SÍB-blaðið - 01.12.1999, Page 7
Tilgangurinn að hvetja fólk til athafna
-segir Halla Þorvaldsdóttir; sálfrœðingur hjá Hollráðum
Halla Þorvaldsdóttir, sál-
fræðingur, er fagstjóri hjá ráð-
gjafafyrirtækinu Hollráð, sem
veitir ráðgjöf fyrir náms- og
vinnumarkað. Fyrirtækið
býður m.a. upp á námskeiðið
„Starfslok - ný framtíð”, sem
hefur það að markmiði að
veita cdhliða fræðslu og und-
irbúning fyrir starfslok. í
fyrstu er boðið upp á grunn-
námskeið þar sem farið er
yfir helstu grundvallaratriði
sem lúta að starfslokum sem í
flestum tilvikum eru stór
tímamót í lífi fólks.
Full ástæða er til að aðstoða
fólk á þessum tímamótum við
að finna nýja möguleika til að
njóta lífsins; að hlakka til
starfslokanna í stað þess að
kvíða þeim. „Hollráð hafa á að
skipa sérfræðiráði sem gerir
það að verkum að við getum
nýtt betur þá sérþekkingu sem
er fyrir hendi. Við skipuleggj-
um okkar vinnu þannig að við
fáum sérfræðinga á ólíkum sviðum til
að mynda starfshópa, eins og í kringum
starfslokin. Hver sérfræðingur fjallar
um þá hlið starfslokanna sem að hon-
um snýr,” segir Halla. í starfslokahópn-
um eru þau Árni Tómas Ragnarsson,
læknir, Berglind Magnúsdóttir, sálfræð-
ingur, Þórir S. Guðbergsson, félagsráð-
gjafi, Rannveig Baldursdóttir, iðjuþjálfi
og Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari.
Þegar Halla er innt eftir því hverjar
helstu niðurstöður starfshópsins hafi
verið segir hún meginniðurstöðuna
vera þá að nauðsynlegt sé að taka tillit
til margra þátta þegar fjallað er um
starfslok. „Það hefur verið tilhneiging í
umfjöllun um starfslok að líta fyrst og
fremst á hagnýt atriði, ekki síst fjármál
fólks og þá einkum lífeyrissjóðs- og
tryggingamál. Það er auðvitað mjög
mikilvægt. Fjárhagur fólks hefur auðvit-
að heilmikið að segja, ekki síst þegar
hann minnkar. Hins vegar hangir fleira
á spýtunni og að því þarf að huga,” bæt-
ir hún við.
Það hefur sýnt sig að það sem fólk
kvíðir mest er sú óvissa sem starfslok-
um fylgir. Halla segir sjálfsmynd fólks
oft byggjast á því við hvað það starfar
og því sé eðlilegt að fólk velti fyrir sér
hvað tekur við þegar það lýkur störf-
um. Hún telur nauðsynlegt að opna um-
ræðu um þetta. „Fólk hefur ekki aðeins
áhyggjur af breyttum fjárhag heldur
líka t.d. af heilsu sinni og þar erum við
komin að mikilvægu atriði sem huga
þarf að í námskeiðum eins og þeim sem
við stöndum fyrir. Þau eru t.d. hreyfing,
svefn og mataræði. Á námskeiðinu er
fjallað um mikilvægi hreyfingar fyrir lík-
amlega og andlega heilsu. Skipulögð
hreyfing getur verið einn af föstu
punktunum í tilverunni en mikilvægt er
að hafa þá sem flesta þegar vinnurútín-
an, sem hefur skipað svo stóran sess í
okkar daglega lífi, hverfur. Það er mark-
miðið með námskeiðunum að fá fólk til
að horfa á starfslokin sem dyr inn í nýja
og skemmtilega framtíð í stað þess að
hræðast þau eins og einhverja ógæfu
sem yfir það dynur. Áherslan í okkar
námskeiðahaldi er fyrst og fremst lögð
á að hvetja fólk til athafna.”
Raunveruleg lífsgæði
Námskeiðin eru annars vegar hugsuð
fyrir almenning, fólk sem að eigin frum-
kvæði vill undirbúa sig fyrir breytingar,
hins vegar fyrir fyrirtæki, sem með því
að bjóða starfsmönnum sínum á nám-
skeið vilja undirbúa þá fyrir starfslok.
„Með því móti geta fyrirtækin
stutt við bakið á sínum starfs-
mönnum við það að skapa
sér góða og uppbyggilega
framtíð eftir starfslok, eftir að
starfsmennirnir hafa skilað
fyrirtækjunum sínu. Við lítum
á það sem hluta af okkar
vinnu að koma slíkum hug-
myndum á framfæri innan
fyrirtækja. Allt lífið erum við
að undirbúa okkur fyrir
næsta æviskeið. Það er því
mikilvægt að hefja undirbún-
ing fyrir starfslok snemma, til
að auðvelda aðlögunina,”
segir Halla.
Námskeiðin eru að mestu
byggð upp á erindum og um-
ræðum. Halla segir að nám-
skeiðin séu 12 klst, sem
deilist niður á þrjú til fjögur
skipti, en Hollráð leggja þó á-
herslu á að aðlaga þau að
þörfum og óskum hvers
hóps. „Við reynum að vinna
út frá lífsgildum hvers og eins
og þannig komast að því
hvað hver og einn vill undirbúa sig fyr-
ir. Við reynum að meta það hvað gerist
þegar við hættum störfum, hvað við
missum og hvað við fáum í staðinn.”
í framhaldi er ætlunin að bjóða fólki
upp á ákveðin valnámskeið í kjölfar
grunnnámskeiðsins. Þar má nefna nám-
skeið um samskipti þar sem gerð er
grein fyrir algengum breytingum sem
verða á samskiptamynstri við maka og
börn, fólki er gefinn kostur á því að
kynna sér undirstöðuatriði slökunar
eða yoga, svo dæmi séu tekin. „Á stór-
um tímamótum í lífinu höfum við oft til-
hneigingu til að horfa svolítið inn á við
og líta yfir farinn veg. Við hvetjum fólk
til þess að nota það tækifæri sem
starfslokin eru, til að átta sig á styrk
sínum og ekki síst að velta fyrir sér ósk-
um sínum og löngunum. Slíkt er mikil-
vægt til að tryggja góða og ekki síst á-
nægjulega framtíð eftir starfslok. Svona
sjálfsskoðun getur farið fram á margan
hátt en áhugasviðsgreining, sem boðið
er upp á hjá Hollráðum getur verið
skemmtilegur kostur. Fólk sem komið
er á starfslokaaldur býr yfir míkilli
reynslu og sú reynsla getur nýst á
margbreytilegan hátt, líka á allt öðrum
sviðum en það hefur áður beitt sér,”
sagði Halla að endingu.
7