Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 6

Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 6
 söfnun Eva Lind vEiktist stuttu fyrir jóL Þú leggur línurnar létt&laggott TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is Á disknum er súrdeigsbrauð, hráskinka, camembert ostur, fíkjur, amerískar pönnukökur og hágæða hlynsíróp, sætkartöflusalat með geitaosti og sólkjarnafræjum, bakað egg, grísk jógúrt með heimalöguðu múslí, íslenskt grænmeti og ávextir. BRUNCH-DISKUR Á NAUTHÓL Í BOÐI Á SUNNUDÖGUM FRÁ KL 11.00 – 15.00 www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is tel.: 599 6660 „Við stofnuðum ferðasjóð því okkur finnst mikilvægt að börnin geti haldið sambandi við fjölskylduna sína og vini hér heima,“ segir Karen Íris Bragadóttir. Karen Íris er í forsvari fyrir styrktarsjóð tveggja barna sem búsett eru í Danmörku. Börnin sem eru þriggja og átta ára misstu móður sína, Evu Lind Jónsdóttur, úr sjaldgæfum sjúkdómi þann 8. janúar síð- astliðinn. Hún háði skamma baráttu við sjúkdóminn en samkvæmt upplýsingum Karenar veiktist Eva Lind rétt fyrir jól. Hún verður jarð- sungin í dag, föstudag. Karen Íris biður þau sem sýna vilja hug í verki að styrkja börnin og gera þeim þannig kleift að ferðast hing- að til lands og eiga með því frekari möguleika á að rækta tengsl sín við Ísland og halda góðu sambandi við fjölskyldu og vini. Þeim sem vilja leggja börnunum og fjölskyldunni lið er bent á bankareikning barnanna: 0546-14-402648, kt. 270404-5370. Ferðasjóður fyrir börn vegna andláts móður L andspítalinn undirbýr nú hvernig bregðast skuli við þann 1. mars þegar uppsagnir hjúkr-unarfræðinga á spítalanum taka gildi. Eitt af því sem gert er ráð fyrir er að fresta þurfi aðgerðum sem ekki eru bráðaaðgerðir og önnur starfsemi spítal- ans, sem ekki snýr að bráðatilfellum, verði einnig skorin niður. Ófremdarástand skapast á þremur sviðum Landspítalans þann 1. mars verði ekki brugð- ist við uppsögnum hjúkrunarfræðinga. Um einn af hverjum fimm hjúkrunarfræðingum á kvenna- og barnasviði Landspítalans hafa sagt upp og hlutfallið er hið sama á lyflækn- ingarsviði. Flestar uppsagnir eru hins vegar á skurðlækningasviði þar sem einn af hverjum þremur hjúkrunarfræðingum hefur sagt upp. Alls hafa 280 hjúkrunarfræðingar sagt upp störfum af þeim rúmlega 1300 sem starfa við spítalann. Ragnar Bjarnason, yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, hefur miklar áhyggjur af því ástandi sem skapast geti á Barnaspítalanum taki upp- sagnirnar gildi. „Ef þetta gengur eftir verða mikil vandræði hér á spítalanum, þetta er mikið áhyggju- efni,“ segir Ragnar. „Við vonum að þetta gangi ekki eftir en við erum að undirbúa viðbrögð sem felast í því að skera niður mikið af þeirri starfsemi sem ekki telst bráð en það kemur í bakið á okkur seinna,“ segir Ragnar. Svo gæti farið að starfsemi sviðanna myndi dragast saman sem nemur hlutfalli uppsagnanna. „Það er enginn hér sem bíður eftir verk- efnum,“ segir Ragnar. Hann bendir á að það sé ekki á ábyrgð spítalans að leysa úr vand- anum heldur ríkisins. „Fjármálaráðuneytið semur við starfsmenn, Landspítalinn er ekki í þeirri stöðu að eiga hundruð milljóna til að bæta kjör starfsmanna,“ segir Ragnar. „Það hefur margoft komið fram í þessari umræðu að heilbrigðisstéttir almennt hafa dregist aftur úr í launum, hvort sem borið er saman við almennan vinnumarkað eða aðra opinbera starfsmenn. Það er ekki hægt að skýla sér bak við það að starfsmennirnir séu svo margir að það sé ekki hægt að borga þeim laun,“ segir Ragnar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra samsinnir því að ríkið beri ábyrgð á Landspítal- anum og rekstri hans og því sé á ábyrgð þess að leysa málið. „Það flækir hins vegar málið að þetta er ekki kjaradeila heldur hreinar og klárar uppsagnir sem tak- markar möguleika okkar því kjarasamningar við hjúkrunar- fræðinga eru ekki lausir fyrr en árið 2014,“ segir hann. Guðbjartur segir að ýmsir möguleikar hafi verið skoð- aðir til að leysa þetta mál en hann vill ekki útlista þá nánar. Spurður hvort hann sé vongóður um að deilan leysist áður en til uppsagn- anna komi þann 1. mars segir hann: „Það koma tveir aðilar að þessu máli. Við verðum að sjá til með þetta, ég vil ekki vera með neinar yfirlýsingar. En ef vilji er til að leysa málið þá verður það leyst,“ segir hann. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  HEiLbrigðismáL skEra þarf niður vErði kjaradEiLa Ekki LEyst Málið leysist ef vilji er til Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að vandamál vegna uppsagna hjúkrunarfræðinga muni leysast sé vilji til þess. Læknar og annað starfsfólk spítalans er uggandi vegna uppsagnanna og undirbýr nú viðbrögð sem felast í niðurskurði á starfsemi. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra. Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum Eva Lind Jónsdóttir lést úr sjaldgæfum sjúkdómi 8. janúar. 6 fréttir Helgin 18.-20. janúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.