Fréttatíminn - 08.11.2013, Side 29
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
26
68
A-Class - bíll ársins 2013
Framúrskarandi hönnun, hrein meistarasmíð. Hjartsláttur nýrrar kynslóðar.
Mercedes-Benz A-Class var valinn Bíll ársins 2013 af
Bandalagi íslenskra bílablaðamanna. Við tökum undir það.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz A180, CDI dísil, beinskiptur 6 gíra,
verð frá 4.790.000 kr.
ekki. Auk þess þarf PET-CT til þess
að gefa mörg nýjustu krabbameins-
lyfin.
Erum á úreltum síðutogurum
„Ég líki stundum spítalanum við
stórútgerð. Stórútgerð gerir út
mörg skip, frystitogara, og skuttog-
ara svo eitthvað sé nefnt. Þannig má
líkja krabbameinsdeildinni við skip
og annað skip er hjartadeildin. Við
erum hins vegar að gera út úrelt skip
eða síðutogara með forneskjulegan
tækjabúnað á meðan samkeppnis-
löndin eru með fullkomnustu skut-
togara og tækjabúnað. Þegar svo er
þá fara góðir læknar á betri sjúkra-
hús, rétt eins og góðir skipstjórn-
armenn myndu ekki sætta sig við
úreltan síðutogara og lélegan tækja-
búnað. Þessu verða ráðamenn að
átta sig á, við verðum að búa til há-
skólasjúkrahús sem gerir umhverf-
ið það aðlaðandi að unga fólkið vilji
koma heim,“ segir Helgi.
Aðspurður segir hann aðbúnað
sjúklinga þokkalegan. Göngu-, dag-
og legudeild krabbameinsdeildar-
innar er í hjarta gamla spítalans.
„Legudeildin var endurnýjuð árið
1996 og þótti þá mjög fín en hún
þykir það ekki í dag,“ segir hann.
Einungis eru tvö einbýli á 15 rúma
deild. Fundarherbergi er oft sem
legurými en þar er enginn opnanleg-
ur gluggi. „Fólk sem liggur inni er
mun veikara en fyrir 20 árum þegar
deildin var endurnýjuð því áherslan
hefur færst mjög mikið á dagdeild
og göngudeildir. Því þyrftum við að
geta boðið sjúklingum upp á einbýli,
svo það geti verið hér með aðstand-
endum og haft meira næði,“ segir
hann. Herbergin eru flest tvíbýli og
eru fjórir sjúklingar um hvert klósett
og sturtuaðstaða er frammi á gangi.
Aðstaða göngudeildar er að
mörgu leyti ágæt. „Við höfum ver-
ið í fararbroddi við uppbyggingu á
slíkri starfsemi á Landspítalanum
en deildin var endurnýjuð árið 2000.
Hún þótti þá með því besta sem gerð-
ist á Norðurlöndum en í dag er upp-
bygging slíkra deilda að taka mikl-
um breytingum sem við höfum ekki
fylgt eftir,“ segir Helgi.
Geisladeildin er í kjallara K-bygg-
ingarinnar sem var tekin í notkun
árið 1988. Gert er ráð fyrir að hún
verði þar áfram eftir að nýr spítali
verður tekinn í notkun en önnur
starfsemi krabbameinsdeildar flyst
í nýjan spítala.
