Læknablaðið - 01.10.1942, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ
greiða verðlagsuppbót á greiðslur
fyrir læknishjálp og vottorð á ár-
inu 1941, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir stjórna L. 1. og L. R. til
þess að fá hana til að gera það.
Nokkur vori væri um að þessi verð-
lagsuppbót fengizt. en það múncli
bæta, ef tilmæli kæmu um það frá
aðalfundi L. í.
Lagði að lokum fram svobljóð-
andi tillögu:
„Aðalfundur L. I. 1942 væntir
þess fastlega, að Tryggingarstofn-
un ríkisins greiði læknum fulla
verðlagsuppbót á greiðslur þær,
sem hún hefir innt af hendi fyrir
læ'knishjálp og læknisvottorð, 'sem
veitt var slysatryggingarskyldu.
slösuðu fólki á árinu 1941, og geri
slíkt hið saina framvegis."
Var tillagan samþykkt með sam-
bljóða atkvæðum.
Fundi frestað.
Þriðji fundardagur, 4. júlí.
Fundur var settur á sama stað
kl. ió.
Mættir voru á fundinum samkv.
boði fundarstjórnarinnar fyrir
hönd félags læknanema þeir Hauk-
ur Kristjánsson stud. med. og
Hánnes Þórarinsson stucl. mecl.
12. mál.
Kjör héraðslækna.
Magnús Pétursson taldi kjör
margra héraðslækna heldur bág-
borin og nefndi þess nokkur dæmi.
Stjórnin befði ekki ákveðnar til-
lögur að l)era fram, en vildi hreyfa
málinu og fá það athugað af hér-
aðslæknunum og tillögur frá þeim.
Hefði þó nokkur atriði, sem hún
vildi benda á:
1. Hækka launin i lökustu héruð-
unum, svo að læknum þar verði
öðrum fremur unnt að afla sér
siðar framhalds- og viðhalds-
menntunar, þar sem gera má
ráð fyrir, að lækniskunnátta
71
þeirra líði smárri saman meira
tjón í hinum minni héruðum en
þeim stærri, að sama skapi og
þeim gefst af eðlilegum ástæð-
um minni kostur á að halda
henni við með læknisreynslu.
2. Þeim verði séð fyrir ódýru hús-
næði.
3. Lökustu héruðunum verði lögð
til öll nauðsynlegustu verkfæri.
sem jafnan fylgi héraðinu, en
lækninum sé jafnan skylt að
viðhalda.
4. Lyfjabúr séu af rikinu á sama
hátt löggð hverju héraði. Lækn-
ar haldi þeim siðan við og skili
við burtför sína i hendur eftir-
manna sinna, eða umboðsmanns
heilbrigðisstjórnarinnar, í sama
ástandi og þeir tóku við.
5. Sumarfrí á fullum launum i 1
mánuð eins og allar aðrar
launastéttir fá.
6. Veikindafrí á fullum launum í
allt að 1 ár og munu ríkisstofn-
anir allar veita það.
Stjórninni hefir verið legið á
hálsi fyrir að vera aðgerðarlítil um
mál héraðslækna, en hvernig á hún
að gera mikið, þegar héraðslæknar
láta nær aldrei frá sér heyra og
þá.helzt i stuttum símtölum. Stjórn-
in telur sér ekki fært að taka við
ályktunum af þessum fundi, svo
fásóttur sem hann hefir verið, en
óskar eftir að mega leita álits fé-
lagsmanna milli funda um mál.
sem ástæða kynni að vera til.
Guðm. Guðmundsson: Hefi ver-
ið 17 ár í rýru héraði. Þegar eg
kom þangað átti ég ekkert og á
ekkert enn. Að hve miklu leyti
þetta er vegna lágra launa og að
hve miklu leyti vegna taps á lyfj-
um veit ég ekki. Mér hefir fundizt
stjórnin aðgerðalitil. kannske
vegna lítils stuðnings héraðslækna.
Páll Kolka: Ekki sammála Ci.
(í. að L, í. hafi lítið gert fyrir hér-