Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.09.1924, Qupperneq 16

Læknablaðið - 01.09.1924, Qupperneq 16
142 LÆKNABLAÐIÐ Um hvenær mæöur sýktust vantar víöa upplýsingar, og er það að vísu oft óhjákvæmilegt. Viöa vantar og uppl. um, hvort mæöur voru smitandi, og enn víðar um hve lengi. Að vísu er oft erfitt um þaö að segja, en líkur mætti þó sennilega telja víöar en gert er. Allvíða er talaö um kirtlaveiki í börnum, en þaö er tæpast nógu ákveðið, betra að tilgreina einkenni, svo sem eitlaþrota, eyrnabólgu, augnveiki (phlyctæne) o. s. frv. Úr sumum héruðunum verður ekki séð um fleira eða færra af börnunum, hvort þau voru á brjósti eða pela eða hvorttveggja. Og svona mætti fleira telja. Samrannsóknanefndin sendi mér þessar skýrslur í vor og mæltist til að eg reyndi að vinna úr þeirn, hefir vist hugsað, að það kæmi vel á vond- an, af því að eg hafði átt frumkvæðið að því, að þessi samrannsókn var gerð. Nú verður þetta litið nema nafnið, fyrst og fremst af því að eg hefi ekki getað varið miklum tima til þess vegna annara anna, og í öðru lagi af því, hve margar upplýsingar vantar i sumt af skýrslunum, loks af því, að vegna þess og hins, hve skýrslurnar eru fáar, verður hvort sem er litið eða ekkert á því að græða sem úr þeim kynni að mega vinria, og því minni ástæða til að leggja hart á sig til þess. í töflunni hér á undan er það að finna, sem eg hefi séð mér fært að draga út úr skýrslunum. Þar eru i fyrsta dálki talin héruðin, sem skýrslurnar eru úr, í 2. dálki bv. rnæöur, lifandi og dánar, i 3. dálki öll lifandi fædd börn þeirra, í 4. dálki börn, dáin úr bv. og i 5. dálki börn, dáin úr öörum .banameinum, kunnum eða ókunnum. I 6. dálki eru talin þau börn er nú lifa og í 7. og 8. dálki sést beinlxnis og óbeinlinis núverandi heilsufar þeirra; þar er það að atlnxga, að í 8. dálki, nú hraust að mestu, tel eg þau, sem skýrsl- urnar kalla við ,,dágóða“, „sæmilega“ og ,,bærilega“ heilsu, eða heilbrigð a.ð öðru en litilsháttar eitlaþrota eða því um líku. I 9. dálki eru þau börn talin, sem skýrslurnar telja að hafi altaf verið hraust, er frá eru taldar farsóttir. í 10. dálki er taliö framfaraleysi og i n. dálki eitlaþroti; þar eru talin með þau börn, sem i skýrslunum eru talin kirtlaveik, án þess að nánar sé tilgreint; innan sviga i þeim dálki er tala þeirra, sem grafið hefir í eitlum á. 1 12.—14. dálki er talin allskonar áreiðanleg berklaveiki, í 15. dálki Pleuritis, i 16. dálki conj. phlyct. og í 17. dálki otitis med. chr. í 18. dálki er loks tala heimila, ]xar sem aðrir voru bv. en mæður og ev. börn; þau ein heimili eru talin þar sem þetta gat hugsast að hafa áhrif á sótthættu barnanna, ekki t. d. þótt móðirin hafi verið samtiða bv. áður en hún átti 'börn. — Inflúenza, kíghósti og mislingar eru ekki taldir úr nærri öllurn héruðunum, og hef eg þvi slept þeim, og sanxa er urn aðra sjúkdóma svo sem blóðskort, taugaveilu, beinkröm o. fl., af þvi að ekkert af þeim er talið úr sumum héruðunum. Eitt er ]xað, sem þessar skýrslur sýna, og það er hve ákaflega mis- illkynjuð bv. er í héruðunum. I Fjótsdalshéraði er útkoman langverst: þar er nál. ýá barnanna dáið úr bv. og flest þeirra, sem lifa, hafa eða hafa haft einhverja berklakvilla. Að eins 2 af 45 liafa altaf verið hraust, er frá eru taldar farsóttir. Þar eru og aörir en móðir og börn berklaveikir á 6 heim- ilum af 7. Mun skárri er útkoman í Bíldudals og Akureyrarhéruðum, og þó slæm: ca. barnanna dáin úr bv., en örlítið fleiri, sem altaf hafa verið hraust. Aftur hefir ekkert af 12 + 7 börrium í Borgarfjarðar og Hóls- héraði dáið úr bv., að eins 1 af 80 í Svanfdælahéraði, 1 af 20 í Dalahéraði, 2 af 48 í Siglufjarðarhéraði og 3 af 43 í Sauðárkrókshéraði, og af 177

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.