Fréttatíminn - 11.01.2013, Side 38
H eyrnartækni er fjöl-skyldufyrirtæki í eigu hjónanna
Björns Víðis sonar og
Önnu Lindu Guð-
mundsdóttur sem
starfa þar bæði. Starf-
semi Heyrnartækni
fer fram í Glæsibæ
en jafnframt hefur
Heyrnartækni boðið
upp á heyrnartækja-
þjónustu á landsbyggð-
inni frá því árið 2002 og
í dag veitir fyrirtækið
reglulega þjónustu á 19
stöðum á landsbyggð-
inni.
Hver eru einkenni
heyrnarskerðingar?
Erfiðleikar með að heyra í fjöl-
menni eða klið er eitt af fyrstu ein-
kennum heyrnarskerðingar sem flestir
taka eftir. Anna Linda nefnir einnig
önnur einkenni eins og til dæmis að
hvá oft, finnast aðrir tala óskýrt og að
þurfa að hækka meira í sjónvarpinu en
áður. „Á heimasíðunni okkar; www.
heyrnartaekni.is er stutt heyrnarpróf
sem hægt er að taka en það getur gefið
vísbendingu um hvort þörf sé á að fara
í heyrnarmælingu.
Því miður bíða margir of lengi með
að gera eitthvað í sínum málum og
að fá sér heyrnartæki. Rannsóknir
sýna að það tekur einstaklinga með
heyrnarskerðingu að meðaltali um 7 ár
að fá sér heyrnartæki eftir að heyrnar-
skerðing hefur verið greind. Vissu-
lega finnum við þó fyrir því að þetta
er smám saman að breytast. Fólk er
að verða meðvitaðra um það hversu
mikilvægt það er að heyra vel og
það að fá sér heyrnartæki.“ Anna
Linda segir þetta í rauninni vera
spurningu um
lífsgæði. Að
heyra vel hjálpi
okkur öllum
að vera virkir
þátttakendur í
lífinu.
Ósýnileg heyrnartæki
Heyrnartæki hafa tekið
miklum útlitsbreytingum á
undanförnum árum. Tækninni
fleygir stöðugt fram. Í dag er boðið
upp á úrval af nettum heyrnartækjum
sem eru nánast því ósýnileg á bak
við eyrað. „Nýlega kom á markað hjá
okkur heyrnartæki sem er algjörlega
ósýnilegt í eyra. Þetta tæki er svo lít-
ið að það er rétt stærra en kaffibaun.
Tækið er sérsmíðað og liggur svo
djúpt í hlustinni að það er ósýnilegt
með öllu. Að fá sér heyrnartæki er
stórt en mikilvægt skref í átt að betri
lífsgæðum. Fyrsta skrefið er þó að
fara í heyrnarmælingu og sjá hvort
tímabært sé að byrja að nota heyrnar-
tæki. Við bjóðum upp á fríar heyrnar-
mælingar og heyrnartæki til prufu í
vikutíma, hægt er að bóka tíma í síma
568 6880. Skoðun, heyrnarmæling og
ráðgjöf tekur um það bil eina og hálfa
klukkustund.“
KAUPTU FJÓRAR
FÁÐU SEX
Silki andlitsolía, djúpnærandi serum
Inniheldur aprikósu- og arganolíur sem eru
eftirsóttar vegna endurnýjandi og nærandi
eiginleika sinna á húðina og gefa henni nýtt líf
og ljómandi áferð. Sannkölluð vítamínbomba.
Húðnæring, e-vítamín augnsalvi
Gefðu húðinni extra umönnun og næringu
með granateplaoliu, E-vítamíni, morgunfrúar,-
rósa- og blágresisolíu sem vernda, næra og
mýkja húðina.
Urtasmiðjan Sóla
lífræn vottuð vara
netverslun
urtasmidjan.is
sími 462 4769
Fæst í helstu
náttúruvöruverslunum
Fjallagrös og FíFlarót
Fæst í heilsubúðum og apótekum
www.annarosa.is
Fjallagrös og fíflarót hafa
frá ómunatíð verið notuð
til að hreinsa meltinguna
en tinktúran er einnig
sérstaklega góð gegn
uppþembu og vindgangi.
30 heilsa Helgin 11.-13. janúar 2013
Heyrnartækni einkarekin Heyrnartækjastöð
Að fá sér
heyrnar-
tæki er
stórt en
mikilvægt
skref í átt
að betri
lífsgæðum.
Mikilvægt að bíða
ekki of lengi með að
fá sér heyrnartæki
KYNNING
Fyrirtækið Heyrnartækni var stofnað árið 2001 og er fyrsta einkarekna heyrnartækjastöðin á
Íslandi. Frá upphafi hefur Heyrnartækni haft umboð fyrir heyrnartæki frá Oticon sem er einn
elsti, stærsti og virtasti heyrnartækjaframleiðandi heims.
Anna Linda Guðmundsdóttir segir þau hjá Heyrnartækni bjóða tæki sem séu algjörlega ósýnileg í eyra.