Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 20

Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 20
Hann fór að spyrja mig um hvað hefði komið fyrir hana og sagði mér í framhaldinu frá hindúa presti, kraftaverka- manni, sem hann var sannfærður um að gæti hjálpað henni. Ó löf Þráinsdóttir hefur farið fimm sinnum með dóttur sína, Rebekku Allwood, í stofnfrumu- meðferð til Indlands á undanförnum árum. Rebekka er 23 ára en fyrir tíu árum slasaðist hún alvarlega í umferðarslysi svo hún hlaut varanlega fötlun af. Móðir hennar hefur einnig farið með hana í meðferð til Bali þar sem hún var í þrjá mánuði í djúpnuddi og hnykkingum árið 2006. Meðferðin á Bali varð til þess að hún gat gengið með göngugrind en hafði í þrjú ár frá slysinu verið föst í hjólastól. Rebekka var að stytta sér leið yfir Vesturlandsveginn á leið á íþróttaæf- ingu í Mosfellsbæ þar sem hún býr enn. Hún varð fyrir bíl og kastaðist um 30 metra við áreksturinn. Hún hlaut mikið höfuðhögg og tveir hálsliðir brotnuðu. Einnig tvífótbrotnaði hún og skaddaðist í andliti. Afleiðingin af höf- uðhögginu var varanlegur heilaskaði sem hefur haft andleg sem líkamleg áhrif á Rebekku. Hún talar mjög hægt og á í erfiðleikum með skammtíma- minni. Hún á erfitt með fínhreyfingar og enn skortir eitthvað upp á jafnvægið og göngutækni. Rebekka var í rúmt ár á spítala og endurhæfingu á Grensásdeild. Hún var mállaus í fjóra mánuði en fór þá smám saman að geta myndað orð. Fyrst að- eins með vörunum en síðan tókst henni að koma upp hljóði. Móðir hennar segir að ótrúlega litlar framfarir hafi orðið hjá Rebekku fyrstu mánuðina og jafnvel fyrsta árið eftir slysið og telur hún að mistök í meðferð Rebekku fyrstu mánuðina hafi gert illt verra því baráttuandi sé mestur fyrst eftir slys en erfitt sé að sanna slíkt. Eftir ár var Rebekka útskrifuð af Grensásdeildinni og um leið ýtt út úr heilbrigðiskerfinu, að sögn móður hennar. „Hún var sett í skóla þótt hún væri á engan hátt í stakk búin til þess. Hún hafði einbeitingu í 15-20 mínútur í senn til að byrja með en ráðinn var þroskaþjálfi til að sinna henni. Hún var í styttri tíma í skólanum en jafnaldrar hennar og þurfti svo að sækja þjálfun og meðferð inn í Reykjavík og var því upp undir þrjá tíma á dag í ferðaþjón- ustubílum. Þetta var engan veginn ásættanlegt, hún hefði þurft að vera á stofnun þar sem fléttað væri saman þjálfun og menntun en slík stofnun er ekki til hér á landi,“ segir Ólöf. Að loknum grunnskóla fór Rebekka í Borgarholtsskóla og var á svokallaðri starfsbraut þar sem áhersla er lögð á verknám sem ekki hentaði Rebekku, sem fötlunar sinnar vegna átti mjög erfitt með að nota hendurnar. Tilviljun leiddi þær til kraftaverka- manns Ólöf fór með Rebekku í viku frí til Bali árið 2005, tæpum þremur árum eftir slysið. „Fyrsta morguninn, þegar við vorum að borða morgunmat á hótelinu varð einum kokkinum mjög starsýnt á Rebekku. Hann fór að spyrja mig um hvað hefði komið fyrir hana og sagði mér í framhaldinu frá hindúa presti, kraftaverkamanni, sem hann var sann- færður um að gæti hjálpað henni,“ segir Ólöf. Kraftaverkamaðurinn, Mangku Sudarsana, bjó í litlu þorpi undir Mount Agung, heilögu fjalli Bali- búa. „Við heimsóttum hann þrisvar. Í fyrsta skiptið gerði hann lítið annað en að skoða Rebekku, nuddaði hana pínulítið, en í annað skiptið nuddaði hana mjög djúpt. Á þessum tíma var Rebekka orðin mjög hokin og sat í keng í hjólastólnum. Í leigubílnum á leiðinni heim á hótelið eftir þetta mikla djúpnudd rétti hún úr sér og teygði handleggina aftur fyrir okkur pabba hennar sem sátum sitt hvoru megin við hana og sagði brosandi: „Hann frelsaði bakið á mér!