Fréttatíminn - 18.01.2013, Síða 54
Erla Sigríður
Ragnarsdóttir
segir að tónlistin
snúist um að hlusta
á fólk, tala til þess
og koma skila-
boðum á framfæri.
„Pólitíkin á að
snúast um að tala
saman,“ segir hún.
Stríðið gegn fíkniefnum á Facebook
„Ég held v ið
séum enn frekar
langt frá því að
lögleiða fíkniefni
almennt,“ segir
Gunnlaugur Jóns-
son, frjálshyggju-
maður og verkfræðingur, sem
heldur betur hefur slegið í gegn
á Facebook-síðu lögreglunnar
síðustu daga. Þar hefur hann
spurt krefjandi spurninga og
þúsundir hafa deilt þeim spurningum og
þá svörum lögreglunnar á síðum sínum
á Facebook.
Spurningar Gunnlaugs
tengjast aðgerðum lögreglu
gegn ræktun kannabis.
Þannig má sjá hér við hlið-
ina skemmtilega spurningu
um nágranna með jólatré en
Gunnlaugur telur það einka-
mál þegnanna hvort þeir rækti
kannabis.
„Stríð gegn fíkniefnum
kostar mörg mannslíf á ári og
búið er að setja gríðarlegan
fjölda fólks í fangelsi fyrir ofbeldislausa
glæpi. Lögregla tryggir með aðgerðum
sínum einokun glæpagengja yfir fík-
nefnamarkaðinum og
þessi einokun er varin
með löggjöf. Þessi mark-
aður er í höndum glæpa-
gengja.“
Gunnlaugur segir lögregluna í svipaðri
klípu og á bannárunum í Bandaríkjunum.
Þá urðu glæpaklíkur ofboðslega sterkar
vegna þess að þær fengu einokun yfir
áfengismarkaðinum. Lögregla var látin
tryggja þá einokun með aðgerðum, segir
Gunnlaugur en áhugasamir Facebook-
notendur geta fundið síðu lögreglunnar
á Facebook undir heitinu „Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu.“
Þessari spurningu svaraði lög-
regla á þá leið að þeir vissu ekki
hvar væri best að sækja um
heimild til ræktunar, líklegast
þó hjá Umhverfisstofnun, en svo
benti lögreglan Gunnlaugi á að
athuga hvort plönturnar væru
örugglega leyfðar á Íslandi.
Lögreglan svaraði Gunnlaugi
um hæl: „Eftir að hafa greint
myndina get ég tilkynnt þér
að þarna er á ferð hið algenga
íslenska jólatré. Það að tréð sé
uppi eftir þrettánda er í sjálfu
sér rannsóknarefni, en ekki
fyrir lögreglu. Þú getur skriðið
heim til þín og farið að horfa
aftur á „murder she wrote„.“
Gunnlaugur Jóns-
son verkfræðingur.
InternetIð GunnlauGur Jónsson verkfræðInGur skIlur ekkI aðGerðIr löGreGlu
stJórnmál erla sIGríður seGIr tónlIstIna nýtast í pólItíkInnI
Dúkkulísa vill á þing
fyrir Sjálfstæðisflokk
Dúkkulísan Erla Sigríður Ragnarsdóttir vonast eftir því að verða kjörin á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í næstu alþingiskosningum og tekur nú þátt í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi.
Hún er sannfærð um að reynsla hennar úr tónlistarbransanum muni nýtast vel í pólitíkinni.
D úkkulísan, sagnfræðingurinn og framhalds-skólakennarinn Erla Sigríður Ragnarsdóttir vonast eftir því að taka sæti á Alþingi eftir
þingkosningar í vor og hefur boðið sig fram í 2.-3. sæti
lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í próf-
kjöri sem fram fer 26. janúar. Hún er sannfærð um að
reynsla hennar úr tónlistarbransanum muni nýtast
vel í pólitíkinni. „Dúkkulísurnar eru elsta starfandi
kvennahljómsveit landsins. Það var heilmikið skref
á sínum tíma að ryðjast fram á sviðið í karllægum
hljómsveitarbransanum. Við höfum mætt mótstreymi
í gegnum árin en höfum alltaf staðið saman, stelpurn-
ar,“ segir Erla.
„Ég hef dug og þor til þess að fylgja sannfæringu
minni, berjast fyrir gömlu og góðu sjálfstæðisgildun-
um og er óhrædd að takast á við ný verkefni. Tónlistin
snýst um að hlusta á fólk, tala til þess og koma skila-
boðum á framfæri. Pólitíkin á að snúast um að tala
saman,“ segir Erla.
Hún segist lengi hafa haft áhuga á stjórnmálum. „Ég
er menntuð í stjórnmálum og sögu, lærði í Bandaríkj-
unum, Danmörku og hér á Íslandi og hef kennt félags-
greinar undanfarin 15 auk þess sem ég hef starfað
sem dagskrárgerðarmaður á RÚV og því fylgst með
pólitíkinni af hliðarlínunni. Ég er fyrst núna að koma
út úr skápnum með þennan brennandi áhuga minn og
langar að láta til mín taka í stjórnmálunum,“ segir Erla.
Hún segir að atvinnumál brenni einna helst á fólki
í kjördæminu en einnig þurfi að bæta samgöngu- og
heilbrigðismál á landsbyggðinni. „Tækifærin til að efla
atvinnulífið eru sannarlega til staðar í kjördæminu.
Ferðaþjónustan þarf að fá stöðugt umhverfi svo hún fái
blómstrað og dafnað, lægri álögur á bensín myndu nýt-
ast íbúum sem og atvinnulífinu úti á landi. Og glóru-
laus skattpíning á okkar grunnatvinnuvegum,
landbúnaði og sjávarútvegi, gengur ekki upp.“
„Tækifærin til að nýta náttúruauðlindir
landsins eru allt í kring um okkur,“ segir Erla.
„Það á að taka af skarið þegar í stað með
skynsamlegum hætti . Ísland hefur ekki efni
á tafsi og þrasi um keisarans skegg í önnur
fjögur ár. Engin þjóð hefur efni á því að
nýta ekki sínar auðlindir. Við höfum ein-
faldlega ekki rétt á slíku enda skilar sú
atvinnufjandsamlega stefna sem verið
hefur við lýði á Íslandi frá falli bank-
anna börnunum okkar slökum lífs-
kjörum og skuldaklafa,“ segir hún.
Erla ólst upp á Egilsstöðum en
er nú búsett í Hafnarfirði þar sem
hún starfar sem kennari við
Flensborg.
Aðspurð segist hún ekki
hikandi við að demba sér inn
í þá orrahríð sem fram fer á
Alþingi. „Fólk á að takast á í
stjórnmálum. En það á að takast
á um málefni, ekki menn eða
fortíð þeirra. Það sem einkennir og
truflar störf okkar annars ágæta þings er
málefnafátækt í umræðunni,“ segir hún.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
ölbreytt hönnun
jafn íslenskur og
skyggni ágætt
GÓÐOSTUR
54 dægurmál Helgin 18.-20. janúar 2013