Fréttatíminn - 27.09.2013, Qupperneq 55
Sálin í Hörpu
Lifandi
SálVeRjAr ásAmT fjölda hJálPaRkOkKA
FLYTJA úrVaLsLög SálArInNaR s.l. 25 ár
mIðaSaLa hEfSt 27. sEpTeMbEr á hArPa.iS
9. nóvember 2013
Aðeins þessar 4 sýningar
Föstudagur 4. október kl. 20
Fimmtudagur 10. október kl. 20
Sunnudagur 13. okbóber kl. 20
Laugardagur 19. október kl. 20
“Það er skemmst frá því að segja að Tenórinn er ein
sú besta skemmtun í leik og söng sem gagnrýnandi
minnist að hafa séð.”
“… en toppurinn var magnaðasta túlkun á Söng
villiandarinnar sem viðstaddir höfðu nokkurn tíma
heyrt.”
“Tenórinn er bráðskemmtilegt og vel smíðað leikverk og
utningur Guðmundar skemmtilegur, margslunginn og
öruggur.”
“Sigursveinn Magnússon er píanóleikarinn og skilaði
hlutverki sínu af hófstilltu öryggi, og átti sinn ísmeygilega
þátt í fyndninni. Samleikur þeirra er áreynslulaus …”
“Svo er lafhægt að pissa á sig af hlátri á Tenórnum hans
Guðmundar Ólafssonar … … á tímabili á sunnudag-
skvöldið var beinlínis lífshættulegt að horfa og hlusta á
hann á sviðinu … Ég hélt á einu andartaki að konan við
hliðina á mér mundi kafna úr hlátri. Og sú tólf ára hinum
Umsagnir um TENÓRINN
Miðapantanir á midi.is
Miðasala í síma 562 9700
Einnig við innganginn á sýningarkvöldum
Fyrstu tónleikar Kammermúsík-
klúbbsins í vetur verða haldnir í
Norðurljósasal Hörpu á sunnudag-
inn. Tónleikarnir marka upphaf 57.
starfsárs Kammermúsíkklúbbsins,
sem starfað hefur síðan 1957 og
haldið meira en 280 tónleika.
Fiðluleikarinn Sigrún Eðvalds-
dóttir f lytur þrjá strengjakvart-
etta eftir Arriaga, Beethoven og
Brahms, síðasta kvartett Beet-
hovens, fyrsta kvartett Brahms og
einn af kvartettum spænska undra-
barnsins Arriaga.
Kvartett Sigrúnar Eðvaldsdótt-
ur er skipaður fjórum frábærum
strengjaleikurum sem hafa oft
leikið saman á undanförnum árum.
Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew
Dubik leika á fiðlur, Ásdís Valdi-
marsdóttir á víólu og Bryndís Halla
Gylfadóttir á selló.
Þau tímamót urðu síðastliðið
haust að Kammermúsíkklúbburinn
flutti starfsemi sína í Hörpu úr Bú-
staðakirkju, sem hafði verið athvarf
hans síðan 1986.
Bent er á heimasíðu klúbbsins,
kammer.is, sem geymir mikinn
fróðleik um sögu klúbbsins.
Tónleikarnir í Hörpu hefjast
klukkan 19.30.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði á
fimmtudag yfirlitssýningu á verkum Jóhannesar
Kjarvals í einu helsta safni Rússlands, Þjóðarsafn-
inu í St. Péturs-
borg. Mennta- og
menningarmála-
ráðherra Rúss-
lands, Vladimir
Medinsky, var við-
staddur opnunina.
Safnið er með
tvo glæsilega sýn-
ingarsali í tveimur
hallarbyggingum í
miðborginni og er
Kjarvalssýningin
haldin í annarri
þeirra, Marmara-
höllinni. Listasafn
Reykjavíkur hefur
unnið náið með
Þjóðarsafninu í
St. Pétursborg
við undirbúning
sýningarinnar.
Sýningin er
haldin af því tilefni
að á þessu ári eru
70 ár liðin frá því
formlegt stjór-
nmálasamband komst á milli Íslands og Rússland
(þá Sovétríkjanna).
Lykilverk Kjarvals eru á sýningunni, yfir 40
málverk og teikningar sem að mestu eru í eigu
Listasafns Reykjavíkur. Sýningarstjóri er Kristín
Guðnadóttir listfræðingur. Dr. Evgenia Petrova,
aðstoðarstjórnandi fræðilegra rannsókna, sér um
skipulag sýningarinnar fyrir hönd Þjóðarsafnsins.
Harpa KammerKlúbburinn byrjar
Sigrún Eðvaldsdóttir
þenur strengina
Sigrún Eðvaldsdóttir og félagar flytja verk eftir Arriaga, Beethoven og Brahms.
myndlist yfirlit í st. pétursborg
Kjarval í Marmarahöllinni
Sýningin í St.
Pétursborg
gefur gott
yfirlit yfir feril
Kjarvals.
menning 55 Helgin 27.-29. september 2013