“,“ segir Ólöf. „Í þriðja skiptið sem hann hitti Rebekku var hann fyrst og fremst að skoða áhrifin af því sem hann hafði gert. Hann nuddaði hana reyndar svolítið og sagðist telja að hann gæti hjálpað henni töluvert ef hún gæti verið hjá honum í meðferð í 3-6 mánuði,“ segir Ólöf. Á þessum tíma var Rebekka með mikla ósjálfráða vöðvakippi, sér- staklega í hægri hendi og hafði verið í hjólastól frá því slysið varð. „Þarna voru liðin tvö og hálft ár og það höfðu ekki orðið miklar framfarir hjá henni frá því hún útskrifaðist úr heilbrigðis- kerfinu. Vöðvakippirnir í hægri hendi voru fyrst og fremst ástæðan fyrir því að hún var í hjólastól því hún var ekki lömuð. Hún gat ekki gengið við göngu- grind því hún kippti henni einfaldlega undan sér og jafnvægið var ekkert,“ segir Ólöf. Þrjá mánuði á Bali Á þessum tíma átti Ólöf kost á því að fara á eftirlaun, sem hún gerði, fjórum mánuðum eftir Bali-ferðina. Fóru þær mæðgur þá aftur til Bali þar sem Rebekka var í þrjá mánuði í meðferð hjá Mangku Sudarsana. „Þetta var mest djúpt nudd og hnykkingar í tutt- ugu mínútur til hálftíma á dag og ég fór svo með hana í ræktina og reyndi að láta hana læra íslensku og stærð- Hefur farið fimm sinnum í stofnfrumumeðferð til Indlands Rebekka Allwood lenti í alvarlegu umferðarslysi fyrir tíu árum, þá 13 ára, og hlaut alvarlegan heilaskaða af. Móðir hennar, Ólöf Þráinsdóttir, hefur leitað læknismeðferðar fyrir dóttur sína út fyrir landsteinana í von um að hún eignist betra líf og hefur tvisvar farið með hana í nuddmeðferð til Bali og fimm sinnum til Indlands í stofnfrumumeðferð. fræði en Rebekka tók miklum framförum á þessum tíma og fór að geta gengið með aðstoð göngugrindar þegar við komum heim þótt hún gengi mjög hægt. Hún hafði líka skýrst í hugsun og henni farið fram í tali,“ segir Ólöf. „Þegar við komum heim vonaðist ég til að hægt væri að koma Rebekku aftur í endurhæfingu fyrst henni hafði farið svona mikið fram í þriggja mánaða með- ferð á Bali. Það var hins vegar ekki hægt. Framfarirnar stöðvuðust einkum vegna þess að hún var alltaf af og til að fá mikla verki í hægra hnéð og gat þá varla eða ekki stigið í fótinn sem hafði ekki verið rétt settur saman eftir slysið. Henni fór samt sem áður ekki aftur svo ég tæki eftir fyrr en þremur árum síðar þegar hún var að ljúka framhaldsskóla en þá fannst mér henni fara að hraka andlega,“ segir Ólöf. Nokkrum árum eftir slysið var Ólöf farin að kynna sér stofnfrumumeðferðir við heila- og taugaskaða. Hún ræddi við lækni hér á landi sem ráðlagði henni frá því að fara með Rebekku í stofnfrumu- meðferð vegna þess hve aukaverkanir gætu verið slæmar. „Þegar líða tók að því að Rebekka útskrifaðist úr framhalds- skóla og ekkert tók við fór ég aftur að skoða stofnfrumumeðferðir þar sem það virtist eina vonin. Þá rakst ég á heimasíðu Amöndu Boxtel sem þá var í fósturvís- astofnfrumumeðferð á Indlandi. Amanda var með mjög greinargóðar upplýsingar á síðunni sinni og ég fann líka fleiri sem voru með svipaðar síður. Hvergi var minnst á neinar aukaverkanir. Eftir að Rebekka útskrifaðist úr framhaldsskóla var reynt að finna handa henni atvinnu- úrræði en ekkert fannst við hæfi og það var ekkert í boði nema biðsalur dauðans ef svo má segja. Rebekka var aftur orðin mjög svartsýn og vondauf og langaði ekki til að lifa lengur. Það er hreint ótrúlegt hvað fólk með heilaskaða fær litla þjón- ustu í velferðarríkinu Íslandi en það hjálp- aði mér til að taka þessa ákvörðun sem var hreint ekki auðvelt,“ segir Ólöf. Rebekka Allwood lenti í alvarlegu umferðarslysi þegar hún var 13 ára að stytta sér leið yfir Vesturlandsveginn á íþróttaæfingu í Mosfellsbæ. Móðir hennar, Ólöf Þráins- dóttir, vonast til að stofnfrumumeð- ferðir geti orðið til þess að Rebekka geti lifað sjálfstæðu lífi og þurfi ekki að dveljast á stofnun. Ljósmynd/Hari Framhald á næstu opnu 20 viðtal Helgin 18.-20. janúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.