Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 58

Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 58
 Elsa María FruMsýnir stuttMyndina MEgaphonE Kynlíf á gráu svæði Elsa María Jakobsdóttir gerði það gott í Kastljósi fyrir nokkrum miss- erum. Hún stundar nú leikstjóranám í hinum eftirsótta Den Danske Filmskole. Hún ætlar að gefa sér tíma til þess að skjótast til Íslands um helgina og frumsýna sína fyrstu leiknu kvik- mynd, Megaphone, á RIFF. Myndin fjallar um afdrifaríkar afleiðingar næturgamans og er svo eldfim að handritið vakti illdeilur meðal hennar nánustu. E lsa María Jakobsdóttir er önnum kafin í krefjandi leikstjórn-arnámi í Kaupmannahöfn en ætlar þó að skreppa til Íslands um helgina og frumsýna stuttmyndina Gjallarhorn sem hún lýsir sjálf sem „svefnherbergisdrama með smá tvisti.“ Elsa María skrifaði handrit myndarinnar á meðan hún var í því sem hún kallar „rosalega leiðinlegt markaðsnám“ í Kaupmannahöfn í fyrra. „Það að gera þessa stuttmynd var eiginlega leiðin út úr ægilega leiðin- legu mastersnámi í menningargreiningu,“ segir leikstjórinn. „Myndin fjallar dálítið um kynlíf sem er á gráu svæði. Ég hef fundið á bæði þeim sem lásu handritið og hafa horft á myndina að það eru mjög skiptar skoðanir á því hvað er í gangi þarna. Þetta er eldfimt og umdeilt efni. Áður en ég tók myndina upp fékk ég vini og fjölskyldu til að lesa og þegar nákomið fólk lenti í heiftúðugu rifrildi þar sem einn gekk á dyr og skellti á eftir sér þá vissi ég að ég yrði eiginlega að prófa að gera þetta,“ segir Elsa María og hlær. Elsa María hafði knappan tíma til þess að taka myndina upp og afgreiddi hana með æfingum og öllum undirbúningi á viku. „Þetta var alger manía í eina viku og eitthvað sem maður vill helst ekki þurfa að lenda í aftur þótt þetta hafi verið alveg ofboðslega skemmtilegt ferli.“ Gjallarhorn var tilbúin fyrr á þessu ári en Elsa María hefur dreg- ið dálítið að frumsýna hana. Var að bíða eftir rétta augnablikinu og í henni er smá skrekkur enda hafa hvorki leikararnir né aðrir að- standendur séð hana. „Þannig að þetta er alveg heimsfrumsýning. Málið er bara að það að gera bíó er auðvitað ekkert einkamál og ég er svolítið að koma út úr skápnum á þessu augnabliki. Ég er búin að halda henni aðeins ofan í skúffu en til þess eru myndir auðvitað ekki gerðar. Það þarf að sýna þær. Ég kaus til dæmis að sækja ekki um pening hjá Kvikmyndamið- stöð af ótta við að þetta yrði eitthvert algert fíaskó. Vegna þess að ef þú ert með opinbera peninga þá þarftu auðvitað að skila af þér. Á einhvern skrítinn hátt langaði mig eiga möguleika á að stinga þessu öllu ofan í skúffu, kveikja í því og tala aldrei um það aftur ef þetta yrði alveg hrikalegt. En sem betur fer lukkaðist þetta fínt.“ Framhaldið lofar líka góðu þar sem Megahpone verður sýnd á stuttmyndahátíð í Helsinki á sunnudaginn, fer síðan á evrópska stuttmyndahátíð í Brest í Frakklandi og síðast en ekki síst hinni virtu hátíð í Uppsölum í Svíþjóð. „Þetta er risastór og virt stutt- myndahátíð með mikla vigt og þær myndir sem vinna til verðlauna þar eru gjaldgengar í forval fyrir til dæmis Óskarsverðlaunin. Þetta er auðvitað langsótt en það er bara gaman að komast að á svona fyrsta flokks hátíð. „Það er alveg geðveikt skemmtilegt.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Elsa María ætlar að koma út úr skápnum sem kvikmyndaleik- stjóri í Tjarnarbíói á laugardag- inn þegar hún frumsýnir hina eldfimu stuttmynd Gjallarhorn. Gjallarhorn Hera og Orri upplifa ævintýri næturinnar í miðbæ Reykjavíkur. Spenna og aðdráttar- afl er í loftinu. Í morgunskímunni er ljómi gærkvöldsins allt í einu gufaður upp.  ingvar Björn ÞorstEinsson Færði sEndihErrahjónuM listavErk Þrívíður Obama í öndvegi í sendiráðinu Stór þrívíddarverk myndlistarmannsins Ingvars Björns Þorsteinssonar hafa vakið athygli í miðbæ Hafnarfjarðar en að sögn listamannsins er markmið með sýningunni að breyta firðinum fagra í eina, stóra, þrívíða listasýningu. Bandaríska sendiherrafrúin Mary Arreaga skoðaði sig um í Hafnarfirði nýlega í fylgd Rósu