Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 4
GæðaBÍLSTÓLaR
fyRiR BöRnin
ReykjavÍk, Bíldshöfða 9,
kÓpavoGuR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HafnaRfjöRðuR, Dalshrauni 17
ReykjaneSBæR, Krossmóa 4, SeLfoSS, Hrísmýri 7
akuReyRi, Furuvöllum 15, eGiLSSTaðiR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
verðlaunaðir
marg-
Barna-
Bílstólar
Veldu gæði og öryggi fyrir þig og þína
Táknmálstúlkun á Óvitunum
Þjóðleikhúsið býður heyrnarlausum og
heyrnarskertum á öllum aldri að njóta
sýningar leikhússins á Óvitum eftir Guð-
rúnu Helgadóttur, með táknmálstúlkun.
Sérstök sýning verður næsta sunnudag
með táknmálstúlkun í samstarfi við Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnar-
skertra. Táknmálstúlkunin fer þannig
fram að tveir túlkar eru hvor sínum megin
við sviðið og túlka sýninguna jafnóðum.
Sýningin hentar þó öllum og Þjóðleikhúsið
bauð til dæmis nýlega upp á táknmálstúlk-
un á sýninguna Dýrin í Hálsaskógi og nutu
allir sýningarinnar. Sýningin Óvitar hefur
fengið mjög góðar viðtökur en í verkinu
er hlutunum snúið á hvolf þar sem börnin
fæðast stór og minnka með aldrinum.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
NorðausTaN 3-8 m/s og bjarT eN líTils-
háTTar él um laNdið ausTaNverT. FrosT.
höFuðborgarsvæðið: HæGviðri
oG léTTSkýjað.
hæg ausTlæg áTT og léTTskýjað og
TalsverT FrosT.
höFuðborgarsvæðið: auSTlæG áTT oG
léTTSkýjað framan af.
a-læg áTT, hvassviðri eða sTormur um
kvöldið og Talsverð úrkoma.
höFuðborgarsvæðið: auSTan STrekk-
inGur oG riGninG eða SlyDDa.
vetrarveður – hríðarveð-
ur norðantil á sunnudag.
Helgin byrjar vel með hæglætis
veðri um allt land. á morgun sækir
að landinu lægð úr suðri, hún dýpar
hratt og Sa-áttin fer heldur vaxandi
Sv-lands seint á morgun.
austanátt eykst svo á
sunnudag, hvassviðri
með rigningu eða
slyddu S-lands
síðdegis en
norðanátt og
stórhríð n-lands
um kvöldið.
-1
-3 -4
-3
-1
-1
-4 -6 -7
-2
0
-3 -6 -7
1
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
lyuba
kharitonova
segir að
nauðsynlegt
sé að auka
meðvitund
um sam-
félagslega
ábyrgð hjá
íslenskum
fyrirtækjum.
Ljósmynd/Hari
samFélagsábyrgð verðlaun veitt í Fyrsta skipti á íslandi
Auka þarf vitund um
samfélagslega ábyrgð
opið er fyrir tilnefningar á einstaklingum sem hafa verið að vinna í málum sem tengjast sam-
félagslegri ábyrgð eða CSr „corporate social responsibility“ í því fyrirtæki sem þeir vinna hjá.
Gott viðskiptasiðferði, umhverfismál, öryggismál og mannréttindamál eru dæmi um lykilatriði í
samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja.
J CI Ísland vinnur að því að því að fá fyrirtæki sem eru að vinna í samfélagslegri ábyrgð til að taka þátt og ræða um sín verkefni til að vekja með-
vitund og skilning á málefninu. Verkefnið byrjaði með
það takmark í huga að auka meðvitund um grundvall-
arhugsun og meginreglur samfélagslegrar ábyrgðar og
þær breytingar er hægt að gera,“ segir Lyuba Kharito-
nova sem starfar í markaðsrannsóknum hjá tölvuleika-
fyrirtækinu CCP og er meðlimur í JCI Ísland.
JCI Ísland eru alþjóðleg samtök sem stuðla að því að
vekja meðvitund og skilning á samfélagslegri ábyrgð
fyrirtækja eða „corporate social responsibility“ og
vinnur að verkefninu „The Creative Young Entrepre-
neur Award“ (CYEA) sem verður haldið í fyrsta skiptið
nú í lok nóvember og verður árlegur viðburður.
Segir Lyuba að það að fyrirtæki hafi stefnu í sam-
félagslegri ábyrgð þurfi ekki að fela í sér að fyrirtæki
leggi til beina fjármuni í verkefni heldur sé hægt að
taka þátt með ýmsum hætti. Segir hún gott viðskipta-
siðferði, áhrif starfsemi fyrirtækisins á umhverfið,
heilsu, öryggismál, og mannréttindamál vera lykilat-
riði í samfélagslegri ábyrgð.
