Læknablaðið - 01.05.1921, Page 10
72
LÆKNABLAÐIÐ
Sjúkrahúsið á Akureyri.
Þaö eru nú liðin yfir 20 ár síðan sjúkrahúsið á Akureyri var bygt. Það
var þá ekki annað en aðalhúsið, sem sést gflögt á uppdrættinum, með sól-
skinsstofu við nokkurn hluta suðurhliðar (t. v. á uppdr.), og rúmaði 15
sjúkl. ef engin voru aukarúm. Fyrir operationes var að eins ein stofa, en
sótthreinsun verkfæra og umbúða fór fram í eldhúsi. Þaðan voru ílátin
flutt inn í skurðstofu með öllu í. Salerni og hreinsunarklefi voru þröng
og ófullkomin, því W.C. varð ekki komið við vegna óhentugs frárenslis,
aftur var baðherbergi allgott. Sjukrastofurnar voru nægilega loftgóðar (4
m. undir loft) ef ekki var yfirfylt, en það rak óðar að því, og voru sjúkl.
oft 20—25 er aðsókn var mest. Þá varð að fylla göng 0g sólskinsstofu
3. Frú X., sem var laus við alla hjátrú. var eitt sinn stödd við seanco.
Miðillinn sagði henni, að mikil vandræði myndu korna fyrir hana, sem
breyttu öllu lífi hennar. Konan varö forviða og leitaði til annars miðils.
Hann sagði henni algerlega hið sama, en bætti því við, að það væri dóttir
hennar, sem um væri að ræða, hún myndi verða mjög sjúk og skurður vera
gerður á henni. Hélt þó, aö henni myndi batna. Konunni stóð nú ekki á
sama, fór til þriðja miðilsins og fékk honum hanska sinn. Óðar en hann
hafði tekið við honum, bar hann sig aumlega, sagðist fá óþolandi Verki
í kviðarholið, það hlyti' að vera lífhimnubólga, og það er þar gröft-
u r. 8 dögum síðar lagðist stúlkan í hastarlegri lifhimnubólgu og dó! —
Tidsskrift for den Norske lægeforening:
Um kláða skrifar Nils Silferskiöld fróðlega grein (í Tidskr. f. militái
hálsovárd). Hann athugaði hvort sótthreinsa þyrfti föt kláðasjúkl. og
ýmislegt eðli kláðamaura. Er þetta hið helsta:
Incubatio kláðans fer ekki fram úr 2—6 vikum. Utan hörundsins lifa