Læknablaðið - 01.05.1933, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
73
Læknafél. Rvíkur áöur en þeir semdu um borgun fyrir verki'ð fram-
vegis, yrði einhverra slíkra samninga leitað við þá.
M a g g i M a g n ú s kvaðst ekki gjörla vita hvers vegna skólalækn-
unum hefði verið sagt upp, en gera ráð fyrir að það mundi gert í sparn-
aðartilgangi. Kvað þá ekki hafa haldið vel á sínu máli, hefði þeir veitt
ýmsa læknishjálp ókeypis, sem þeir ekki mundu skyldir að gjöra í sam-
bandi við þetta starf.
Gunnlaugitr Einarsson kva'ð til vera prentað uppkast að
erindisbréfi fyrir skólalækna í Reykjavík og væri þar tekið fram um
þau verk. sem þeim bæri að vinna.
Jónasi Sveipsson taldi skólaskoðun eins og hún væri fram-
kvæmd út um land, ófullnægjandi. Sagði frá að hann hefði eitt vorið
fundið barnakennara, sem til sín hefði komið, með smitandi berkla
(lungna), og taldi sig síðan hafa fundið berklaveikt fólk, sem líkur
væru fyrir að maður þessi hefði smitað. Taldi rétt að Læknafél. Isl.
léti til sín taka um þetta mál.
Ennfremur tóku til máls á fundinum þeir: Guðm. Hannesson
próf., Ó1. Hielgason, Jón Jónsson og Gu'nni'l. Einars-
s o n. Verða ræður þeirra ekki hér raktar.
Tillaga kom frá Þórði Edilonssyni um að kjósa nefnd í málið, sem
skilaði áliti áður en þinginu sliti. Var það samþykt. Þessir voru kosnir:
Olafur Helgason, Þórður Edilomsson og Jónas
Sveinsson. Frekari umræður urðu ekki. Fundi slitið kl. io e. h.
Framhaldsaðalfundur 4. júlí 1933, kl. 4 e. h.
1. Forma'ður bauð Lárus Einarsson velkominn til landsins og á
fundinn.
2. Yfirlæknir dr. m.ed. E. Mejulengracht: Erindi um
anaemia perniciosa (therapi og pathogenesis sjúkdómsins). Skuggamynd-
:r sýndar til skýringar. Erindið var hvortveggja í senn, bæði fróðlegt
og vel flutt. Þakkaði formaður ]>að með stuttri ræðu.
3. Lárus Einarsson: Erindi með skuggamyndum um patho-
logiskar breytingar i taugavef við p e r n i c i ö s anaemi og
Cancer ventric. (Aðall. í medulla og s pi i n a 1 g a n g 1.). Á eftir
erindinu þakkaði yfirl. Meulengracht Lárusi fyrir aðstoð hans við ranu-
sóknir á sjúklingum með þessa veiki, mintist hann einnig fleiri ísl., sem
höfðu aðstoðað hann við rannsóknir þessar.
4. Prófessor Sigurður Magnússon: Erindi um berkla-
varnir — skýrði línurit til skýringar á erindinu.
Á síðasta aðalfundi L. í., höfðu' þeir próf. Sig. Magnússon og dr. med.
Halldór Hansen verið kosnir í nefnd með landlækni til þess að gera til-
lögur í þessu máli. Landl. hafði samt ekki óskað að starfa i nefndinni,
en hinsvegar enginn kosinn í hans stað og komu þeir því ekki með nein-
ar ákv. tillögrir. Dr. Halldór Hansen skýrði samt frá athugunum þeirra
um málið, og höfðu þeir helst hugsað sér að berklavörnum yrði í fram-
tíðinni hagað þannig að skipaður yrði herklavarnastjóri er væri
sérfræðingur í lungnasjúkdómum og hefði hann eftirlit með heilsuhælum
landsins og hjálparstöðvum er stofna skyldi víðsvegar um landið. Engar
ákveðnar tillögur lögðu þeir þó fram í málinu, en stungu upþlj- að kosin