Guðbjarts- dóttur bæjarfulltrúa. Mary heillaðist af verkum Ingvars og þá ekki síst risastórri þrívíddarmynd sem skartar forseta hennar, Barack Obama. Þegar Ingvar frétti af þessu dreif hann sig í sendi- ráð Bandaríkjanna og færði sendiherrahjónunum frummynd verksins, sem er öllu minni en sú sem er til sýnis í Hafnarfirði. Og móttökurnar sem hann fékk voru vægast sagt hlýlegar. „Maður hefur bara aldrei upplifað annað eins. Mary fannst þetta bara svo frábært dæmi og þegar Rósa sagði mér frá þessu fannst mér þessi mynd bara eiga heima þarna í sendiráðinu,“ segir listamaðurinn og bætir við að hann telji myndina ekki síst vel heima í sendiráðinu þar sem boðskapur hennar sé að „við eig- um frekar að tala saman en að sprengja hvort annað.“ Rósa og Ingvar mættu með þrívíddargleraugu á línuna í sendiráðið þar sem slegið var á létta strengi og verk Ingvars var hengt upp í öndvegi. „Þeim fannst þetta rosalega spennandi og völdu einn besta staðinn í húsinu, innan um meistarana, fyrir myndina.“ Ingvar segist hafa heyrt af því að sendiherrafrúin hafi hrifist svo af Hafnarfirði að hún sé farin að tala um að leita sér að íbúð þar. -þþ Sendiherrahjónin Mary og Luis Arreaga tóku Ingvari og Rósu fagnandi þegar þau komu með þrívíddarmynd- ina af Obama. Afdrifarík stuttmynd Bandaríska stuttmyndin Sketch er ein fjölmargra slíkra sem sýndar verða á RIFF. Myndin er ekki síst áhugaverð fyrir Íslendinga þar sem Serbinn Zlatko Krickic fer með hlutverk í henni. Zlatko vakti mikla og verðskuldaða athygli fyrir frábæra túlkun sína á glæpamanninum Sergej í Borgríki. Ákvörðun Zlatkos að slá til og bregða sér til Bandaríkjanna til þess að leika í Sketch reyndist honum dýrkeypt þar sem hann var í kjölfarið sviptur rétti til atvinnuleysisbóta. Zlatko var við tökur á Sketch í tvær vikur og fékk aðeins greitt fyrir flug og uppihald enda var hann ekki að sækjast eftir peningum þar sem hann leit á þetta fyrst og fremst sem spennandi tækifæri. Hann hefur nú nýlokið tökum á Borgríki 2 og hefur því ekki setið auðum höndum undanfarið. Hægt er að sjá myndina sem kom honum á kaldan klaka hjá Vinnumálastofnun í Tjarnarbíói um helgina. Laddi saxar á ný Laddi hefur gengið til liðs við Spaugstofuna, að sögn ekki síst til þess að bregðast við breyttu landslagi í stjórnmál- unum og nýjum andlitum í brennidepli sem þeir Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason telja heppi- legt að fá öflugan liðsauka við að stæla og skrumskæla. Laddi mun einnig bregða upp gömlum og þekktum andlitum og heyrst hefur að sjálfur Saxi læknir muni láta til sín taka í Spaugstofuþætti helgarinnar. Andstæður mætast Laugardalurinn verður vettvangur mikilla and- stæðna um helgina. Margumtöluð hátíð vonar verður í Laugardalshöllinni og til mótvægis við hana ætlar hinsegin fólk að lyfta sér á kreik í Þróttarheimilinu. Á milli gervigrasvallarins og Skautahallarinnar hefur svo verið slegið upp tjaldi fyrir Októberfest sem haldin er undir formerkjum bjórs, ástar og friðar og þá er vonin ein eftir og hana er að finna í næsta húsi. Selt er inn á opnunaratriði veislunnar og þá er aldurs- takmark 20 ár þar sem Skinnsemi treður upp með djarfa sýningu og Víkingur Kristjánsson fer yfir sögu bjórsins. Eftir það er tjaldið opið og á laugardaginn klukkan 16 verður haldin bjórmessa á meðan gestir í Höllinni horfa til himins. Á laugardaginn verður einnig boðið upp á Pub Quiz með Stefáni Pálssyni og sjálfur Kiddi Casio og Sólin mæta til leiks. Tekið er fram að allir eru boðnir velkomnir á Októberfestið og þá ekki síst mannskapurinn í Þróttaraheimilinu og þau sem fylla Höllina um helgina. 58 dægurmál Helgin 27.-29. september 2013 KAUPUM Á ALLRA VÖRUM GLOSS FRÁ DIOR Þú færð Á allra vörum glossin frá Dior á eftirtöldum sölustöðum: Fríhöfnin, Flugstöð Leifs Eiríkssonar Debenhams, Smáralind Lyf og heilsa um land allt Lya um land allt Ólöf snyrtistofa, Selfossi Make Up Gallery, Akureyri Sigurboginn, Laugavegi Snyrtivöruverslunin Glæsibæ Snyrtivöruverslanir Hagkaups um land allt F ÍT O N / S ÍA

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.