Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 10
Einn ger-
endanna
var aðeins
fjórtán ára
og því ósak-
hæfur.
Dómsmál Ekki Eru nEin DæmigErð viðbrögð við nauðgun
Í flestum málum þar sem sakfellt er í Hæstarétti fyrir nauðgun á unglingsstúlku er gerand-inn ókunnugur. Aðeins í 23% málanna hefur
unglingsstúlkan þekkt gerandann vel, en í öðrum
tilvikum lítið og jafnvel ekkert. „Ég held að líkurnar
á að lögð sé fram kæra þegar gerandi er ókunnugur
séu meiri, en því meira sem fólk þekkist því minni
eru líkur á kæru. Í þeim tilvikum eru þolendur líka
frekar í þeirri stöðu að kenna sjálfum sér um, að
þeir hafi gefið röng skilaboð og sitja uppi með mikla
skömm og sektarkennd,“ segir Svala Ísfeld Ólafs-
dóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík.
Á nýafstöðnu Jafnréttisþingi kynnti hún niður-
stöður óbirtrar rannsóknar sinnar á hæstaréttar-
dómum þegar um er að ræða nauðganir á unglings-
stúlkum. Rannsóknin tekur til allra uppkveðinna
dóma frá stofnum réttarins árið 1920 og til 1. ágúst
2013. Rannsóknartímabilið spannar því tæpa öld
en fyrstu dómar þar sem sakfellt var fyrir nauðgun
á unglingsstúlku féllu á sjöunda áratugnum, eða
þrír dómar. Næstu tvo áratugina þar á eftir féll einn
sakfellingardómur á hvorum áratug. Mikil breyting
varð á árunum 1990-1999 þegar 10 sakfellingar-
dómar féllu, 12 á áratugnum þar á eftir og tveir hafa
fallið á áratugnum sem er að líða, alls 29 dómar.
Svala hefur áður birt viðamiklar rannsóknir á
hæstaréttardómum á kynferðisbrotum gegn börn-
um; þar sem kynferðisbrot eru framin í blóðtengsla-
sambandi, kynferðisbrot gegn aðila sem gerandi á
að annast og ber ábyrgð á, og svo þar sem gerandi
er hvorki blóðtengdur né umönnunaraðili og brota-
þoli er undir kynferðislegum lögaldri. Sá aldur var
14 ár til ársins 2007 þegar hann var hækkaður í 15
ár. „Þegar ég var búin að tína út alla þá dóma, þar
sem ákært hafði verið fyrir þau ákvæði kynferðis-
brotakafla hegningarlaganna sem eru sérákvæði til
verndar börnum, var enn eftir bunki af dómum. Í
ljós kom að þetta voru dómar þar sem ákært hafði
verið fyrir nauðgun og þolandinn var unglings-
stúlka,“ segir Svala.
Mjög algengt var að stúlkurnar bæru áverka,
oftast kynfærum, sem voru staðreyndir af lækni. „Í
þessum málum er langoftast kært strax. Sýnilegir
áverkar bera vott um ofbeldi og auðvelda sönnun.
„Það er allt annar veruleiki heldur en þegar við
skoðum kynferðisbrot gegn börnum þegar kært er
jafnvel árum eða áratugum seinna. Það vakti raunar
athygli mína í hversu mörgum tilvikum grófu
ofbeldi var beitt en aðeins í einu máli var einnig
sakfellt fyrir alvarlegt ofbeldi,“ segir Svala. Það var
í svonefndu Þverholtsmáli frá árinu 1983 þegar full-
orðinn karlmaður keyrði grjóthnullung ítrekað í
höfuð 15 ára stúlku svo hún missti meðvitund, stakk
skrúfjárni víðs vegar um líkama hennar, meðal
annars í augu hennar og brenndi kynfæri hennar
með kveikjara. Hann var dæmdur í 10 ára fangelsi
og var það þyngsti dómurinn.
„Eitt sem ég komst líka að er að í þessum 29
málum brugðust stúlkurnar við á margvíslegan og
ólíkan hátt og segja fyrstu viðbrögð því ekki endi-
lega neitt um alvarleika verknaðarins. Í einu málinu
er ráðist á 15 ára gamla blaðburðarstúlku sem að
morgni dags var að bera út Morgunblaðið. Drukk-
inn 21 árs maður ræðst á hana og nauðgar henni
í anddyri fjölbýlishúss. Stúlkan kláraði að bera út
Moggann áður en hún fór heim og sagði mömmu
sinni hvað hafði gerst. Viðbrögð þolenda geta stutt
við rannsóknina en þau eru síður en svo alltaf eftir
fyrirfram gefnum hugmyndum okkar hinna og
segja ekkert til um brotið. Það eru engin dæmigerð
viðbrögð við nauðgun,“ segir Svala.
