Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.01.2013, Page 34

Fréttatíminn - 11.01.2013, Page 34
6 námskeið Helgin 11.-13. janúar 2013 gítar skóli ólafs gauks www.gitarskoliolafsgauks.com • info@gitarskoliolafsgauks.com Gítarskóli Ólafs Gauks er á Facebook Kennsla í öllum flokkum, 11 vikna námskeið fyrir byrjendur sem lengra komna, yngri sem eldri, hefst 28. janúar 2013. Byrjendanámskeiðið „LÉTT OG LEIKANDI“ hefur slegið í gegn, enda auðvelt og skemmtilegt! Nemendur fá gítara til heimaæfinga endurgjaldslaust á meðan birgðir endast! Þeir sem innritast fyrir 18. janúar fá afslátt af kennslugjaldinu. Sendum sjálfsnámskeiðið „LEIKUR AÐ LÆRA Á GÍTAR“ 2 geisladiskar og bók, hvert á land sem er! Frístundakort Reykjavíkurborgar í gildi. Innritun stendur yfir Kennsla hefst 28. janúar 2013 skólavöruverslun Brautarholti 8 Opið virka daga 9-18 og laugardaga 10-16 sími 517 7210 / www.idnu.is Tilboðsverð: 5.990 kr. (G il di r ti l 2 5. ja nú ar n .k .) DANS FYRIR ALLA! Skráning hafin í síma 586 2600 eða á dansskoli@dansskolireykjavikur.is Barnadansar frá 2 ára Samkvæmisdansar Brúðarvals Sérhópar Zumba Ragnar Linda Javier NÝTT! Zumba með Javier! kynning Mímir-símenntun býður að vanda upp á fjölda námskeiða á vorönn 2013 en fjölbreytt frístundanám- skeið eru mikilvægur hluti af starfi fyrirtækisins. Frístund- anámskeiðin sækir fólk á öllum aldri með mismunandi bakgrunn og væntingar til námsins. Nám- skeið í handverki, saumum og myndlist eru vinsæl auk ýmissa lífsstílsnámskeiða. Frístund- anámskeiðin sinna þörfum fólks fyrir skemmtun, fróðleik og til- breytingu en eru oft varða til frekara náms. Það er í samræmi við aðalmarkmið Mímis-símennt- unar, sem er að skapa tækifæri til náms fyrir fólk með stutta form- lega skólagöngu og hvetja fólk á vinnumarkaði til símenntunar og starfsþjálfunar. Mímir – ekki bara málaskóli Það muna margir eftir Málaskól- anum Mími en Alþýðusamband Íslands keypti Mími á sínum tíma sem hét þá Mímir-Tómstunda- skóli. Ákveðin verkefni voru flutt yfir til Mímis frá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu þegar einkahlutafélagið Mímir-símennt- un var stofnað árið 2002 en Mímir átti einmitt 10 ára afmæli núna rétt fyrir jólin. Þórhallur Vilhjálmsson, kynn- ingar- og upplýsingafulltrúi Mímis, segir að margir þekki fyrirtækið fyrir frístunda- og tungumálanámskeiðin sem það býður upp á. Hann segir fyrir- tækið þó standa fyrir svo miklu meira. „Mímir-símenntun er fræðslufyrirtæki sem starfar á sviði fullorðinsfræðslu og starfs- menntunar. Segjum sem svo að manneskju, sem er komin yfir þrítugt en hélt ekki áfram í námi eftir grunnskóla, langi í háskóla en hún hefur ekki stúdentspróf. Þá getur viðkomandi einstakling- ur komið til okkar í Mími og farið í námsleið sem heitir Mennta- stoðir til þess að koma sér á rétta námsbraut. Við erum svo með aðra námsleið sem heitir Grunn- menntaskólinn og er sérsniðin fyrir fólk sem vill koma sér aftur af stað í nám.“ Aftur í nám Kannanir benda til þess að á bilinu 15 til 20 þúsund Íslendingar eigi við lesblindu að stríða og fyrir þann hóp býður Mímir upp á sérstaka námsleið sem er kölluð, Aftur í nám. Þórhallur segir það vera stórt skref að ákveða að hefja aftur nám eftir langt hlé og þá skipti miklu máli að fá góðan stuðning og hvatningu en í því sérhæfir Mímir sig fyrir utan góða kennslu. „Hjá okkur starfa náms- og starfsráðgjafar og það er hægt að  Námskeið speNNaNdi voröNN fram uNdaN Fjögur þúsund manns stunda nám hjá Mími-símenntun Vinsælu frístundanámskeiðin eru aðeins toppurinn á ísjakanum. panta tíma hjá þeim og fá ráðgjöf sem er ókeypis. Einnig er hægt að fara í svokallað raunfærnimat en það er ferli þar sem metin er þekking og færni á ákveðnu sviði, svo sem reynsla af starfi, námi eða félagsstörfum. Matið getur leitt til styttingar á námi og styrkt einstaklinga verulega á vinnumarkaði. Segjum sem svo að einstaklingur sem kemur hingað til okkar sé búinn að vinna á skrifstofu í 15 ár. Hann er ekki með neina formlega menntun en er kominn með mikla reynslu af vinnumarkaði. Í raunfærnimatinu er kunnáttan metin áður en námið hefst. Svo þegar einstaklingurinn fer í nám hjá okkur, eins og til dæmis í Skrifstofuskólann, þá hefur hann staðfesta punkta og þarf ekki að byrja alveg á grunninum þar sem hann hefði þurft að sitja og læra eitthvað sem hann kann svo vel að hann gæti kennt kennar- anum.“ Spennandi tímar fram undan Hátt í fjögur þúsund manns stunda nám hjá Mími-símenntun á hverju ári í námsleiðum eða á fjölbreyttum námskeiðum. Fastir starfsmenn hjá fyrirtæk- inu eru rúmlega tuttugu og hátt í 200 verktakar fást við kennslu og önnur verkefni. Fyrirtækið er með mjög góða aðstöðu, kennslustofur með nýjustu tækni sem henta vel fullorðnu fólki. Starfsemin fer fram á tveimur stöðum, í Ofanleiti 2 og í gamla Stýrimannaskólanum á Öldu- götu 23 í Reykjavík. Þórhallur segir bæði mögulegt að stunda nám á daginn og á kvöldin. Hann er spenntur fyrir vorönninni og segir mikið vera í boði. „Það er mikið af mjög spennandi námskeiðum í boði á vorönn 2013. Þar má meðal annars nefna námskeið um Njálu og tilurð hennar sem hinn bráðsnjalli rithöfundur, Einar Kárason, kennir. Ekki má heldur gleyma hinu vinsæla Eurovision námskeiði sem Reynir Þór Egg- ertsson kennir.“ Námskeiðið hefst í næstu viku og verður kennt í húsnæði Mím- is í Ofanleiti 2. Kennsla verður fimmtudaginn 17. janúar og þriðjudaginn 22. Kennari á nám- skeiðinu verður Kristín Lóa Við- arsdóttir. Hún segir námskeiðið vera skemmtilegt byrjendanám- skeið. „Þetta hentar sér- staklega eldra fólki sem vill tengjast gömlu vinunum, fylgjast með barnabörnunum og ættingjum. Hver og einn fær aðstoð til að búa til sína síðu, setja réttar stillingar og svo framvegis. Við förum yfir það hvernig á að senda skilaboð, setja inn myndir og spjalla við fólk.“ Kristín Lóa hvetur fólk til að koma á nám- skeiðið. Það ætti enginn að vera hræddur við þetta, það geta allir lært að nota Facebook. Facebook fyrir eldri borgara

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.