Fréttatíminn - 11.01.2013, Side 24
É
g er nú ekki búinn að vera í þessu neitt
mjög lengi,“ segir kvikmyndaklipparinn
Ragnar Valdimar Ragnarsson sem þessa
dagana er að ganga frá íslensku bíó-
myndinni Falskur fugl sem verður frum-
sýnd í janúarlok. „Ég lærði að klippa úti
í Los Angeles og kláraði skólann þar
í byrjun árs 2011,“ segir Ragnar sem
kom þá heim til Ísland og klippti þætti
fyrir vefsjónvarp mbl.is og sinnti öðrum
smærri verkefnum.
Ragnar og Þór Ómar Jónsson, leik-
stjóri Falsks fugls, voru málkunnugir á
þessum tíma. Þór Ómar var að undir-
búa gerð Falsks fugls um þetta leyti og
bað Ragnar um að fylgjast með því sem
gerðist bak við tjöldin við gerð myndar-
innar og gera heimildarmynd um kvik-
myndagerðina. Ragnar ætlaði sér að
taka verkefnið að sér en þá gripu örlögin
inn í. Hann lenti í slysi í mars 2011 og
hefur verið í hjólastól síðan. „Við Þór
Ómar vorum búnir að hittast og ræða
gerð þessarar heimildarmyndar en þetta
atvikast bara þannig að annar maður tók
það verkefni að sér.“
Ragnar lagði þó síður en svo árar í bát
við slysið sem segja má að hafi orðið til
þess að hann endaði sem klippari Falsks
fugls. „Ég þurfti að liggja á spítala og
fór þaðan í endurhæfingu upp á Grensás
þannig að úr því sem komið var kom aldrei til greina
að ég myndi gera heimildarmyndina. Þá fékk Þór
Ómar mig til þess að klippa tvær stiklur fyrir Falsk-
an fugl en síðan varð úr að ég tók að mér að klippa
myndina sjálfa.“
Falskur fugl er fyrsta bíómyndin sem Ragnar
klippir þannig að segja má að honum hafi verið
kastað beint úr endurhæfingu út í djúpu laugina.
En hann skemmtir sér vel í vinnunni. „Þetta er
búið að vera fínt þótt það sé svolítið skrýtið að vera
bara hent svona allt í einu í þetta. Það
er dálítið óvenjulegt að fara beint í að
klippa svona stóra mynd án þess að vinna
fyrst sem aðstoðarklippari eða eitthvað
svoleiðis. Maður stökk þarna svolítið út
í djúpu laugina en það er allt í góðu og
þetta gengur vel.“
Ragnar keypti sér klippitölvu í Banda-
ríkjunum og hefur komið sér upp vinnu-
aðstöðu heima hjá sér þar sem hann er
með leikstjórann Þór Ómar í stöðugu
síma- eða skype-sambandi. „Ég er hepp-
inn með að í þessari vinnu situr maður
bara við tölvuna og klippir. Þetta gengur
ekki út á neitt annað allan daginn.“
Ragnar segist ekki vita hvað taki við
að loknum Fölskum fugli en hann geti
vel hugsað sér að byrja á því að gera ekki
neitt. „Ég hef nefnilega eiginlega ekkert
fengið að slaka neitt á eftir slysið þar sem
ég fór beint í þetta þegar ég útskrifaðist
af spítalanum. Það væri því ágætt að fá
kannski í það minnsta einn mánuð til
þess að gera ekki neitt. Síðan vonar mað-
ur auðvitað að myndin gangi vel og að
maður fái fleiri verkefni út á hana. Þetta
er náttúrlega bara fyrsta myndin sem ég klippi en
maður vonar bara að það komi eitthvað út úr þessu.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1
mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingran-
na. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að
sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn
eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þun-
guð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki,
háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan púls, er-
fiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota
lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Klippir Falskan
Kvikmyndin Falskur fugl verður frumsýnd í lok mánaðarins. Ragnar Valdimar Ragnarsson
klippir myndina sem er fyrsta bíómyndin í fullri lengd sem hann klippir. Ragnar Valdimar er
bundinn við hjólastól eftir slys sem hann lenti í í mars 2011. Hann segist njóta þess að hægt
sé að sinna starfi klipparans sitjandi en hann hefur komið sér upp klippigræjum heima hjá
sér þar sem hann hefur alla þræði í höndum sér.
Ragnar Valdimar klippir Falskan fugl heima hjá sér þar sem hann hefur komið sér upp vinnuaðstöðu. Ljósmynd/Hari
Þetta er
búið að vera
fínt þótt það
sé svolítið
skrýtið að
vera bara
hent svona
allt í einu í
þetta.
fugl úr hjólastól
24 viðtal Helgin 11.-13. janúar 2013