SÍB-blaðið - 01.12.1999, Síða 16

SÍB-blaðið - 01.12.1999, Síða 16
www.sib.is í samræmi við samþykktir 40. þings SIB er hafin vinna við uppsetningu nýrrar lieimasíðu samtakanna. Slóðin er www.sib.is Ákveðið var að setja vef- inn strax upp þó hönnun hans og inn- setningu á efni sé engan veginn lokið. Það er álit þeirra sem að verkinu koma að með þessu séum við enn fyrr að koma til móts við vilja þings SIB. Einnig má segja að í raun er vefur sem þessi í sífelldri þróun og vinnu við hann lýkur aldrei. Markmið með rekstri vefsíðunnar er m.a.: • Allar upplýsingar um félagið séu til- tækar félagsmönnum allan sólar- hringinn - óháð opnunartíma og álagi á skrifstofu samtakanna. • Gera kjarasamning og túlkanir á hon- um aðgengilegri • Gefa félagsmönnum heildarsýn yfir þjónustu samtakanna og auðvelda þeim að nýta sér hana. • Bæta aðgengi félagsmanna að kjörn- um fulltrúum og starfsmönnum. í tímans rás hefur, sem svör við spurningum og vandamálum félags- manna.safnast upp margvíslegur fróð- leikur hjá skrifstofu SÍB. Sumt af því hefur verið gefið út í sérritum sbr. bæk- lingurinn Tímamót og bæklingur um fæðingarorlof sem Eva Örnólfs- dóttir sá um útgáfu á fyrir hönd SÍB. Þessir bæklingar hafa fengið útbreiðslu langt út fyrir raðir félagsmanna SÍB og verið eftirsótt dreifirit. Öll útgáfa af þessu tagi sem enn er í gildi mun verða sett á vef og uppfærð þar eftir því sem efni breytist. Jafnframt þarf einnig að end- urútgefa sum þessara rita á prentuðu formi. Efni á vefsíðu raðað eftir hnöppum: Fréttir Þar er ætlunin að setja jafnóðum og tilefni er til fréttir af málefnum sem varða starfsfólk fjármálastofnana og starfsumhverfi þeirra jafnóðum og til- efni gefst til. Eins er hugmyndin að nýj- ustu fréttir séu jafnan á forsíðu vefsins. Undir þessum hnappi verði síðan liægt að fletta upp í eldri fréttum. Hvað er SÍB Hér mun verða sett inn umfjöllun um samtökin, tilgang þeirra, lög, þjónustu, sjóði samtakanna, stjórn, skrifstofu, al- þjóðasamstarf, reikningar, ofl. Eins verður hér hægt að senda fyrirspurnir til starfsmanna og stjórnarmanna. Aðildarfélög Hér verður listi yfir öll aðildarfélög, stjórnarmenn þeirra, skrifstofur aðild- arfélaga, félagaskrá, og listi yfir vinnu- staði féiagsmanna innan hvers félags. Kjarasamningar Kjarasamningurinn birtist hér í heild. Hér verða einnig ýmsar túlkanir á kjara- samningum sem fram hafa komið t.d. í SÍB blaðinu, samningsferlið, upplýsing- ar um lífeyrismál, fæðingar- orlof, jafn- réttismál, starfslok, aksturs-gjald, dag- peninga, vinnutíma og tryggingamál. Einnig verður leið til að leggja inn spurningar um efni þessara þátta. Trúnaðarmenn Ýmiskonar fræðsluefni um viðfangs- efni og störf trúnaðarmanna verður hér. Þ.m.t. Spurningar og svör, túlkanir á samningum, handbók trúnaðar- manna, samningur um trúnaðarmenn, launastatistik og tilkynningar til trún- aðarmanna. Styrktarsjóður Reglugerð sjóðsins, úthlutunarreglur og umsóknareyðublað um styrki úr sjóðnum er komið hér inn. Þessi síða auðveldar vonandi allt aðgengi félags- manna að sjóðnum og upp- lýsingum um hann. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þetta efni mjög vel. Sjá er einnig á bls. 39 í kjarasamningi. Nefndir SÍB Hér verður settur listi yfir allar nefnd- ir SÍB, nefndarmenn, verksvið og við- fangsefni nefnda. Hér verða einnig upp- lýsingar um samstarfsnefndir með öðr- um félagasamtökum hérlendis og er- lendis. Fræðslustarf Væntanlega verða hér greinar sem birtast í SÍB blaðinu, margskonar nám- skeiðsframboð til félagsmanna, og af- sláttartilboð. Hér verða einnig í heild bæklingar sem samtökin gefa út um ýmis málefni s.s. starfslok, fæðingar- orlof ofl. Aðrir vefir Tengiliðir við hliðstæð félög hérlend- is og erlendis ásamt ýmsum hagnýtum tengingum á netinu. Að lokum Rétt er að minna á að vefsíðan er að- eins enn eitt tæki allra félagsmanna til 16

x

SÍB-blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.