Læknablaðið - 01.09.1924, Blaðsíða 6
132
LÆKNABLAÐIÐ
smiSjuna og boöist til aö sækja þá kl. io næsta morgun. Boöiö var þakk-
að með lófaklappi.
XIII. ÁfengiÖ og læknarnir. Um það flutti Gunnl. Claessen erincli
og bar fram þessar tillögur:
„I. Fundurinn skorar á rikisstjórnina aö láta ekki drykkfelda lækna
sitja í embættum.
2. Fundurinn skorar á ríkisstjórnina aö hlutast til um, aö feld verði
úr núgildandi lögum heimild lyfsala og héraöslækna til aö selja
mönnum áfenga drykki eftir lyfseðlum."
Til máls tóku: Sigurj. Jónss., Bj. Jós., Þ. Edilonss. og G. Björnson;
óskaði landlæknir þau ummæli sin bókuð, aö þótt ísl. læknastéttin kynni
að vera syndug í vínsölu og vinreceptasölu, væri þó miklu meira úr því
gert en rétt væri.
Þ. Edilonsson bar fram þessa till.: „Fundurinn felur stjórninni aö
leita álits læknastéttarinnar um tillögur G. Cl. og leggja síöan málið
fyrir næsta læknafund.“ Um till. þessa var óskað nafnakalls og sögðu já:
Bj. Jós., Þ. Edilonss., J. Krist., en nei: G. Björns., G. Thor., Kr. Arinbj.,
Fr. Jenss., G. Cl., G. Hanness., Sigurj. Jónss., Ól. Jónss., Þ. Thor., Til-
laga Þ. Ed. þar með feld.
Þá voru bornar upp tillögur G. Cl., og var viðhaft nafnakall. Var fyrri
till. samþ. með öllum atkv. (12), en hin með 10 atkv. gegn 2 (Ól. J., J.
Kristj.) ; hinir allir sem atkv. greiddu um tillögu Þ. Ed., sögðu já.
XIV. Taxti fyrir læknishjálp til útlendinga. Frummæl. Þóröur Edi-
lonsson, er ,bar fratn þessa tillögu: „Lf. ísl. lítur svo á, að héraðsl. séu
ekki bundnir við ísl. taxta þegar um læknishjálp til útlendinga er að
ræða, heldur noti þá taxta, sem tiðkast í því landi, sem hinir útlendu menn
eru frá.“
Viðaukatill. frá G. Hanness.: „og skorar á heilbrigðisstjórnina að fá
þeim ákvæðum breytt, sem kunna að koma í bág við þetta“.
Báðar till. samþ. með öllum greiddum atkv.
XV. Berklahæli á Norðurlandi. Út af erindi frá Sambandsfundi norð-
lenskra kvenna var samþ. svolátandi till. frá G. Hanness.: „Fundurinn
lýsir samúð sinni og ánægju yfir áhuga norðlenskra kvenna fyrir þvi
að koma upp heilsuhæli á Norðurlandi, en telur mál þetta taka fyrst og
fremst til landstjórnar, heilbrigðisstjórnar og berklavarnafélags.“
Fundur 2. ágúst 1924.
XVI. Læknabústaðir. Frummæl. G. Hannesson, og flutti hann þessa
till.: „Fundurinn skorar á lækna að sækja ekki um læknishérað meðan
slik dýrtíð helst sem nú er, nema sómasamlegur læknisbústaður sé trygð-
ur með sæmilegum kjörum.“
Til máls tóku Þ. Ed. og Sigurj. Jónss., sem bar fram till. til rökstuddr-
ar dagskrár: „Vegna þess að hagur ríkis og héraða er svo erfiður, sem
stendur, að lítil von er til, að fram úr þessu máli geti orðið ráðið á við-
unandi hátt á næstunni, telur fundurinn ekki rétt að gera nú kröfu um
að bústaðamálinu sé ráðið til lykta, og tekur því fyrir næsta mál á
dagskrá."
Till. Sig. J. feld með 4 atkv. gegn 4. Till. G. H. samþ. með 6:2 atkv.