Miklu mótlæti getur fylgt gleði
„Sjúklingar og aðstandendur þeirra
spyrja oft hvort starf krabbameins-
læknis sé ekki erfitt, að umgangast
stöðugt veika einstaklinga sem er
í erfiðri meðferð hvað þá sjúklinga
sem eru í banalegunni. Almenning-
ur áttar sig ekki á að jafnvel miklu
mótlæti getur fylgt mikil gleði, enn-
fremur þakklæti,“ segir Helgi. „Bara
það að geta einkennastillt sjúklinga
tímabundið getur verið ávinningur
og það ekki síst hjá sjúklingum sem
eiga lítið eftir. Það fylgir því auð-
mýkt að geta stutt fólk í gegnum
erfiða tíma og hjálpað því og þeirra
aðstandendum að aðlagast kringum-
stæðum. Allir helstu lífsspekingar
komast alltaf að sömu niðurstöðum
um lífið og hamingjuna, sem er að
elska og vera elskaður og umfram
allt að láta gott af sér leiða. Með
þetta í huga þá er það í raun forrétt-
indastarf að vera læknir. En sem
læknir ert þú ávallt að reyna að láta
gott af þér leiða í meðferð og ein-
kennastillingu sjúklinga með því
að lækna, líkna og hughreysta. Við
erum í raun að fá verulega umbun
í gegnum starfið. Sjúklingar og að-
standendur þeirra sýna okkur stuðn-
ing, umburðarlyndi og þakklæti sér-
staklega þegar þeir vita að álagið hjá
okkur er mikið. Það er okkur ómet-
anlegt, og við lærum margt af því
ekki síst það að sjúklingurinn verður
okkur ávallt í öndvegi,“ segir hann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigríður@frettatiminn.is
1500 greinast
árlega
Um 1500 manns
greinast með
krabbamein á hverju
ári. Um 70% læknast
af sínum sjúkdómi.
Í dag eru 13.000
manns á lífi í landinu
sem hafa einhvern
tímann greinst með
krabbamein. Það
eru 4% þjóðarinnar.
Hlutfall 65 ára og
eldri sem hafa
greinst með krabba-
mein er um 10%.
Alls hljóta um 115 sjúklingar með-
ferð á krabbameinsdeild daglega
Að jafnaði eru
15 sjúklingar
inniliggjandi á
krabbameins-
deild á degi
hverjum.
Um 50 sjúklingar
koma á göngu-
deild krabba-
meinsdeildar á
hverjum virkum
degi. Helmingur
þeirra kemur
á dagdeild til
lyfjagjafar í æð.
Hinn helmingur-
inn, sem er oft í
virkri lyfjameð-
ferð í töfluformi
eða kemur vegna
ýmissa annarra
ástæðna, ein-
kennameðferð
svo og eftirlit.
Um 50 sjúklingar
fara í geislameð-
ferð á hverjum
degi. Auk þess
er starfsfólk
krabbameins-
deildar í
samstarfi við
fjölmarga aðra
um meðferð
sjúklinga eins og
á líknardeild og í
heimaþjónustu,
það er hjá
hjúkrunar-
þjónustunum
Heimahlynningu,
sem er starfandi
í tengslum við
líkanardeildina,
og svo Karítas.
„Helstu framfarir í heilbrigðismálum
þjóðarinnar hafa yfirleitt ekki komið
frá ráðamönnum né Alþingi, það eru
nánast alltaf einstaklingar eða samtök
sem hafa leitt þær fram. Ef við förum
yfir söguna þá hafði Oddfellowhreyf-
ingin forgöngu um að safna fé fyrir
Vífilsstaðaspítala og stór fjárhæð kom
sem gjafafé frá landsmönnum svo og
frá Íslendingum í Vesturheimi. Konur
í Reykjavík söfnuðu fyrir Landspítal-
anum. Vatnsveitunni var komið í gagnið
fyrir baráttu kvenna og einstakra
lækna. Pólitíkusarnir höfðu þá lítinn
sem engan skilning á mikilvægi hennar.
Fyrsta geislatækið sem kom til landsins
var gjöf frá Oddfellowhreyfingunni.
Hringskonur hafa safnað í áratugi fyrir
barnaspítalann. Nú er spítalinn í þeirri
stöðu að nánast öll ný tæki hafa fengist
fyrir gjafafé. Kirkjan er að safna fyrir
nýja línuhraðlinum svo og félagasamtök
með stuðningi framtaka eins og Bláa
naglanum. Hvers konar búskapur er
þetta? Við þurfum hugarfarsbreytingu
ráðamanna í garð Landspítalans,“ segir
Helgi Sigurðsson, prófessor í krabba-
meinslækningum við Háskóla Íslands og
settur yfirlæknir krabbameinsdeildar
Landspítalans.
Framfarir í heilbrigðismálum ekki
frá ráðamönnum
fréttaskýring 29 Helgin 8.-10. nóvember 2013