„Nú er búið að opna fyrir tilnefningar á þeim einstak-
lingum sem hafa verið að vinna í samfélagslegri ábyrgð
innan sinna fyrirtækja. Þetta í fyrsta skipti sem svona
verðlaun verða veitt á Íslandi en lokað verður fyrir til-
nefningar í lok mánaðarins,“ segir Lyuba.
Verkefnið hóf göngu sína á þessu ári því að menn
skynjuðu að það vantaði þekkingu á hugtakinu og talið
var að íslensk fyrirtæki væru ekki meðvituð eða virk í
þessum efnum.
„Það eru margir sem vita ekki hvað samfélagsleg
ábyrgð snýst um og halda að það feli í sér kostnað og
fjárfestingar á meðan aðrir telja að það feli í sér viða-
mikla þátttöku í góðgerðarmálum og haldi þess vegna
að þeir geti ekki tekið þátt, en það er misskilningur,“
segir Lyuba.
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, segir að sam-
kvæmt lögum um Matís grundvallist starfsemi félags-
ins á samfélagslegri ábyrgð sem stuðli að aukinni verð-
mætasköpun í matvælaiðnaði, bættu matvælaöryggi og
lýðheilsu. „Ef maður á að taka dæmi um sérstök verk-
efni sem tengjast samfélagslegri ábyrgð þá haldast lýð-
heilsa og bætt mataræði alveg í hendur og við höfum
auðvitað lagt mjög mikið á okkur í tengslum við kaup
á tækjum til þess að mæla varnarefni í ávöxtum og
grænmeti. Við verðum að vera í stakk búin til að geta
mælt hvaða efni eru í matnum sem við borðum,“ segir
Sveinn.
Þórunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá fyrir-
tækinu Skema, segir að fyrirtækið sé samfélagslegt
í grunninn því starfsmenn vinni að því að efla tækni-
menntun í landinu og bæði með því að halda námskeið
sjálfir með því og að aðstoða skóla og sveitarfélög
við að efla tæknimenntun innan skólakerfisins. „Á
námskeiðunum fáum við mikið af börnum sem hefur
gengið illa að fóta sig í skólakerfinu. Þeim hefur gengið
vel á námskeiðunum hjá okkur og við höfum fengið
fjöldann af þakkarpóstum og símtölum frá foreldrum
því að velgengnin hefur svo smitast yfir í skólana,“
segir Þórunn. Telur hún að almennt geti stjórnendur
fyrirtækja horft á sína kjarnastarfsemi og í fyrsta lagi
skoðað hvaða áhrif hún hefur á umhverfi þeirra og
samfélag og þá hvort hægt sé að nýta kjarnastarfsem-
ina með einhverjum hætti til að vera góð fyrirmynd og
taka þátt í samfélagsverkefnum. Hægt sé að leggja til
þekkingu eins og beina fjármuni.
maría elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Hagvaxtarhorfur betri
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands
ákvað á fundi sínum á miðvikudaginn
að halda vöxtum bankans óbreyttum.
Daglánavextir verða 7,00%, vextir af
lánum gegn veði til sjö daga 6,00%,
hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum
5,75% og innlánsvextir 5,00%.
Samkvæmt þjóðhagsspá Seðlabankans
eru horfur á að hagvöxtur í ár verði
nokkru meiri en bankinn spáði í ágúst,
eða 2,3%, en næstu tvö árin er gert ráð
fyrir svipuðum vexti og áður, að því er
fram kemur hjá bankanum. Batinn á
vinnumarkaði heldur áfram af auknum
krafti. eftir að hafa aukist nokkuð á þriðja
fjórðungi ársins hefur verðbólga minnkað
á ný. viðskiptakjör Íslands hafa versnað á
undanförnum misserum og hefur það sett
þrýsting á gengi krónunnar.
Óvissa vegna kjarasamninga ræður
þó mestu. „Í spá Seðlabankans er sem
fyrr gert ráð fyrir launahækkunum í
kjarasamningum sem eru umfram það
sem samrýmist verðbólgumarkmiðinu
og er þá byggt á sögulegri reynslu. verði
launahækkanir í samræmi við spána er
líklegt að nafnvextir bankans muni að
óbreyttu hækka í framhaldinu, sérstaklega
ef slakinn í þjóðarbúskapnum heldur áfram
að minnka.“ -jh
áhyggjur af verðbólgu
ný könnun Capacent fyrir Samtök atvinnu-
lífsins sýnir að 67,4% landsmanna hafa
miklar áhyggjur af verðbólgunni, 10,5%
hafa litlar áhyggjur en 22% segja að
verðbólgan valdi þeim hvorki miklum
né litlum áhyggjum. áhyggjur fólks af
verðbólgu hafa vaxið frá árinu 2005 þegar
Samtök atvinnulífsins gerðu sambærilega
könnun en þá höfðu 54% landsmanna
miklar áhyggjur af verðbólgunni. -jh
4 fréttir Helgin 8.-10. nóvember 2013