SÍB-blaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 9
Mataruppskriftin
Söru-
Bernhards
smáköhur
Það er ekki langt síðan Söru-
Bernhards kökurnar fóru að sjást á
jólaborðum íslendinga. Þessar
kökur þykja hið mesta lostæti og
það sem meira er, baksturinn er
auðveldari en margur heldur.
Hér birtum við einfalda og þægi-
lega uppskrift sem allir ættu að
ráða við.
600 gr. möndlur
500 gr. flórsvkur
10 eggjahvítur
Hakkið möndlur fínt. Stífþeytið
eggjahvíturnar. Sigtið saman
möndlur og flórsykur og blandið
eggjahvítunum varlega saman við.
Sett með tsk. (ca 1/2) á vel smurða
plötu bakað í 15 mín við 180 gr.
Krem
2.5 dl. svkur.
2.5 dl. vatn.
10 eggjarauður
4 msk. kakó
1/2 tsk. Neskaffi
500 gr. smiör
Vatn og sykur soðið við hœgan hita
í ca. 8.mín., þar til það er orðið að
glœru sírópi. Eggjarauðurnar stíf-
þeyttar, sírópinu blandað varlega
saman við og síðan kakói, kaffi og
smjöri hrœrt út í. Kreminu er smurt
á kökurnar og þœr frystar.
800 gr. af Opal-súkkulaðihjúp er
brœddur í 2 msk. af matarolíu og
kremhlið kökunnar dýft í löginn.
Kökurnar frystar á ný.
Lokað í dag
aðfangadag
Gleóileg Jól!
Aðfangadagur jóla og
gamlársdagur 1999
í kjarasamningum, sem undirritaðir
voru 11. júní 1999, var sérstök at-
kvæðagreiðsla um að aðfangadagur
yrði frídagur um alla framtíð, gegn því
að tengsl orlofs og launaflokks voru
rofin fyrir nýráðna bankastarfsmenn.
Félagsmenn SÍB samþykktu þennan
sérstaka samning í allsherjar at-
kvæðagreiðslu. Þannig gildir það nú í
fyrsta skipti að allir félagsmenn SÍB
eiga frí á aðfangadag jóla, föstudaginn
24. desember 1999. Allir bankar,
sparisjóðir og aðrir vinnustaðir fé-
lagsmanna SÍB verða lokaðir 24. des-
ember og félagsmenn SÍB geta undir-
búið komu heilagra jóla í frið og ró.
Þann 12. október s.l. sendi Sam-
band íslenskra viðskiptabanka bréf til
SIB um lokun afgreiðslustaða banka
og sparisjóða um áramótin 1999 -
2000. Þar er tilkynnt að afgreiðslu-
staðir verði Iokaðir 31. desember
1999 og 3. janúar 2000. í bréfinu segir:
„Ekkert var ákveðið um lengri opnun-
artíma 30. desember 1999, enda er á-
kvörðun þar að lútandi alfarið í hönd-
um einstakra fyrirtækja og stofnana”.
I fréttatilkynningu, sem send var í
nafni fjármálafyrirtækja þann 22. nóv-
ember s.l., kemur fram að greiðslu-
miðlunarkerfið mun starfa eins og
vanalega. í fréttatilkynningunni segir
m.a.: „Líkur á því að eitthvað fari úr-
skeiðis um n.k. áramót eru litlar. Engu
að síður telja fjármálafyrirtæki og
stofnanir nauðsynlegt að sýna fyrir-
hyggju og búa sig undir að eitthvað
geti farið úrskeiðis.” Þrátt fyrir að
fjármálafyrirtækin hafi afgreiðslur
sínar lokaðar 31. desember þá er ekki
um samningsbundinn frídag starfs-
manna að ræða eins og á aðfangadag.
Lokunin er fyrst og fremst öryggisað-
gerð og alfarið í höndum hvers fyrir-
tækis, í samvinnu við starfsmenn,
hvernig vinnudegi verður háttað frá
klukkan 9 til 12 þann 31. desember
1999. Eftir kl. 12.00 er gamlársdagur
frídagur eins og verið hefur, og rétt er
að undirstrika.