Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1924, Page 9

Læknablaðið - 01.10.1924, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ í5£ um varnarþol einstaklinga og ætta helclur en farsóttunum. Eg hefi heyrt um það spurt, hvort kostnaðarsamar berklavarnir væru réttmætar, úr því að veikin myndi „hreinsa til“ hvort sem væri, en þó veriö hallast á þá sveif, að vér yrðum að halda þeim áfram vegna mannúðarskyldu. Frá sjónarmiði læknastéttarinnar er það víst sama mannúðarskyldan, sem hvetur til þess að verja þjóð gegn berklaveiki og holdsveiki eins og tauga- veiki, bólu, kóleru og svartadauða. Mér getur ekki skilist, að sú reynsla, að einstakl. og enda ættir séu misnæm fyrir veikinni og hafi misjafnt varn- arþol, leysi læknastéttina að neinu leyti undan varnarskyldunni. Stétt vorri geturaldrei leyfst að meta gildi manna eftir jiessu þoli, enda er verðmæti einstaklings fyrir þjóð sína eða heiminn ekki komið undir slíkri hreysti. Kenningin um náttúruvalið verður því að eins gagnsöm, að hún hvetji til þess að finna ráð til varnar þeim fjölskvldum og ættum, sem eru í mestri hættu, en hún yröi verri en gagnslaus, ef hún styddi að því, að leggja árar í bát. Takmarkið hlýtur að vera, bæði um þennan og aðra sjúk- dóma, að hjálpa öllum, annaðhvort með undankomu eða vopnum. Þá sný eg mér að berklav. hér á landi. Læknar eru dkki á einu máli um, hve gamall þjóðarsjúkdómur hún sé. Sé orðið þjóðarsjúkd. notað í merkingunni morbus endemicus, eins og Sig. Magn. virðist gera, þá er skoðun hans um aldurinn sjálfsagt rétt. Öðru máli er að gegna, ef orðið merkir þjóðarmein, þ. e. a. s. sjúkdóm, sem gerir mikinn usla og veldur því miklu tjóni, þá fer að verða meiri vafi á, og eg fyrir mitt leyti hefi ekki getað sannfærst um, að hún sé gamalt þjóðarmein og hafi staðið í stað marga mannsaldra. Eg trúi einmitt hinu gagnstæða. Ekki kemur mér í hug, að fara að deila um þetta, enda er eg ekki fær um það, en af því að það kemur beint við þessu efni, þá vil eg minnast á ályktun Sig. Magn. í ritgerð hans: „Hvenær smitast menn ....“ IV. kafla, bls. 20, og þarf eg ekki að taka orð hans upp hér. Hann ályktar, að berklav. hafi fyrir mannsaldri verið svipuð og nú. Eg ætla hvorki að játa né neita sannleika ályktunarinnar, en hún virðist vera bygð á þeirri forsendu, að ákveðin tala berklaveikra manna hafi fyrir mannsaldri ekki smitað meir eða víðar frá sér, en jafnmargir sjúkl. gera nú á tímum. Þessi forsenda er ósennileg, þeg- ar litið er á ástæðurnar fyr og nú. Áður fóru sjúklingar um eftirlitslítið, voru jafnt á ungbarnaheimilum sem öðrum og sáðu því sóttnæminu út takmarkalítið, vegna sóðaskapar og vanþekkingar sjálfra ])eirra og annara. Húsakynni voru líka verri en nú, þrengri, dimmari og óþrifalegri, t. d. moldargólfin, sem ómögulegt var að hreinsa sæmilega. Aftur á móti eru samgöngur nú orðnar greiðar og meiri mök manna á milli og eykur það sýkingarhættuna. Þó ber þess að gæta, aö áður var mikið um flakk og rand bæja og sveita á milli, og hafa flakkarar víst ekki verið þrifnari né heilsubetri en aðrir. Eg á erfitt með að trúa því, að auknar samgöng- ur vegi upp á móti þekkingu, þrifnaðarbótum, húsabótum og berklavörn- um vorra ára. En ef forsendan, sem eg nefndi, að hver berklasjúkl. hafi fyrir manns- aldri smitað jafnmarga og ekki fleiri en hver sjúkl. nú, skyldi samt sem áður vera sönn, og ef hinsvegar menningarbætur og berklavarnir vorra tíma gera verulegt gagn — og um það er varla unt að efast, — þá áé eg ekki nema eina leið til skýringar. Hún er sú, að varnarþol þjóðarinnar gegn veikinni sé minna en áður, og fari minkandi. Mér virðist, að þetta

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.