Læknablaðið - 01.05.1933, Blaðsíða 12
58
LÆICNABLAÐIÐ
reyndist 5,10 cm og komu 41% af því á sumarmánuöina (apr.—okt.), en
59% á vetrarmánuöina (okt.—apr.). Sama er aö segja um þyngdina.
Aleðalþyngdaraukning piltanna er 3,42 kg. á ári. Þaraf koma 35% á
sumarmán. (apr.—okt.), en 65% á vetrarmánuðina (okt.—apr.).
Svipuöu máli er aö gegna um stúlkurnar. Meöalhækkun þeirra er á ári
5,58 cm. Þaraf kemur á sumarmánuöina 44%, en á vetrarmánuöina 56%.
Dálítiö ööru máli er að gegna um þyngd þeirra. Meöalþyngdaraukning
er 3,93 kg. yfir árið. Þaraf kérnur á sumarmánuðina 50°/o, en þær þyngjast
minst í skammdeginu svo aö þar koma einnig 50% á vetrarmánuðina.
Bendir þetta e. t. v. til aö sumir piltanna, einkum þeir eldri, hafi meira
erfiöi aö sumrinu en þeim er holt, og komið hefir til oröa, þó enn hafi
ekki orðið úr framkvæmdum, aö byrja skólahald fyr aö haustinu og
lengja þá heldur jólaleyfi í þess stað. Ritgerö skólastjórans um þetta
efni er prentuð í Eimreiðinni 38. árg. 3.—4. hefti og vísast aö ööru leyti
til hennar
Skólaeftirlitiö er merkilegt mál. Fyrir utan þann visindalega ágóöa
sem af því má hafa ef svo mætti að oröi komast, er þaö einn þátturinn
í þeirri viðleitni að ala upp heilbrigöa kynslóö og e. t. v. ekki sá órnerki-
legasti. Eins og nú er ástatt er langt frá því, að þaö sé í góðu lagi hjá
okkur. Þaö verður ekki fyr en sérstökum manni er falið aö hafa eftirlit
með heilbrigðismálum allra skóla á landinu, safna um þaö skýrslum og
gera tillögur um þaö sem betur mætti fara. Nú hafa veriö gefin út ný
eyöubiöö fyrir héraöslækna um skólaeftirlit, og felt niður flest af því
sem áöur var spurt um. Það má að vísu segja, að til mikils hafi veriö
ætlast af héraöslæknum að' svara öllu sem á gömlu blöðin var skráö, en
hins vegar er þaö lélegt skólaeftirlit að gæta nær eingöngu aö berkla-
veiki, Pirquet, og óþrifum, eins og ætlast er til á hinum nýju blööum.
Það má að vísu segja að hverjum sé i sjálfsvald sett hvað hann athugar
framyfir þetta, en reynslan er nú sú, að fullerfitt mun að fá menn til að
svara því sem fyrirskipað er, auk heldur hinu.
Eins og nú er ástatt, eru greiddar ca. 2500 kr. til skólalæknanna í
Reykjavík, eöa 1 kr. á barn. Til samanburðar má geta þess, aö til tann-
lækninga á sömu börnum eru greiddar ca. 10 þús. krónur. Stendur bæjar-
sjóöur einn straum af þessum kostnaði. Launin eru svo lág, að skóla-
læknisstarfiö veröur þvi aldrei eins vel unniö og skyldi.
Mér hefir dottiö í hug, hvort ekki mætti koma þessum málum í fast-
ara horf meö því, aö skipaður væri einn skólalæknir í Reykjavík og hon-
um launað svo vel að hann gæti gefið sig að starfinu óskiftur. Jafn-
framt væri sá læknir yfirmaður allra skólaheilbrigöismála í landinu og
til hans bæri héraöslæknum og öðrum skólalæknum, að senda skýrslur
sínar um skóla. Laun hans. skyldu svo greidd úr bæjar- og ríkissjóði, að
sínum helming úr hvorum. Eg hefi þó ekki, aö svo komnu máli, viljað
bera fram um þetta ákveðnar tillögur, vegna þess aö eins og sakir standa,
mun ekki blása byrlega um stofnun nýrra embætta, hvorki fyrir ríkis-
né bæjarstjórn. En aö því hlýtur að koma, að skipa veröur heilbrigöis-
málum skólanna í fastara form en nú er, og mætti þá hafa þetta í huga.