Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.01.2013, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 18.01.2013, Qupperneq 4
Voltaren Dolo 25 mg - nú tvöfalt sterkara en áður! Voltaren Dolo 25 mg Lyfjaval.is • sími 577 1160 Bílaapótek Hæðasmára Mjódd Álftamýri 15% afsláttur veður Föstudagur laugardagur sunnudagur A og sA 15-23 m/s og rigning um sunnAnvert lAndið. A 8-15 m/s norðAntil og léttir til. HöfuðborgArsvæðið: NorðaustaN 10-18 m/s og rigNiNg. Hiti 2 til 6 stig. sA og A 8-15 m/s, HvAsst með s-ströndinni. skýjAð með köflum sv-til en bjArt n-lAnds. HöfuðborgArsvæði : austaN 8-13 m/s og smáskúrir. þurrt síðdegis. Hiti 1 til 4 stig. sA 5-13 m/s og rigning eðA slyddA sA-til, en þurrt um lAndið norðAnvert. kólnAr. HöfuðborgArsvæðið: austaN 5-13 og þurrt að kalla. Hiti um frostmark. kólnar lítið eitt í veðri þegar líður á helgina austanáttir með úrkomu, einkum á suður- og austurlandi eru viðvarandi um helgina, það kólnar lítið eitt þegar líður á helgina og rigningin gæti farið fyri í slyddu eða snjókomu suðaustantil á sunnudag. austan strekkingur með skúrum eða rigningu sunnan og austantil, og jafnvel slyddu eða snjókomu þegar líður á helgina. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar á sunnudag. 5 4 3 3 7 3 2 0 1 4 1 0 -2 -1 2 elín björk jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is g rænmetisneysla unglinga í Hagaskóla hefur auk-ist til muna eftir að skólinn tók upp þá nýjung að bjóða upp á salatbar og heitan rétt í sjálfsaf- greiðslulínu og er fyrsti grunnskóli Reykjavíkurborgar sem tekur upp það fyrirkomulag. Markmiðið er að auka hollustu matarins en Hagaskóli vinnur eftir hugmynda- fræðinni um heilsueflandi grunnskóla. Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla, segir að nemendur hafi tekið nýjunginni mjög vel og gaman hafi verið að sjá hve magn grænmetis á diskum þeirra hafi aukist. „Einnig tókum við eftir því að mun minna af mat endaði í ruslinu en við lögðum einmitt áherslu á það við börnin að þau myndu frekar fá sér minna á diskinn og fara frekar fleiri ferðir þannig að þau geti klárað af disknum,“ segir Ingibjörg. „Það var líka gaman að sjá hve fjölbreytnin var mikil á diskunum. Það er oft talað um að börn borði ekki grænmeti, en þessi reynsla sýnir okkur að það er ekki rétt,“ segir hún. Trausti Magnússon, kokkur skólans, hefur borið hitann og þungann af þessari breytingu, að sögn Ingi- bjargar en hann situr í þróunarhópi skólans um heilsu- eflandi grunnskóla. Sigurveig Káradóttir matreiðslumaður er ein þriggja mæðra skólabarna sem tóku sig saman fyrir rúmum tveimur árum og gerðu úttekt á skólamötuneytum. Niðurstaða þeirra var að of lítið framboð væri af fersk- vöru, svo sem grænmeti og ávöxtum, og að allt of mikið væri um matvæli úr lélegu hráefni sem væru full af aukaefnum. „Ég er ánægð að heyra að skólarnir séu farnir að leggja sig fram við að bæta hollustu og fjöl- breytni ferskvöru í mötuneytum sínum,“ segir Sigur- veig. „Þó svo ég hafi ekki kynnt mér fyrirkomulagið í Hagaskóla hljómar það vel. Börnum er gefinn kostur á að skammta sér sjálf á diskinn og minnkar það til að mynda sóun og gefur þeim kost á að auka fjölbreytni á disknum,“ segir hún. Sigurveig hvetur skólamötuneyt- in til að leggja meiri áherslu á árstíðabundna vöru til að auka ferskleika hráefnisins. „Við eigum alveg að sleppa forsoðnum, innfluttum matvælum,“ segir hún. Á boðstólum í Hagaskóla í gær var til að mynda kjúk- lingalasagna og hvítlauksbrauð í heita borðinu og í kalda borðinu var boðið upp á kalt pastasalat, melónur, salat, brokkólí, ólífur, sólþurrkaða tómata, hvítlauk í olíu, tvenns konar tómatsalöt og salatsósur. „Einn drengur í tíunda bekk sagði við mig, fyrsta daginn sem nýja mötuneytið var tekið í notkun, að þetta væri það besta sem gerst hafi í skólanum til þessa, hann var svo ánægður með þetta,“ segir Ingibjörg. sigríður dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is leiðrétting í sérblaði um nám- skeið sem fylgdi fréttatímanum í síðustu viku var viðtal við Börk smára krist- insson sem kennir réttu handtökin við fluguköst. Þar fylgdi netfang til skráningar á námskeið sem ekki var rétt. Beðist er velvirðingar á því. síða Barkar smára er: flugukast.wordpress. com unglingarnir í Hagaskóla taka nýju mötuneytisfyrirkomulagi fagnandi og fá sér nú mun meira af grænmeti á diskinn en áður. Ljósmynd/Hari  skólamál nýtt Fyrirkomulag í mötuneyti eykur grænmetisneyslu OYSTER PERPETUAL ROLEX DEEPSEA Michelsen_255x50_K_0612.indd 1 14.06.12 16:57 Grænmetisbylgja í Hagaskóla Nýtt fyrirkomulag í mötuneyti Hagaskóla vekur mikla hrifningu meðal nemenda sem borða nú miklu meira grænmeti og mun minna fer í ruslið því þau skammta sér sjálf og geta valið úr fjölda grænmetis- og ávaxtategunda auk þess sem einn heitur réttur er í boði. jennifer jasinski var einn af erlendu gestakokkunum á hátíðinni í fyrra. Hún eldaði á kolabrautinni. food & fun í tólfta sinn matarhátíðin food & fun verður haldin í reykjavík 27. febrúar til 3. mars næst- komandi. þetta verður í tólfta sinn sem hátíðin er haldin. Venju samkvæmt munu bæði íslenskir matreiðslumeistarar og erlendir kollegar þeirra sjá gestum hátíðarinnar fyrir veislu- mat á bestu veitingastöðum borgarinnar. Á öllum stöðunum er boðið upp á fjögurra rétta sælkeramáltíð á sama verði. Að þessu sinni verða fleiri uppákomur tengdar íslenskum mat og matarmenningu í tengslum við food & fun. til að mynda matvælasýning í Hörpu laugardaginn 2. mars. aðalbakhjarlar hátíðarinnar eru samtök iðnaðarins, icelandair og reykjavíkurborg. 40 ár frá gosi Vestmannaeyingar efna til þakkargjörð- ardagskrár næsta miðvikudag, 23. janúar, til að minnast þess að 40 ár eru liðin frá eldgosinu í Vest- mannaeyjum. fjölbreytt dagskrá verður um daginn en klukkan 19 hefst blysför frá landakirkju niður að höfn. Þar verður athöfn og biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, fer með bæn. Opið verður á veitingastöðum bæjar- ins fram eftir kvöldi. íbúar Vestmannaeyja eru hvattir til að láta jólaljósin loga og kveikja á friðarkertum við hús sín til að minnast þessara atburða. 4 fréttir Helgin 18.-20. janúar 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.