Læknablaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 19
„Háfjallasól“
E’ýðing háfjallasólar í lækningastarfl lyflækna:
1 daglegu starfi (praxis) læknanna hefur geislun líkamans með ultra-
fjólubláum geislum náð mikilli útbreiðslu. Á þessu svæði var það, að hin
tilbúna háíjallasól — Original Hanau — ruddi sér til vegs í allra fremstu
röð fyrir öryggi í starfrækslu og ágæta tækni. Síðan 1900 hafa verið seld
yfir 200 000 áhöld, sem sannar best álit og endingargildi þeirra við læk-
ningastarfið. Mörg þúsund framgjarnra lækna við háskólaklinikur, við
sjúkrahús, við heilsuhæli og í lækningarstofum þeirra sjálfra víðsvegar um
heim, hafa síðan 1906 notað hina tilbúnu háfjallasól kvartslampans —
Original Hanau.
Yfir 2600 skyrslur hafa birzt urn þetta mál í vísindalegum ritum, læknis-
fræðislegum kennslubókum og tímaritum, fram til þessa tíma.
Verkanir háfjallasólarinnar:
Geislun alls líkamans með ultra-
fjólubláu geislum kvartslampans,
“Tilbúinni háfjallasól’' — Original
Hanau —, veitir oft heilsubót þeg-
ar aðrar lækningaaðferðir hafa
brugðist, þeir auka áhrif annara
læluiismeðala og flýta fyrir verkun-
um þeirra. Batinn kemur í ljós
í húðinni á þann hátt að hún
verður rauð af blóðstreymi og
síðan brtín (sólbruni, Erythem).
Blóðþrýstingurinn minnkar, öll
efnaskifti líkamans aukast og um
Ieið örfast öll líffærastarfsemin.
Sjúklingurinn hressist í útliti, lí-
kamsþyngdin vex, matarlystin glæð-
ist (oft í matargræðgi), syefninn
batnar, verður djúpur og eðlilegnr.
Hinn öri blóðstraumur í húðinni
lýsir sér, eins og reyndar hjá heil-
brigðu fólki, með hraustlegum.
brúnleitum hörundsblæ, hressilegu
yfirbragði og þægilegri tilfinninou
um þrótt og hreysti, ekki aðeins
líkamlega heldur einnig andlega.
Hver sem tekur sólböð háfjallasóla-
rinnar — Original Ilanau — finnur
andlegt fjör færast í sig, kemst f gott
skap og verður glaðlyndur.
Hjá sjúklingum verða áhrifin sefandi, lífgandi og
styrkjandi á líðanina allstaðar í hinum sýkta líkama,
sem fær nýtt fjör og elfdan mótstöðukraft gcgn
sjúkdómsbölinu.
Ef þér óskið fáið þér sundurliðaða lýsingu með
myndum hjá Raftækjaeinkasölu rikisins, Reykjavík,
Sími: 4526.