Fréttatíminn - 08.11.2013, Qupperneq 76
Í takt við tÍmann karen Lind thompson
Getur ekki beðið eftir að komast í slátrið
Karen Lind Thompson er 23 ára fitnessmeistari sem er uppalin á Þingeyri. Karen varð í öðru sæti í sínum flokki á
Arnold Classic-mótinu á Spáni á dögunum og keppir á bikarmóti IFBB í fitness um helgina. Hún keyrir um á Skoda
Octavia og horfir á Vampire Diaries.
Staðalbúnaður
Ég fer yfirleitt til útlanda til að kaupa mér föt. Þá reyni ég að fara í Pri-
mark og þessar búðir. Annars kaupi ég fötin mín hér heima í Deres.
Ég er í rauninni alltaf í æfingabuxum frá Under Armour, ég get ekki
gengið í gallabuxum því þær þrengja svo að mér. Svo finnst mér
stórar, kósí peysur voða þægilegar. Ég geng alltaf með víkingaháls-
men með rúninni „orka“ og er ég „boddísprey“-fíkill.
Hugbúnaður
Ég æfi sex sinnum í viku nema þegar það er stutt í mót, þá
æfi ég ellefu eða tólf sinnum á viku. Ég er að koma úr
löngu keppnistímabili, ég er búin að vera á fullu í tvö ár,
og þá er enginn tími til að vera í glasi. En í þessu ör-
fáu skipti sem ég fer út þá fer ég á Austur og English
Pub, það er svona vinsælast hjá mér. Uppáhalds sjón-
varpsþættirnir mínir eru Game of Thrones, Vamp-
ire Diaries og The Originals. Svo horfi ég á Greys
Anatomy eins og flestar stelpur. Ég fer mikið í
sund og laugin í Mosó er uppáhaldið mitt. Ég á
tvo hunda, Border Collie kokteil og íslenskan,
og afgangurinn af tímanum mínum fer í að
fara út með þá.
Vélbúnaður
Ég þurfti að kaupa mér nýja tölvu til
að geta sinnt einka- og fjarþjálfuninni
minni. Þetta er Sony Vaio, auðvitað bleik. Maður reynir að
„stelpa“ sig svolítið upp eftir að hafa verið kallaður „tomboy“
í nokkur ár. Svo er ég líka með bleikan iPhone sem fer
aldrei úr höndunum á mér. Ég nota mikið Instagram,
Snapchat og Facebook.
Aukabúnaður
Ég reyni alltaf að elda heima. Uppáhaldið mitt er slátur.
Ég get ekki borðað það þegar ég er að undirbúa mig
fyrir keppni og þarf oft að bíða í fleiri mánuði eftir að
komast í heimatilbúið slátur. Svona er ég enn mikil
sveitastelpa, enda vorum við með eigin kindur
þegar ég var að alast upp. Við erum með
tvo bíla á heimilinu og ég keyri um á Skoda
Octavia. Ég fæ nú ekki mikið frí en ég er
nýkomin frá Úkraínu og Spáni þar sem ég
var að keppa. Það er svolítið frí að komast
aðeins út og það er klárlega kostur við
fitnessið að fá að fara til landa sem maður
færi annars ekki til. Uppáhalds stað-
irnir mínir eru Dýrafjörðurinn minn
og Crawley í Englandi. Ég og kær-
astinn millilentum þar eftir mót í
fyrra og festumst í tvo daga. Það
hefur verið uppáhalds staður-
inn okkar síðan.
Karen Lind Thompson er að
læra hárgreiðslu meðfram því
að keppa í fitness og starfa sem
einkaþjálfari. Ljósmynd/Hari
Allir velkomnir
14/11/2013
Skráning á imark.is
Hittumst á Hilton Reykjavík Nordica
fimmtudaginn 14. nóvember klukkan 12
Hver verður meistari
markaðsmálanna?
H
ví
ta
h
ús
ið
/S
ÍA
–
1
3-
27
34
76 dægurmál Helgin 8.-10. nóvember 2013