Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.01.2013, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 18.01.2013, Blaðsíða 30
Bastían ber ábyrgðina É Ég man enn spenninginn eftir því að sjá Kardimommubæinn í Þjóðleikhúsinu sem barn þar sem Bastían bæjarfógeti réð ríkjum, að minnsta kosti að nafninu til, ræningjarnir þrír, Kasper, Jesper og Jón- atan fóru í reglulegar ránsferðir og full- komnuðu ferilinn með því að ræna Soffíu frænku, sem ekki var öll þar sem hún var séð og Kamilla litla söng svo undur fallega. Í einfeldni minni hef ég alla tíð síðan staðið í þeirri meiningu að lífið í Kardi- mommubæ hafi verið tiltölulega saklaust, þrátt fyrir gripdeildir þeirra þremenn- inga og ránið á Soffíu frænku. Hún lét þá kumpána enda ekki eiga neitt hjá sér held- ur kenndi þeim mannasiði. Í hverju skoti hjá þeim var skúm og ryk. Jesper komst ekki upp með frekara múður. Hann mátti skítinn þvo og skrúbba óhroðann. Þeir Jónatan voru síðan reknir í bað eftir að Kasper hafði hitað vatn enda voru andlit þeirra svört eins og moldarflag. Það kom því á mig á dögunum þegar ég las frétt um allt annan veruleika í Kardi- mommubænum og beinlínis skaðlegan ungviði. Sofia Jupither, leikstjóri í Svíþjóð, skrifaði grein í norska blaðið Aftenposten og fann Kardimommubænum allt til for- áttu. Hún fullyrti að boðskapur norska leikskáldsins Thorbjörns Egner, sem einnig samdi Dýrin í Hálsaskógi og Kar- íus og Baktus, og sýn hans á konur skað- aði börn. „Það að Kasper, Jesper og Jón- atan ræni Soffíu frænku kennir börnum að ef karlmaður getur ekki náð sér í konu til að elda fyrir sig og gera hreint þá er mannrán sjálfsagt örþrifaráð,“ segir Sofia og er ekki sátt við meðferðina á nöfnu sinni í Kardimommubænum. Ég sem hélt að Soffía hefði verið sterk- ari en ræningjagreyin, mesta skass, ef leyfilegt er að segja það, eða öllu heldur mikill kvenskörungur. Hún tók því hvorki við beiðni ræningjanna um að elda ofan í þá né þrífa ræningjabælið heldur skipaði þeim að sitja og standa eftir sínu höfði, eftir nokkra tiltekt að vísu enda var ekki nokkur hlutur á sínum stað eftir að Soffía hafi farið um sem hvítur stormsveipur. Þeir áttu því ekki annan kost í stöðunni en að ræna henni til baka – skila henni aftur til síns heima. Í millitíð hafði hið milda yf- irvald, Bastían bæjarfógeti, að vísu reynt að bjarga Soffíu úr prísund ræningjanna en sú góða kona kærði sig hreint ekki um að láta bjarga sér. Rán þeirra Jespers, Kaspers og Jónat- ans á Soffíu frænku mun því, samkvæmt kenningum Sofiu Jupither, hafa skaðað mig sem barn og væntanlega til allrar frambúðar. Hið sama á þá við um hátt í tvö hundruð þúsund Íslendinga, obba þjóðar- innar, sem séð hafa Kardimommubæinn frá því hann var fyrst sýndur hér á landi, í Þjóðleikhúsinu árið 1960. Leikhúsið hefur síðan tekið leikritið til reglulegra sýninga enda hefur það notið fádæma vinsælda. Hver ný kynslóð hefur því fylgst með mannskemmandi samskiptum ræn- ingjanna og Soffíu frænku, hvernig þeir rændu konu til að elda fyrir sig og hreinsa bælið af því að þeir nenntu því ekki sjálfir. Ég og mín kynslóð fengum því, sam- kvæmt kenningu Sofiu Jupither, ranghug- myndir í kollinn á viðkvæmum barns- aldri. Þar virðist vera fundin skýring á rembu þeirra karla sem komnir eru á virðulegan aldur og sáu fyrstu uppfærslu Þjóðleikhússins á Kardimommubænum – og kannski meira og minna allra ís- lenskra drengja sem síðan hafa þroskast í fullvaxta karla. Hvaða áhrif rán Kaspers, Jespers og Jónatans á Soffíu frænku hafði á stúlkur jafnaldra okkur, og nánast allar íslenskar stúlkur síðan, skal ósagt látið. Þarna er þá komin skýringin á því hversu hægt gengur að jafna mun kynjanna í okk- ar annars ágæta samfélagi. Ræningjarnir í Kardimommubænum eiga sökina og ekki síður hið lina yfirvald, Bastían. Ekki bætir úr skák að áður en yfir lýkur trúlof- ast Soffía frænka sjálfum Kasper, einum mannræningja sinna. Það eru voðaleg ör- lög. Verst af öllu er að Þjóðleikhúsið held- ur áfram að sýna Kardimommu bæinn, þjóðhættulega sýningu, með reglulegu millibili. Brotavilji stjórnenda þar á bæ er einbeittur, mann fram af manni. Í þessu sambandi verður mér hugsað til æskuvinar míns. Pabbi hans vann hjá Þjóðleikhúsinu á æskudögum okkar. Hann naut því þeirra forréttinda að fá að fylgjast með æfingaferli Kardimommu- bæjarins, þegar ræningjarnir æfðu mann- ránið og jafnframt það örþrifaráð að skila hinni stjórnsömu og ströngu konu aftur. Þá naut hann aðstöðu sinnar eftir að sýningar hófust og sá því þessa vinsælu barnasýn- ingu, nú alræmdu, rúmlega tutt- ugu sinnum – tuttugu sinnum oftar en meðalbarn þess tíma. Þessi góði æskuvinur minn hlýtur að hafa verið óvenju vel af guði gerður því hjónaband hans hefur verið farsælt og jafnræði með þeim hjónum, barnauppeldið sameiginlega í höndum þeirra svo og heimilishald allt. Þar er hvorki að finna skúm og ryk, skran og rusl og dót, eins og Soffía fann hjá ræningjunum. Ábyrgð Bastíans bæjarfógeta, sem æðsta yfirvalds í Kardimommubænum, er því mikil og sömuleiðis skapara hans, hins norska Thorbjörns Egners. Látum ástandið í heimalandi hans liggja á milli hluta en hérlendis ber Bastían, auk ræningjahyskisins, ábyrgð á bévítans karlrembunni sem öllu tröllríður. Ef ekki væri fyrir þann milda þrjót væri staða kynjanna löngu orðin jöfn. Sofia Jupither leggur til að verkum Egners verði fargað. Um þann gjörning hljóta allir sann- gjarnir menn að vera sammála. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i 30 viðhorf Helgin 18.-20. janúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.