Fréttatíminn - 11.01.2013, Blaðsíða 20
M ín tilfinning er sú að það eigi að knésetja mig, knýja mig til upp-gjafar. En ég ætla ekki að gefast
upp,“ segir þingkonan Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís hefur ekki farið varhluta af netum-
ræðunni svokölluðu, sem á það til að verða
mjög persónuleg og rætin. Hún segir það
hafa verið erfiðast við fráfall barnsföður síns
að halda andlitinu. „Fólk áttar sig ekki á því
að á bak við hverja manneskju er heimilislíf
og tilfinningar.“
Erfiðast fjölskyldunni við fráfall
barnsföður
Á skrifstofu framsóknarmanna við Austur-
stræti var vel tekið á móti blaðakonu, rjúk-
andi kaffibolli beið og skilaboð frá Vigdísi,
sem seinkaði um nokkrar mínútur. Við kom-
una útskýrði Vigdís að þrátt fyrir að vera í
nýársátaki hefði hún átt erfitt með að koma
sér af stað árla morguns. „Ég er ennþá að
ná upp rútínunni,“ segir hún og hlær. Vig-
dís er manneskjuleg og tekur sjálfa sig ekki
hátíðlega, hún er hlý, opin og beinskeytt.
Af einhverjum ástæðum er hún þó einn um-
talaðasti alþingismaður Íslendinga og all-
ir virðast hafa á henni skoðun. Það virðist
einnig vera lögmál netheima að gera lítið
úr persónu hennar í athugasemdakerfum,
í stað þess að gagnrýna hana málefnalega.
Vigdís hefur sterkar og oft umdeildar skoð-
anir sem hún hikar ekki við að bera á torg.
Mörgum þykir hún íhaldssöm en hún segist
aðeins reyna að vera fylgin og samkvæm
sjálfri sér. Slíkt geti þó oft reynst henni erfitt
í vinnuumhverfinu. Hún útskýrir að hún sé
mikill stríðsmaður og reyni að láta mótbyr-
inn sem minnst á sig fá.
„Ég hef reynt að horfa á það þannig að
auðvitað fylgi þetta starfinu upp að ein-
hverju marki. Ég hef mikið sjálfstraust og
þess vegna hef ég þann eiginleika að loka
á þetta. Ég hef oft hugsað um það hvernig
þingmennskan horfir við ungum konum,
kannski með börn. Þær hljóta einhverjar
að spyrja sig hvort að þetta sé þess virði.
Ég átti spjall við nokkra þingmenn og þá
voru málefni kvenna í pólitík rædd. Þar var
þeirri spurningu velt upp hvers vegna svo
margar efnilegar konur væru að hætta þing-
mennsku, en okkur taldist til að þær væru
sjö sem vitað er um. Það má nefnilega alveg
velta því fyrir sér af hverju konur verði svona
illa fyrir barðinu á netheimum.“ Hún nefnir
sem dæmi kollega sinn, Lilju Mósesdóttur,
sem hún segir að sé ein þeirra sem fái virki-
lega að finna fyrir illu umtali, innan jafnt
sem utan þings.
„Þó ég sé tiltölulega ónæm orðin þá verður
það sama ekki sagt um fólkið mitt. Ég bað
börnin mín fyrir löngu að lesa ekki athuga-
semdakerfin, því auðvitað hefur þetta áhrif á
þau. Ég veit ekki hvort að fólk geri sér grein
fyrir því að á bak við þingmenn, eða þann
sem spjótin beinast að hverju sinni, standi
fjölskylda, jafnvel börn. Ég má teljast heppin
að mamma er gömul og ekki nettengd, því
hún myndi aldrei þola þetta. Ég veit að hún
hlustar stundum á útvarp Sögu og þar vell-
ur oft upp úr flórnum um mig í beinni. Hún
skilur ekki hvernig ég þoli þetta, í raun skil
ég það ekki alveg sjálf.“
Tveggja barna móðir
Vigdís Hauksdóttir er fædd á Selfossi árið
1965. Foreldrar hennar voru bændur og
Vigdís menntaði sig í garðyrkju á yngri
árum. Hún var fyrsti Íslandsmeistarinn
í blómaskreytingum og var kennari við
blómaskreytingabraut Garðyrkjuskólans á
Reykjum. Hún átti blómaverslun um árabil,
eða þangað til hún ákvað að leggja fyrir sig
lögfræði. Hún er með BS próf í viðskipta-
lögfræði og lögfræðipróf frá Háskólanum
á Bifröst, auk þess að hafa viðbótargráðu
í skattarétti. „Menntun mín hefur oft verið
dregin í efa í umræðunni og einnig trúverð-
ugleiki skólans fyrir að hafa útskrifað mig.
Vigdís Hauksdóttir
segir að eineltishegðunin
einskorðist ekki við net-
miðlana, heldur nái hún
inn í þinghúsið. Hún finni
fyrir kerfisbundinni niður-
lægingu. Ljósmynd/Hari
Mikið hefur verið rætt
um framkomu Íslendinga
á vefmiðlum sem
stundum er einstaklega
orðljót og oft rætin í
garð fólks í opinberri
umræðu. Svo virðist sem
ákveðnar konur geti sett
allt á annan endann með
því einu að tjá sig um
málefni líðandi stundar.
Framsóknarkonur
sendu í fyrra frá sér
ályktun þar sem hegðun
nokkurra þekktra ein-
staklinga, meðal annars
Egils Helgasonar, í
garð þingkonunnar
Vigdísar Hauksdóttur
var harðlega gagnrýnd.
Þær vildu tengja sí-
endurtekna hegðunina
einelti. Fréttatíminn
sótti Vigdísi heim á
skrifstofur Framsóknar-
flokksins þar sem hún
ræddi um netmiðlana,
áhrif ummælanna og
krákurnar á þinginu.
Það á að knésetja mig
20 viðtal Helgin 11.-13. janúar 2013