Læknablaðið - 01.03.1920, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ
39
Jón heitinn var fæddur 20. nóv. 1873 á Hvítárvöllum. Foreldrar hans
voru Páll héraðslæknir Blöndal og kona hans Elín Jónsdóttir Thoroddsen.
Hann útskrifaðist úr latínuskólanum í Reykjavík 1894, og úr læknaskól-
anum 1898; dvaldi hann næsta vetur í Kaupmannahöfn, en gerSist þvi
næst aðstoöarlæknir föður síns; þegar hann lét af embætti var Jón skip-
aSur héraSslæknir í BorgarfirSi, voriS 1901, og gegndi því embætti til
æfiloka. Hann sat alla tiS á föSurleifS sinni, Stafholtsey.
Hann kvæntist I. sinn 1899 frændkonu sinni, SigriSi Björnsdóttur Blön-
dal, en hún andaSist, eftir langa vanheilsu, haustiS 1918. Fimni synir
þeirra eru á lifi. 2. sinn kvongaSist hann voriS 1919, Vigdisi Einarsdóttur
frá Stafholti, sem lifir hann.
Jón heitinn var natinn viS sjúklinga, og lét sér ant um þá, enda var hann
maöur brjóstgóöur. Hann var ólatur og þjarkur til feröalaga; hann átti
jafnan svo miklum vinsældum aö fagna meSal héraösbúa, aö margur
læknir nmndi kjósa sér slíkar, en fáir hljóta.
Hann hélt vel boSorSin þessi þrjú, sem Lúther eru eignuö: aö elska
Wein, Weib und Gesang, hiS fyrsta um of stundum. TilfinningamaSur
var hann mikill, tryggur, vinfastur og gestrisinn. Hann hafSi óvenju
næmt auga fyrir náttúrufegurö og náttúrufyrirbrigSunt, svo sem títt er
um veiöimenn, en í þeirra flokki stóS hann framarlega. í honum var tölu-
vert af þeim efniviS, sem skáld eru gerö úr, en eg hygg aö hann hafi lítiö
íengist viö skáldskap, þótt hagmæltur væri.
Þrátt fyrir búsýslu, og önnur aukaverk, geröi hann sér jafnan far um
aö fylgjast meS í sinni ment.
G. M.
Smágreinar og athugasemdir.
Sóttvarnarhúsið á ísafirði er leigt til íbúöar, en þó þaö væri losaö er
þaö algerlega óhæft til notkunar, og hefir víst veriS svo frá fyrstu tíö.
Þaö heldur hvorki vatni né vindi, enda flestar rúöur brotnar í gluggun-
um. Engin áhöld til neins. Rúmstæöi og eldstæöi verri en engin. Rúmfatn-
aSur enginn til og engin salerni. Enginn sótthreinsunarofn. — Þannig
iýsir héraösl. húsinu i jan. 1920. Þ. 10. apr. 1919 tilkynti settur héraSsl.
aö húsiö væri tómt og starífært, svo vitnisburöirnir eru ekki sam-
hljóöa.
í 6. gr. sóttvarnarlaganna 1902 segir: Sóttvarnarnefnd, er í hlut á,
skal hafa umsjón meö sóttvarnarhúsum, annast viShald á þeim og öllum
útbúnaöi þeirra.
Stgr. Matth. fer eftir þessum fyrirmælum. AkureyrarhúsiS er í lagi og
meS sótthreinsunarofni.
Heilbrigðislöggjöfin. í þeirri von, aö héraösk kynni aö koma þaS að
gagni aö fá þetta ágrip, sem eg hefi annars samiö til afnota viö kenslu,
hefir þaö veriö sett í Lbl. AS prenta upp gildandi lög gat ekki komiS til
niála, en litill útdráttur hefir veriö geröur af helstu, einkum gömlum laga-
boöum. ÞaS er lika fróölegt aö sjá þau, til þess aö sjá breytingarnar.