Fréttatíminn - 08.11.2013, Síða 78
Rokkað um lygavef eftirhrunsáranna
SamSæri Hugvekja endurSkoðanda
Gunnlaugur Kristinsson endurskoðandi
hefur kynnst afleiðingum hrunsins náið í
starfi sínu og hefur fengið sig fullsaddan á
spillingu og ráðaleysi í málefnum skuld-
ara. Hann var í eina tíð bílskúrsrokkari
og fékk gamla fiðringinn og hefur sent
frá sér ádeilurokkarann Samsæri. Félagi
hans, Jóhannes Eiðsson, syngur lagið sem
hefur verið í spilun á Rás 2 og má nálgast
á YouTube.
„Það ágætt í mínu starfi að dreifa hugan-
um við eitthvað þannig að maður er farinn
að taka gítarinn upp,“ segir Gunnlaugur.
„Það er mjög mikil ádeila í textanum,“
segir hann og ekki virðist veita af miðað
við upplifun hans. Hann hefur skrifað tals-
vert um afleiðingar hrunsins, komið að
mörgum slíkum málum, höfðað dómsmál,
fundað með alþingismönnum, skrifað sér-
fræðiskýrslur fyrir hæstarétt og fundað
með þingmönnum og efnahags- og við-
skiptanefnd.
„Ég hef átt mikil samskipti við embætt-
ismenn og það má eiginlega segja það að
þessi texti sé bara mín upplifun á þeirri
stöðu sem uppi er í samfélaginu. Þetta er í
raun og veru miklu ljótari staða heldur en
hún virkar á yfirborðinu.“
Gunnlaugur segir fullt tilefni til að vera
reiður og hugmyndin með laginu sé að
reyna að vekja fólk til umhugsunar.
„Vegna þess að eins og staðan er núna er
leynt og ljóst verið að fá fólk til þess að sætta
sig við það að þetta ástand í dag sé eðlilegt,
þegar það er í hæsta máta óeðlilegt. Það er
mikil reiði í mér. Og það kemur sennilega
fram í þessum texta og ég held að ég sé að
segja það sem margir hugsa.“
-þþ
„Það líður ekki sá dagur að ég geti ekki vitnað í
þennan texta.“
Kaldal aftur í Skaftahlíðina
Fjölmiðlamaðurinn Jón Kaldal er
mættur til starfa á ný hjá 365 miðlum í
Skaftahlíð. Eins og kunnugt er var Jón
ritstjóri Fréttablaðsins þar til snemma
árs 2010 þegar honum var sagt upp og
Ólafur Stephensen ráðinn í hans stað. Í
kjölfarið varð Jón fyrsti ritstjóri Frétta-
tímans. Jón Kaldal mun stýra nýjum vef
sem ætlaður er erlendum ferðamönn-
um. Jón verður einn eigenda vefsins ásamt helstu eigendum 365. Vefurinn verður
á ensku og hugmyndir eru um að tengja hann Miða.is sem 365 keypti nýlega. Sara
McMahon, fyrrum blaðamaður á Fréttablaðinu, hefur þegar hafið störf við undir-
búning vefsins ásamt Jóni. Stefnt er að því að vefurinn fari í loftið í febrúar.
Veisla í Paradís
Það verður nóg um að vera í Bíó Paradís þessa helgina. Á laugardagskvöld klukkan 20
rætist langþráður draumur margra þegar kvikmyndin Þúsund stormar verður sýnd. Um er
að ræða heimildarmynd um Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra og seðlabankastjóra
og núverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Í myndinni er rætt við þá Björn Bjarnason, Guðna
Ágústsson, Hannes Hólmstein Gissurarson, Illuga Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson um
Davíð og sýnd brot úr upptökum Sjónvarpsins af honum. Miðaverð er litlar eitt þúsund
krónur og miðasala fer fram á Miða.is. Í kaupbæti tekur Hannes Hólmsteinn við spurn-
ingum úr sal að sýningu lokinni.
Torrini með tvenna tónleika
Þó Emilía Torrini hafi heillað marga með tónleikum sínum á Iceland Airwaves-hátíðinni um
síðustu helgi var augljóst að hún og hljómsveit hennar eru enn að slípast til fyrir væntan-
legt tónleikaferðalag hennar. Þannig óskaði söngkonan eftir því að Rás 2 útvarpaði ekki
tónleikum hennar frá hátíðinni eins og til stóð. Aðdáendur hennar munu þó fá tækifæri
til að sjá hana í sínu besta formi í Eldborgarsal Hörpu föstudagskvöldið 6. desember.
Miðasala er hafin á Miði.is og eru tvennir tónleikar í boði.
H árgreiðslukonan og fyrirsætan Arna Bára Karlsdóttir opnar á mánudaginn hárstofuna Fönix í Smáralind beint fyrir framan versl-
un Hagkaups. „Ég er með fjóra stóla hérna og Hrefna
hárgreiðslumeistari verður hérna með mér og ég á
von á að það fjölgi hjá okkur fljótlega,“ segir Arna.
