Læknablaðið - 01.11.1924, Qupperneq 6
164
LÆKNABLAÐIÐ
Með öllum þessum tilraunum hafa menn öSlast mikla þekking um eöli
vit-flokkanna.
C-vitamin (antiscorbutiskt): í kálblööum, jaröeplum, nýjum á-
vöxtum, berjum, salati, hreökum, næpum. Er viökvæmast allra vit., þolir
illa þurk og hita yfir 50° C. Ungbörnin fá Mb. Barlowi, þegar mæöurnar
þrautsjóöa mjólkina. Flest kálmeti þolir þó án þess aö vit. spillist, suðu-
hita við venjulega matreiðslu. Ööru máli er að gegna um niðursuðu; þá
er hitað upp í 120° C., enda er niðursoðið grænmeti vit.-
1 a u s t. C-vit. fer líka forgörðum við þurk; í þurkuðum ávöxtum eða
jarðeplamjöli, er ekki C-vit. Annars eru jarðepli álitin mjög holl; þau
eru að vísu ekki mjög vit.-rík, en sé þeirra neytt daglega, færa þau lík-
amanum mikla hollustu. Stepp telur, að jarðepli forði í mörgum ár-
um ýmsum þjóðum frá skyrbjúg, og getur um skyrbjúg i s'tórum stýl
í Rússlandi og á Norðurlöndum, þegar uppskerubrestur hefir orðið á
jarðeplum.
Sk a- r f a k á 1 er gamalt og gott skyrbjúgslyf hér á landi, og vel reynd-
ist Jóni p-róf. Steingrímssyni grautur úr fíflalaufum við bjúg og
aðra hungursjúkdóma, í eldsneyðinni miklu í Skaftafellssýslum. Nú hafa
biologar sannað, að taraxacum er mjög auðugur að vit. Lítið eitt er af
C-vit. í nýmjólk og ýmsum fleiri matvælum, en mest í þeim fæðuteg-
undum sem taldar eru hér að framan. Menn geta komist af án C-vit.
um tíma, væntanlega vegna vit.-forða líkamans, en svo rekur að því, að
skyrbjúgur gerir vart við sig.
B-vitamin (antineuritislkt): Mest er af því í korni og
grjónum og geri; auk þess í nýmjólk og ávöxtum. Eins og um var get-
ið, er B-vit. bundið við hýði eða hrat kornsins; í rúgi er þó vit. í
ö 11 u k o r n i n u o g þ e s s v e g n a æ t í ð í r ú g m j ö 1 i, en fínustu
hveititegundir algerlega vit.-lausar. Rúgur örvar hægðirnar, en sömu
áhrif hefir ger, sem líka er auðugt að B-vit.; hefir mönnum því dottið
í hug, að hér sé um vit.-áhrif að ræða. Ekki hefir efnafræðingum tekist
að finna og ákveða samsetning þeirra efna í grjónahýðinu, sem um er
að ræða; í hýðinu er m. a. fita og fosfór.
B-vit. er mjög frábrugðið C-vit. að því leyti, að það þolir vel hita; bæði
þessi vit. leysast upp í vatni.
Vit. þetta er ungviðinu nauðsynlegt til vaxtar, en fullorðnir fá beriberi,
ef B-vit. vantar. Patholog. anatomiskar breytingar í taugunum er dege-
neratio í tauga-frumum og þráðum; auk þess atrophi í öllum lymphoid vef.
A-vitamin: í lýsi, nýmjólk, smjöri, eggjarauðu o. fí. Vit. þessa
flokks 1 e y s a s t u p p í f i t u e f n u m. Langmest er af því í þorska-
lýsi, sem talið er 300 sinnum ríkara að vit. en smjör. í einni teskeið af
lýsi er jafn mikið vit. sem í vænum skamti af nýmjólk smjöri eða eggja-
rauðu. Prof. P o u 1 s s o n hefir rannsakað allskonar tegundir lýsis. Stað-
festist nú vísindalega tröllatrú alþýðunnar á lýsi, enda reynist það oft
svo, að vísindin sanna síðar þá reynslu, sem fengist hefir kynslóð eftir
kynslóð. Þorska-, ýsu- og hákarla-lýsi hefir reynst mjög svipað, en próf.
P. telur minna vit. í síldar- og hval-lýsi. í lifrarkagga sprengjast lifram-
ar og rotnar sundur; rennur þá úr þeim lýsið og kallast hrálýsi.
Við gufubræðslu má hleypa gufu í sjálfan lifrarpottinn, inn á milli lifr-
anna, eða bræða lifrina í pottum með tvöföldum veggjum ; er heitri gufu