Fréttatíminn - 08.11.2013, Side 56
4x2
lítrar
Hámark
4 kippur
á mann með
an
birgðir end
ast!
– fyrst og fre
mst
ódýr og snjöl
l! 598kr.kippan
Verð áður 996 kr
. kippan
Coke kippa, 4x2
lítrar
40%afsláttur
FRÁBÆRT
TilBoð
– fyrst og fre
mst
ódýr og snjöl
l
Betri melting
Fæst í næstu verslun
Nánar á www.heilsa.is
56 matur & vín Helgin 8.-10. nóvember 2013
vín vikunnar
Saga Íslands og Frakklands er samofin eftir að franskir
sjómenn sóttu Íslandsmið um langt skeið. Sterk tengsl
mynduðust milli sjómannanna og Íslendinga. Franskir
dagar hafa til að mynda verið haldnir á Fáskrúðsfirði
árlega síðan 1996. Þá bera nokkrar götur í borginni
Paimpol á Bretagne-skaga íslensk nöfn.
Frakkar kunna svo sannarlega að elda góðan mat og
framleiða góð vín eins og við munum fá að kynnast á
Flæmskum dögum á Vínbarnum Bistro á föstudag og
laugardag. Þá mun kokkurinn Matthías Jóhannsson,
Matti franski, sem lengi hefur starfað í Frakk-
landi reiða fram fjölmarga gómsæta rétti. Matti
gefur hér lesendum Fréttatímans uppskrift af
ljúffengum saltfiski.
100 gr. útvatnaður saltfiskur.
Aioli.
1 eggjarauða
50 ml olía
1 tsk dijon sinnep
1 rif saxaður hvítlaukur
Pipar eftir smekk
Hvítlauksbrauðteningar
Skerið brauðið í teninga og nuddið
hvítlauk í brauðið, steikið á pönnu í 3 til 4
mínútur þar til þeir eru fallega brúnaðir.
Gufusjóðið saltfiskinn. Pískið eggjarauðu
og dijon í 3 mínútur, hellið olíunni rólega
saman við.
Kælið saltfiskinn og blandið aioli saman
við. Borið fram með klettasalati.
Með þessu drekkum við náttúrlega
franskt hvítvín, til dæmis Pouilly-Fuissé
frá Georges Dubeuf í Macon, rétt suður af
Burgundy. Það er bjart og ferskt hvítvín
með löngu eftirbragði.
Las Moras Caber-
net Sauvignon
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Cabernet
Sauvignon.
Uppruni: Argent-
ína, 2013.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 1.699 kr.
(750 ml)
Umsögn:
Undanfarið hafa
ratað hingað mörg
skemmtileg vín í
ódýrari kantinum
frá Argentínu. Þetta
fellur í þann flokk,
það slær engin
met en er létt og
ávaxtaríkt og í því
eru fín kaup.
Portia Crianza
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Tempranillo.
Uppruni: Spánn,
2008.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúð-
unum: 2.999 kr.
(750 ml)
Umsögn: Ribera
del Duero héraðið
á Spáni hefur sótt
mikið í sig veðrið
á síðustu árum.
Vinsældir svæðisins
þýða að sífellt
fleiri vín þaðan
eru nú flutt inn til
Íslands. Óhætt er
að mæla með því
að fólk prófi sem
flest þeirra. Portia
Crianza er góð
viðbót í flóruna
frá þessu frábæra
svæði.
Tommasi
Amarone della
Valpolicella
Classico
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Valpolicella-
blandan (Corvina,
Rondinella og Molinara).
Uppruni: Ítalía,
2010.
Styrkleiki: 15%
Verð í Vínbúð-
unum: 6.299 kr.
(750 ml)
Umsögn: Amarone
er víngerðarstíll þar
sem safa úr þurrk-
uðum vínberjum
er blandað við
hefðbundin. Úr
verður mikið og
voldugt vín. Þetta
vín stendur fyllilega
fyrir sínu núna en
enn betra væri að
geyma það í 3-4 ár
og njóta þess þá.
Ferskt með fiskinum
Jólabjórinn kemur í Vínbúðirnar í næstu viku og framundan er tími
þar sem þungur matur og sætindi eru gjarnan á borðum. Það er
því ekki úr vegi að hafa fisk á boðstólum um helgina og næla sér í
flösku af alvöru hvítvíni með. Þetta Sancerre-vín er
ferskt og sýruríkt og þrátt fyrir að það kosti
þrjú þúsund kall er
það hverrar krónu
virði. Það hentar
vel með hvítum
fiski og góðu salati
en er líka frábært eitt
og sér sem fordrykkur eða bara í saumaklúbb-
inn. Passið bara að bera það ekki fram of kalt, það nýtur
sín ekki beint úr ísskápnum. Vilji karlpeningurinn koma frúnni á
óvart er rétt að mæla með flösku af þessu hvítvíni. Strákar, það
þarf ekki alltaf að vera rauðvín og steik.
Franck Millet Sancerre
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Sauvignon Blanc.
Uppruni: Frakkland, 2012.
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúðunum: 2.999 kr. (750 ml)
Undir 2.000 kr. 2.000-4.000 kr. Yfir 4.000 kr.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Réttur vikunnar
Saltfisksalat með hvítlauksbrauðteningum
Georges Duboeuf
Pouilly-Fuissé
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Chardonnay.
Uppruni: Frakkland, 2011.
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum: 2.999 kr.
(750 ml, fæst aðeins í Kringl-
unni, Skútuvogi og Heiðrúnu).
Fréttatíminn mælir með