„Ég hef ekki rekið hárgreiðslustofu áður en
kann bæði að klippa og reka fyrirtæki og svo er ég
líka góð í markaðssetningu,“ segir Arna sem hefur
lengi langað til að opna eigin stofu. „Ég ætlaði að
gera það fyrir tveimur árum, þann 11.11.11, en þá
var ég bara orðin ólétt að stráknum mínum. Þannig
að það gekk bara ekki upp. Það er erfitt að byrja að
klippa kasólétt.“
En nú er komið að því og Arna opnar Fönix á
mánudaginn, þann 11.11.13. „Það verður opnunar-
partí frá klukkan 16–20 þar sem allir eru velkomn-
ir. Ég verið með tilboð á vörum, léttar veitingar og
Dj A. Handsome og Dj Kiddi Ghozt spila.“
Arna ætlaði sér að vekja frekari athygli á sér sem
fyrirsætu í heilmikilli keppni í Mexíkó í október
en „þá fékk ég plássið í Smáralind byrjun október
þannig að ég kaus að opna stofuna frekar en að
fara. Mig langar samt rosalega að fara út aftur,
ekki síst vegna þess að nokkrar stelpur sem ég
þekki og fóru eru farnar að birtast í blöðum núna.“
En er ekki vonlaust að ætla að reka hárgreiðslu-
stofu og vera að þeytast út um allt í ljósmyndatök-
um á sama tíma?
„Sem betur fer er ég alveg brjálæðislega ofvirk
og er rosalega mikill orkubolti og ég vil alltaf hafa
nóg að gera í lífinu. Ég er alltaf í myndatökum og
er alltaf að bóka ný og ný verkefni. Fyrir tveim-
ur vikum flugu þrír ljósmyndarar hingað til að
taka myndir af mér. Það var mjög gaman og vel
borgað. “
En er hún alltaf að striplast fyrir framan vél-
arnar? „Ég er náttúrlega undirfatamódel þannig að
maður er ekki mikið í fötum. Þeir voru með eitt-
hvert fáránlegt þema um daginn og þöktu mig með
bílplötum. Ég hló mikið að því. Það var eitthvað
sem ég hef ekki gert áður.
Annars er ég í léttum verkefnum núna og passa
að bóka mig ekki mikið á næstunni vegna þess að
það verður brjálað að gera í hárgreiðslunni næstu
tvo mánuði en ég fer aftur af stað í janúar.“
Arna segist fylgjast vel með öllum straumum í
tískunni og hún sé jafnvíg á karla og konur þegar
kemur að klippingum. „Málið er samt að ég var að
vinna á rakarastofu þannig að ég er alveg sérhæfð
í karlmönnum og mér finnst rosalega gaman að
klippa karlmenn. Upphaflega hugmyndin var að
vera aðallega rakari en ég hef fundið fyrir svo mikl-
um áhuga hjá stelpum og konum þannig að þetta
verður blandað og það er öllum óhætt hjá mér.“
Arna segir að sér hafi verið strítt nokkuð með
spurningum um hvort hún ætli að klippa fólk fá-
klædd en segir slíkt grín út í hött. „Ég er mjög fag-
mannleg í báðum störfum. Þegar ég er módel er
ég módel og þegar ég er að klippa er ég rakari. Og
ég er ekkert að fara að klippa í bikíníi eða flegnu.
En þegar ég fer út að skemmta mér get ég verið
rosaleg í klæðnaði. Þannig að fólk þekkir mig varla
í vinnunni.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
arna Bára undirfatamódel opnar HárgreiðSluStofu
Og ég er ekkert
að fara að klippa í
bikíníi eða flegnu.
Sérhæfð í karlmönnum
Hárgreiðslukonan og fyrirsætan Arna Bára Karlsdóttir vakti töluverða athygli þegar hún
sigraði í myndasamkeppni á vegum Playboy, Miss Social, í fyrra. Hún stefndi ótrauð á
heilmikla módelkeppni í Mexíkó í október en hætti við þegar henni bauðst pláss undir hár-
greiðslustofu í Smáralind. Fyrirsætudraumurinn vék til þess að langþráður draumur um að
opna hárgreiðslustofu mætti rætast en Arna telur sig geta farið létt með að sinna báðum
þessum hugðarefnum sínum í framtíðinni.
Arna Bára opnar
hárgreiðslustofuna
sína á mánudaginn.
Hún er þekktari
fyrir að sitja
fáklædd fyrir en
að snyrta hár. Hún
ætlar að sinna
báðum störfum,
öðru fullklædd en
hinu hálf nakin.
Mynd/Hari
78 dægurmál Helgin 8.-10. nóvember 2013