Læknablaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 18
96
LÆKNABLAÐIÐ
er mjög aökallandi, og þarf að
ráöa fram úr því sem allra fyrst.
þvi þa'ð er mjög fráleitt, aö geta
ekki útskrifa'ð slíka sjúklinga, sem
eg ræddi um, fyrir þá sök eina, að
þeir hafa að engu að hverfa, ekki
einn sinni að sæmilegu húsnæði.
Eins og yður er kunnugt, eða
a. m. k. sumum yðar, þá hefir ver-
ið leitað til síðasta þings um fram-
lag til nýrra sjúkrabygginga á Víf-
ilsstöðum. TJað mun eiga að Irætvi
við ?.ö minsta kosti 120 rúmum.
Kostnaðaráætlun mun liggja fyrir
og teikningar gjörðar, en eg hefi
ekki séð þær og veit lítið um fyr-
irkomulagið, en hvort undirbún-
ingur þessa máls standi á nægilega
traustum grundvelli, getur máske
verið álitamál.
En hvað sem þessu líður, þá er
]>að mitt álit, að við þurfum fyrst
og fremst heilsuhæli, eins og eg
hef lýst, fyrir börn og unglinga,
og í öðru lagi aö það borgi sig,
einnig fyrir ríkissjóðinn, að berkla-
veikir sjúklingar, sem dvalið hafa
í hælum, fái einhverja framhalds-
hjálp, að minsta kosti um stundar-
sakir. til þess að þeir þurfi ekki áð
dvelja á hælunum lengur en góðu
hófi gegnir. Mér er kunnugt um,
að Irerklasjúklingar í heilsuhælim-
um bera þetta mál mjög fyrir
brjósti, enda vita þeir hvar skór-
inn kreppir. Og það mundi verða
styrkur þeirra máli, ef Læknafélag
íslands mælti með því.
Þegar þessi mál eru farsællega
til lykta leidd, þá er eftir að vita,
livort við þurfum að fjölga rúmum
fyrir lungnaberklasjúklinga. Nú
deyja ico sjúkingar á ári úr
lungnaberklum, en að eins á \’íf-
ilsstöðum og Kristnesi er pláss
fyrir 225 sjúklinga, og hagkvæmt
er að hafa nokkur rúm fyrir
berklasjúklinga á öðrum sjúkra-
húsum, t. d. Seyðisfirði, Akureyri,
ísafirði, Stykkishólmi,Vestmanna-
eyjum og Reykjavik. Að minsta
kosti er með þessu séð betur fyrir
sjúkrarúmum fyrir herklasjúk-
linga en i nokkru öðru landi.
Eg lief viljaö ræða ]>etta mál
hér og heyra álit starfsbræðra, og'
leggja þessar tillögur minar fyrir
Læknafélag Íslands. Það félag hef-
ir verið brantryðjandi í mörgum
helst.u heilbrigðismálum vorum og'
tillögur þess hafa oft mátt sin
mikils á löggjafarþingi þjóðarinn-
ar. —
Og tillögur minar eru í stuttu
máli þessar:
Fundurinn telur hina brýnustu
nauðsyn:
1. Að koma upp heilsuhæli fyrir
börn og unglinga nieð berklaveiki
á byrjunarstigum, sérstaklega
citlaberkla og útvortis berka.
2. Að heimild sú um styrk, sem
samkv. 5. gr. laga um hjálp til
sjúkra manna og örkumla, má
veita sjúklingunum fyrir læknis
hjálp utan sjúkrahúsa, nái einnig
til annara ]>arfa þeirra siúklinga,
sem útskrifaðir ern af Irerklahæl-
um, en eru þess ekki megnugir, að
sjá sér farborða vegna fátæktar og
litillar vinnugetu.
3. Að bæjar- og sveitarstjórnir
sjái um, að slíkir sjúklingar fái
.sæmilegt húsnæði og aðra nauð-
synlega aðstoð.
Félagsprentsmiðjan h.f.