Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 37
matur og vín 37Helgin 27.-29. september 2013 H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA É g kom hingað fyrir ári síðan og það var frábær upplif-un, ég mun aldrei gleyma þessum stað. Það er mjög gaman að fá að koma aftur,“ segir Martin Duran, sendiherra hjá vínrisanum Concha y Toro. Duran kom hingað til lands á dögunum og var vín- þjónn, sommelier, á Grillmarkað- inum. Þar kynnti hann vín Concha y Toro fyrir gestum og ráðlagði þeim hvaða vín pössuðu með matnum. Duran ferðast um heim allan fyrir fyrirtækið og leggur lóð sín á vogarskálarnar með markaðsetn- ingu vína þess. „Það eru verkfræð- ingar sem sjá um skipulagninguna en fyrir þeim eru þetta bara tölur. Ég fer um allan heim og hitti fólk. Ég sé um rómantísku hliðina á markaðssetningunni, ég er ekki vélmenni,“ segir hann og hlær. Þetta er í annað sinn sem Duran kemur hingað til lands og því virð- ist Concha y Toro leggja mikið upp úr markaðsstarfi sínu hér. Duran staðfestir að svo sé. „Þetta er kannski ekki stærsti markaðurinn en við leggjum mikið upp úr því að hafa stóra markaðshlutdeild. Við erum stór á mörgum mörk- uðum, það er hluti af fílósófíunni hjá okkur. Íslendingar hafa líka tekið vörum okkar mjög vel, ég sé Concha-vín á mörgum veitinga- stöðum og fólk virðist þekkja þau.“ Hvernig leist þér á þá íslensku veitingastaði sem þú heimsóttir? „Mjög vel. Hér eru skemmtilegir veitingastaðir sem bjóða margir upp á fusion-mat, íslenskt fusion. Hér vantar klárlega Michelin-stað, það myndi hjálpa mikið til í ferða- mannaiðnaðinum. En það væri sannarlega verðskuldað.“ Martin Duran er frá Chile en fjölskylda hans er upprunalega frá Barcelona. Hann er mennt- aður verkfræðingur en heillaðist af heimi vína. „Ég var að vinna á skemmtiferðaskipum og kynnt- ist þá frönskum sommelier. Ég heillaðist af starfi hans og fór aftur til Chile og lærði að vera somme- lier í heimabæ mínum. Svo gerði Concha y Toro mér tilboð sem ég gat ekki hafnað.“ Er þetta draumastarfið? „Ég líki þessu stundum við að vera fótboltamaður. Það vilja allir  Vín Martin Duran Var soMMelier á GrillMarkaðinuM Ísland ætti að eiga Michelin-veitingastað Martin Duran var ánægður með heimsókn sína hingað til lands á dögunum. Hann kynnti hér vín frá Concha y Toro. Ljósmynd/Hari spila með bestu liðunum og nú er ég að spila fyrir Real Madrid. Svo á eftir að koma í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er gaman að ferðast og kynnast nýjum löndum og fólki. Starfið getur stundum verið einmana- legt en ég hef félagsskap af vín- unum,“ segir hann og brosir. Drekkurðu bara vín frá Concha y Toro? „Nei, ég get drukkið allt. Ég á ekki neitt uppáhalds vín. Það fer bara eftir stað og stund og stemningunni hverju sinni hvað ég drekk. Stundum verð ég þreyttur á að drekka vín og fæ mér bjór í staðinn, til dæmis þegar ég fer á tónleika eða horfi á fótboltaleik.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.