínaskó þegar hann var sofandi og einhverjir tóku sig til þegar við keyrðum yfir eina brúna að láta skóna bara gossa þar ofan í. Þetta voru skýr skilaboð til hans um að fá sér nýja skó.“ Hljómsveitin var sú vinsælasta á landinu á tímabili og eitt merkið um það var að Mjólkursamsalan fékk þau Siggu og Grétar til að sitja fyrir á mynd sem prýddi mjólkurbílana. „Mjólkursamsalan styrkti okkur til að byrja með. Það var nú ekki alltaf drukkin mjólk á ferðalögunum þó ég hafi nú líklega verið með þeim duglegri þegar kom að mjólk og kaffi. Þetta gátu verið skrautlegar rútuferðir,“ segir Grétar. Þau bókstaflega bjuggu í rútunni frá fimmtudegi til mánu- dags þegar þau spiluðu sem mest. Þau fengu rútu sem Stuðmenn höfðu áður haft afnot af. „Þessi rúta var eiginlega að syngja sitt síðasta en hún var dubbuð upp og merkt Stjórn inni. Það voru fimm kojur þannig að þetta rétt pass- aði,“ segir Grétar. Hann rifjar upp eina helgina þar sem þau spiluðu á Inghóli á föstudegi, keyrðu af stað um nóttina að loknum tónleikum og biðu eftir að söluskálinn í Freys- nesi opnaði um morguninn til að fá sér morgunmat. „Við skröltum svo áfram á Hornafjörð þar sem við spiluðum á útisamkomu um daginn. Þaðan fórum við upp í Lón að spila á svokölluðu Lóns- balli en þau voru haldin á þessum tíma. Á laugardagskvöldinu var fólk orðið þreytt en við héldum okkur gangandi og eftir tónleikana keyrðum við af stað til Egilsstaða þar sem við áttum að spila á fjöl- skylduskemmtun í Valaskjálf um daginn. Þarna hafði ég varla sofið frá föstudeginum og þegar við komum á Valaskjálf var veðrið al- veg dásamlegt, grasið varð heldur freistandi og við lögðumst þar öll niður og sofnuðum í um klukku- tíma. Á sunnudagskvöldið náðum við svo loks almennilegum svefni,“ segir hann. Í afmæli hjá þekktum athafnamanni Upphaflegu meðlimir Stjórnar- innar hafa ekki komið saman síðan 1991. Sigga segir að í seinni tíð hafi Stjórnin verið sett saman fyrir Eurovision-ball á Players fyrir mörgum árum og svo eitt einka- samkvæmi. Ég velti fyrir mér hver hafði efni á að láta hóa saman Stjórn inni fyrir einkaboð og Sigga bendir á að þetta hafi jú verið í kring um 2007. „Þetta var stóraf- mæli hjá athafnamanni í bænum,“ segir hún. Þau fást ekki til að gefa upp hvern var um að ræða en taka fram að þetta hafi í raun verið þeirra eina þátttaka í ævintýrinu sem kennt er við árið 2007. Þau tilkynna mér að lokum að nýtt lag með Stjórninni verði frumflutt næsta dag, á fimmtu- dag, sumsé daginn áður en þetta blað kemur út. Lag og texti er eftir Grétar og Friðrik Karlsson. „Við erum þarna að gera grín að okkur sjálfum. Lagið heitir „Þegar mojo-ið flæðir“ og syngjum um að við höfum misst mojo-ið og hvað við þurfum að gera til að finna neistann aftur, hlustum á Flash, FM og lifum í gegn um iPhone- inn okkar,“ segir Grétar. Fáir hafa eflaust velt mojo-inu jafn mikið fyrir sér og kvikmyndapersónan Austin Powers sem hafði yfir að ráða einstökum persónutöfrum. Sigga hefur ákveðnar efasemdir við titil lagsins. „Er ekki flottara að láta það bara heita Mojo? Hitt er svo langt. En þið höfundarnir verðið auðvitað að ráða þessu.“ Ég tek undir með Siggu og Grétar kemur með lokaúrskurðinn. „Jú, Mojo er sennilega flottara. Þá ákveðum við það hér með. Lagið heitir Mojo.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Ég man ekki hver það var sem fékk þau lánuð síðast. Kannski er einhver sem klæðir sig reglulega upp í þeim. Blómafötin sem Grétar og Sigga voru í þegar þau sungu Eitt lag enn í keppninni hér heima. Grétar auglýsir eftir sínum fötum sem hann lánaði og fékk aldrei aftur. Söngkonan Alda Ólafsdóttir söng með Stjórninni áður en Sigga kom til sögunnar. Hvert mannsbarn þekkti Siggu og Grétar og um tíma prýddu þau líka bíla Mjólkursamsölunnar. Hljómsveitin Stjórnin þegar hún var upp á sitt besta. 20 viðtal Helgin 27.-29. september 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.