Aldursmunur geranda og þolanda er mun minni
þegar kemur að nauðgunum á unglingsstúlkum en
þegar um er að ræða kynferðisbrot gegn börnum.
„Oftast virðast þessar stúlkur vera í aðstæðum
með jafnöldrum sínum eða aðeins eldri strákum þó
einnig séu dæmi um að menn, sem eru nógu gamlir
til að vera feður þeirra, lokki þær á afvikinn stað þar
sem þeir nauðga þeim. Mesti aldursmunurinn var
33 ár. Í því máli þröngvar 49 ára karlmaður 16 ára
stúlku til samræðis í hlöðu við hesthús á landareign
hans. Hann hafði ekið með hana þangað til að bjóða
henni í reiðtúr eins og hann hafði gert nokkrum
sinnum áður.“ Stúlkan sagðist hafa litið á þennan
mann sem vin sinn.
Svala segir það hafa komið sér á óvart hversu stór
hluti gerenda voru börn, eða tæpur þriðjungur. Í
fimm málum voru gerendur fleiri en einn. Flestir
voru gerendur fimm saman. „Í máli frá 1992 var 16
ára piltur sakfelldur fyrir að nauðga 14 ára gamalli
stúlku á heimili hennar á meðan hinir fjórir, á aldr-
inum 14-16 ára, héldu henni og handléku kynfæri
sín. Þrír þeirra voru sakfelldir fyrir hlutdeild í
nauðgunarbrotinu og auk þess fyrir blygðunarsem-
isbrot. Einn gerendanna var aðeins fjórtán ára og
því ósakhæfur. Þessir strákar fengu 15-18 mánaða
fangelsisdóm. Miðað við hvað þeir voru ungir eru
þetta þungir dómar sem sýnir hvað dómurinn leit
þessa hópnauðgun alvarlegum augum. Þetta voru
bara skólastrákar, þetta gerðist um hábjartan dag og
engin ölvun til staðar.“
Ölvun var annars til staðar í meirihluta tilvika,
tæp 70% gerenda voru undir áhrifum áfengis eða
annarra vímuefna og helmingur þolenda. Þar af
voru 3 stúlkur rænulausar vegna áfengisneyslu
þegar þeim var nauðgað. Annað sem einkenndi
brotin er að karlmenn voru alltaf gerendur, játn-
ingar voru fágætar og gæsluvarðhaldi var sjaldan
beitt þrátt fyrir neitun geranda. Yfirleitt var hér-
aðsdómur fjölskipaður vegna erfiðs sönnunarmats
og Hæstiréttur var einhuga í sakarmati í öllum
málum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Frá stofnun Hæstaréttar hafa fallið 29 dómar þar sem sakfellt er fyrir nauðgun unglingsstúlku. Í meirihluta málanna er gerandi ókunnugur.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Svölu Ísfeld Ólafsdóttur. Algengt er að stúlkurnar beri áverka og í tæpum þriðjungi mála eru gerendurnir á
barnsaldri. Svala segir að ekki séu til nein dæmigerð viðbrögð við nauðgun.
Þriðjungur nauðgara
stúlkna er á barnsaldri
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík,
rannsakaði allar sakfellingar í Hæstarétti vegna nauðgana á
unglingsstúlkum.
Nauðgararnir voru oft jafnaldrar stúlknanna
eða litlu eldri og tæp 70% gerenda voru
undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.
NordicPhotos/Getty
Sambýlismaður 1
Frændi 1
Bílstjóri hjá ferðaþjónustu fatlaðra 1
Faðir vinkonu 1
Skólabróðir 1
Nágranni 2
Vinur 1
Kunningi 12
Kynntust nokkrum klst. fyrir brot 8
Ókunnugur 3
Bláókunnugur 4
Tengsl geranda og þolanda
Í Tölum
Gerendur
Börn
29%
Fullorðnir
71%
TenGsl Geranda
oG þolanda
Þekktust
23%
Þekktust ekkert
20%
Þekktust lítið
sem ekkert
57%
10 fréttir Helgin 8.-10. nóvember 2013