SÍB-blaðið - 01.12.1999, Page 19

SÍB-blaðið - 01.12.1999, Page 19
Viimufundur SÍB og aðildarfélaganna Hópurinn kampakátur með árangur fundarinns. Nýverið hittust stjórn SÍB og stjórn- armenn úr aðildarfélögunum saman á árlegum vinnufundi. Megin-tilgangur þessa fundar var að fara í innri skoðun á starfi SÍB og aðildarfélaganna. En áður en farið var f þá skoðun fengum við Eddu Rós Karlsdóttur, hagfræðing ASÍ til þess að flytja okkur erindi úr- skýrslu sem var kynnt í fjölmiðlum ný- lega. Erindið var fróðlegt og í ljós kom að við Islendingar skerum okkur úr í flestum málefnum er við berum okkur saman við Norðurlöndin. Við byrjum snemma að vinna, vinnum lengri vinnu- viku en framleiðum minna pr.vinnus- tund og loks hættum við seinna að vinna. Sem dæmi má nefna að 44% þeirra sem eru 65 ára og eldri eru enn á vinnumarkaðnum á íslandi á meðan hlutfallið er einungis 5% í Danmörku. Skýringarnar eru auðvitað margþættar, og ein þeirra sú að meðal eldri kynslóð- arinnar telst það dyggð að vinna og vinna sem lengst. Það sem mér þótti persónulega vanta sem skýringu, (kannski bara gleymst að nefna það), er það að lífeyriskerfið á íslandi er frekar ungt og þess vegna ekki á færi eldri kynslóðarinnar í dag að hætta þar sem áunnin réttindi eru ekki svo mikil. Þá er einnig vert að minnast þeirra kvenna sem kannski komu út á vinnumarkað- inn um fertugt eftir að hafa komið upp börnum, vinna í 20-30 ár og ná þar af leiðandi ekki nema 40-60% réttindum. Það segir sig sjálft að þessi hópur hætt- ir ekki að vinna fyrr en hann er til- neyddur til þess. í erindi Eddu kom einnig fram að meirihluti eldra fólks telur endur- menntun og símenntun mjög mikil- væga. Það er hins vegar merkilegt að þessi hópur sækir síður menntun en yngra fólkið. Það er umhugsunarvert hver er orsök þess. Er það vegna þess að þessi hópur nennir ekki að læra, vantar það hvatningu, hamlar vinnu- veitandinn því að það fari á námskeið, eða er menntunin sem í boði er kannski ekki sniðin að þessum hópi? Naflciskoðun. Heill dagur fór í naflaskoðun og dugði varla til. Farnar voru nýjar leiðir í verk- lagi sem mæltust vel fyrir. Hinn nýráðni fræðslu og kynningarfulltrúi, Sigurður Albert, stjórnaði ferlinu af mikilli röggsemi svo sem góðum kenn- ara sæmir. Byrjuðum við á því að setja á lista allt neikvætt sem okkur kom til hugar um SÍB og aðildar-félög- in og linnti ekki látunum fyrr en við vorum búin að setja á blað 59 neikvæða punkta. Það sem svo flestir höfðu á- huga á að hnykkja á af þessum punkt- um var í fyrsta lagi skortur á mennta- stefnu, opnunartímamál, að SÍB og að- ildarfélögin mættu vera sýnilegri og svo þótti einhverjum verkaskipting milli SÍB og aðildarfélaganna óskýr. Þá var komið að því að kasta fram því hvernig við vildum að „fyrirmyndar- samfélagið” liti út. Eitthvað vorum við tregari við að varpa fram draumsýninni því þegar upp var staðið voru punkt- arnir 41. Þó voru nokkrir afgerandi svo sem, að allir fái að njóta menntunar, jafnrétti kynja, starfsánægja og að kon- um og körlum verði greidd full laun í fæðingarorlofi. Á svona stuttum fundi er ekki hægt að finna lausnir á öllum þeim atriðum sem fram komu, en þessi vinna skilar þó því að fram kemur það sem mest brennur á fólki og kemur til með að njhast okkur í starfinu framund- an. Þá má geta þess að lokum á fundin- um komu fram áhyggjur vegna þess að upp væru að koma tilfelli þar sem svo virðist sem verið væri að „ýta fólki lúm- skt” út úr störfum í bankakerfinu og í sumum tilfellum væri hreinlega um ein- elti að ræða. T.d með því að færa það til í starfi stundum gegn vilja þess, sem leiðir til þess að fólk jafnvel gefst upp og segir upp starfi af sjálfsdáðum. Auð- vitað er það þó vonandi oftar sem til- færslan er jákvæð fyrir starfsmanninn því breyting er ekki alltaf til hins verra eins og við vitum, stundum ber að líta á hana sem tækifæri. Þá eru jafnvel til dæmi um uppsagnir þar sem talað er um að „það sé bara ekki hægt að vinna með viðkomandi”. Stundum er þetta kannski rétt, en það er alltof algengt að einungis er orð á móti orði og er það mál manna að það vanti að áminningar séu skriflegar eða að trúnaðarmaður sé hafður viðstaddur í svona tilfellum. Margrét Bragadóttir. 19

x

SÍB-blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.